Morgunblaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012 STUTTAR FRÉTTIR ● Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum ágústmánuði, metinn á föstu verði, var 1,6% minni en í ágúst 2011. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 15,8% miðað við sama tímabil 2011, sé hann metinn á föstu verði. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Aflinn nam alls 100.401 tonni í ágúst 2012 en hafði verið 109.814 tonn í ágúst 2011. Botnfiskafli dróst saman um tæp 2.600 tonn frá ágúst 2011 og nam hann 21.400 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 9.700 tonn. Minna aflaverðmæti Rekstur sveitarfélaga á Íslandi fer batnandi, eins og tölur Hagstofunn- ar um fjármál hins opinbera á öðrum ársfjórðungi gefa til kynna, og er það ekki síst vegna þess að fjárfestingar sveitarfélaga eru í lágmarki um þessar mundir. Þetta kemur fram í Markaðs- punktum greiningardeildar Arion banka, en þar er bent á að tekjur sveitarfélaganna jukust um tæplega 9% á öðrum fjórðungi frá því á sama tíma fyrir ári á meðan heildarútgjöld jukst um ríflega 5%, sem er undir verðlagshækkunum, en verðbólga mældist um 6% á tímabilinu. Tekjujöfnuður var því jákvæður um 1,4% á fjórðungnum, en þetta er í þriðja sinn sem slíkt gerist á síðustu fjórum ársfjórðungum. Greiningardeild Arion banka vek- ur athygli á því að það sé öðruvísi en áður var, en frá ársbyrjun 2007 og fram á þriðja ársfjórðung 2011 var samfellt neikvæður tekjujöfnuður af starfsemi sveitarfélaganna. Tölur hagstofunnar byggjast á afkomu stærstu sveitarfélaga landsins þar sem um 80% af íbúum landsins búa. Fram kemur í greiningu Arion banka að um 4% af tekjum sveitarfé- laganna fara í vaxtagreiðslur. Það hlutfall hefur að mestu haldist óbreytt síðustu ár. Hins vegar eru vísbendingar um að sveitarfélögin séu í fjárfestingarsvelti um þessar mundir, að sögn Arion banka. Á liðnum fjórðungi var um 6,5% af tekjum sveitarfélaganna varið til fjárfestinga, eða sem nemur um 7 milljörðum króna. Frá ársbyrjun 2011 hafa þau fjárfest fyrir um 7% af tekjum sínum – um 16 milljarða á ársgrundvelli – en til samanburðar vörðu sveitarfélögin að jafnaði 15% af tekjum sínum í fjárfestingar á hverjum fjórðungi yfir sjö ára tíma- bil þar á undan. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Rekstur stærstu sveitarfélaganna hefur þróast til hins betra að undanförnu. Tekjujöfnuður var jákvæður um 1,4% á öðrum fjórðungi. Sveitarfélögin rétta úr kútnum  Tekjur aukast um 9%, útgjöld um 5% BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Stjórn Eimskips ákvað að auka við kauprétt sex lykilstjórnenda fyrir- tækisins í síðasta mánuði. Þeir eiga nú rétt á að kaupa um 0,88% til við- bótar við 3,5% hlut sem þegar hafði verið samið um. Markaðsvirði þessa 4,4% hlutar er 1,9 milljarðar króna, miðað við viðskipti sem áttu sér stað í sumar. Verðið á nýjasta kaup- réttinum miðast við útboðsgengið þegar Eimskip verður skráð á hlutabréfamarkað í haust. Þeir fengu kauprétti árin 2010 og 2011, samkvæmt upplýsingum frá fyrir- tækinu. Bragi Ragnarsson, stjórnarfor- maður Eimskips, segir í samtali við Morgunblaðið að með þessu sé ver- ið að tvinna saman hagsmuni stjórnenda og hluthafa. „Við viljum með kaupréttunum tryggja að stjórnendurnir vinni fyrir Eimskip til langframa. Þeir hafa staðið sig frábærlega. Félagið væri ekki til í þeirri mynd sem það er í dag ef krafta þeirra nyti ekki við,“ segir hann og áréttar að þeir verði að borga fyrir hlutabréfin. Það sé ekki svo að þeim séu einfaldlega gefin bréf í félaginu. Hann segir að unnið sé eftir áætlun sem gaf stjórninni heimild til að veita kauprétti og það sé ekki loku fyrir það skotið að fleiri kaupréttir verði veittir á næsta