Morgunblaðið - 15.09.2012, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 15.09.2012, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012 Ólíklegt er talið að bresk blöð muni birta ljósmyndir sem teknar voru af Kate, hertogaynjunni af Cambridge, með nakin brjóst en franskt slúður- blað, Closer, birti slíkar myndir í gær. Segja fréttaskýrendur að bresk blöð séu minnug dauða Díönu prinsessu en margir kenndu ofsókn- um blaðaljósmyndara um slysið. Closer er gefið út af Mondadori, fyrirtæki í eigu Silvios Berlusconis, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu. Ritstjóri blaðsins, Laurence Pieau, segist ekki iðrast neins og mynd- irnar séu á engan hátt hrikalegar. „Þær sýna unga konu berbrjósta í sólbaði, eins og milljónir kvenna sem menn sjá á baðströndum,“ sagði hún. Myndirnar voru teknar með að- dráttarlinsu er Vilhjálmur ríkis- erfingi og Kate dvöldu í frönsku sumarhúsi í eigu frænda Vilhjálms, Linleys lávarðar. Closer gæti stórgrætt Fyrstu viðbrögðum ungu hjónanna var lýst sem undrun og vonbrigðum en í gær ákváðu þau að höfða mál gegn Closer. Að sögn BBC er ljóst að ritstjóri slúðurblaðs- ins veit að blaðið geti þurft að greiða sekt en hann sé sannfærður um að á endanum muni nettóhagnaðurinn verða mikill. kjon@mbl.is AFP Frægð Hertogaynjan af Cambridge á ferðalagi í Malasíu. Fordæma myndbirt- ingu  Kate og Vilhjálmur höfða mál gegn blaði Kristján Jónsson kjon@mbl.is Efnt var til blóðugra mótmæla um öll Mið-Austurlönd og víðar í löndum íslams eftir föstudagsbænir í gær vegna myndar sem gerð var í Banda- ríkjunum og gerir gys að Múhameð. Einn mótmælandi féll í Líbanon og þrír í Túnis þar sem brotist var inn í bandaríska sendiráðið. Þúsundir manna urðu við áskor- unum klerks í Karthoum í Súdan og mótmæltu, kveikt var í þýska sendi- ráðinu en starfsmenn þess urðu ekki fyrir hnjaski. Mótmæli voru í Egyptalandi, fjórða daginn í röð en lögregla beitti nú táragasi til að hindra árás á bandaríska sendiráðið. Ofstækisfullir íslamistar, salafist- ar, sem ráða yfir nær fjórðungi þingasæta, voru áberandi í mótmæl- unum. Á einu af spjöldum mótmæl- enda var stór mynd af al-Qaeda-leið- toganum Osama bin Laden. Mohamed Morsi Egyptalandsfor- seti hefur fordæmt umrædda kvik- mynd, hún sé ögrun er dragi athygl- ina frá „raunverulegum vandamálum“. Forsetinn fordæmdi í gær líka ofbeldið síðustu daga og sagði Egyptum bera skylda til að vernda erlend sendiráð. New York Times segir að Barack Obama Bandaríkjaforseti hafi hringt í Morsi í vikunni og verið hvassyrtur en Obama álítur Egypta ekki lengur bandamenn Bandaríkjamanna. Margir gagnrýndu fyrstu viðbrögð Morsis sem ekki fordæmdi beinum orðum hrottalegt ofbeldi mótmæl- enda í Líbíu er m.a. myrtu fjóra bandaríska sendiráðsmenn. Fjárhagur Egypta er slæmur og þörfin fyrir lán sem Bandaríkja- menn hafa boðið er mikil. Íslamistasamtök Morsis, Bræðra- lag múslíma, hættu í gær við víðtæk mótmæli um landið allt. Í staðinn stóð Bræðralagið fyrir táknrænum mótmælum á Tahrir-torgi. Setið um sendiráð  Morsi Egyptalandsforseti fordæmdi árásirnar og Bræðra- lag múslíma hætti við öflug mótmæli um allt landið Apar af tegundinni lesula lifa