ári. Markaðsvirði Eimskipa er 40,7 milljarðar króna eftir kaup Lífeyr- issjóðs verslunarmanna á 14% hlut í félaginu fyrir 5,7 milljarða króna í júlí. Ólíklegt er að verðið við skrán- ingu á markað í haust verði lægra en það, en mögulega verður það hærra. Þriggja ára bið Stjórnendurnir verða að bíða í þrjú ár þar til þeir mega nýta sér kaupréttina. Þeir voru gerðir á þremur mismunandi tímabilum og gilda í tíu ár, að því gefnu að við- komandi vinni enn fyrir Eimskip. Þetta þýðir að það styttist í að þeir megi leysa út kaupréttina sem gerðir voru árið 2010. Markaðsvirði þess hlutar er 763 milljónir króna en þeim býðst að kaupa bréfin á fimm hundruð milljónir. Ef horft er til kaupréttanna sem gerðir voru við sex af æðstu stjórn- endum fyrirtækisins á árunum 2010 og 2011 nema þeir 3,35% af hlutafé. Markaðsvirði hlutarins er 1,5 millj- arðar króna. Um það bil helming- urinn af kaupréttunum var gerður við Gylfa Sigfússon forstjóra. Þeir mega kaupa þessi bréf á 0,839 evr- ur, sem gerir um 133,22 krónur á hlut. Það þýðir að þeir kaupa bréfin á 933 milljónir. Hagnaðurinn er 567 milljónir. Aukið við kauprétt sex lykil- stjórnenda hjá Eimskipum  Ekki verið að gefa stjórnendunum bréfin segir stjórnarformaður Eimskips Stjórnandi Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, hefur stýrt fyrirtækinu í gegnum ólgusjó. Eftir endurskipulagningu stendur það styrkum fótum. Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson Kaupréttir » Markmiðið með kauprétt- arsamningum er að tvinna sam- an hagsmuni hluthafa og stjórnenda. » Kaupréttir miðast oftast við markaðsgengi fyrirtækja á hverjum tíma. Stjórnendur vinna að því að auka virði fyr- irtækisins. Ef bréfin hafa hækk- að frá þeim tíma sem samning- urin var gerður geta þeir keypt þau og hagnast umtalsvert. » Kaupréttir eru skattlagðir líkt og um tekjur sé að ræða. Te & Kaffi opnaði í dag nýtt kaffihús í Aðalstræti 9 við Fógetagarð. Þetta er níunda kaffi- hús fyrirtækisins en það fyrsta var stofnað árið 1984 í kjallara á Bar- ónsstíg 18. „Þetta nýja kaffihús hefur talsverða sérstöðu og er óvenju háþróað því þar verður uppá- hellibar þar sem viðskiptavinir geta valið kaffi sem er séruppáhellt fyrir hvern og einn,“ segir Halldór Guð- mundsson, framkvæmdastjóri fyr- irtækisins, í fréttatilkynningu. Opna níunda kaffihúsið Halldór Guðmundsson  Te & Kaffi stækkar Verðbólga mældist 2,6% á evru- svæðinu í ágúst miðað við sam- ræmda vísitölu neysluverðs. Jókst þar með verðbólgan frá fyrri mán- uði, en hún hafði verið 2,4% í júlí. Verðbólgan mældist aðeins meiri sé tekið mið af öllum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins (EES), eða sem nemur um 2,7%, að því er fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Verðbólgan mældist minnst í Noregi, en þar hefur verð- lagið staðið í stað síðasta árið. Verðbólga eykst á evru- svæðinu                                          !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 +10.1+ +,2.10 ,+.+34 ,+.,/4 +4.2 +,1.3+ +.0203 +4/.4 +03.1+ +,-.12 +1/.51 +,0.5, ,+.,2 ,+.55+ +4.202 +5-.-3 +.00-, +43.5/ +04.50 ,+4.-2+, +,+.,5 +1/.43 +,0./1 ,+.5-, ,+.512 +4.0-4 +5-.25 +.0023 +43.1, +04.31 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á GLUGGAR OG GLERLAUSNIR idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla • tré- eða ál/trégluggar og hurðir • hámarks gæði og ending • límtré úr kjarnaviði af norður skandinavískri furu • betri ending — minna viðhald • lægri kostnaður þegar fram líða stundir • Idex álgluggar eru íslensk framleiðsla • hágæða álprófílakerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga Byggðu til framtíðar með gluggum frá Idex
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.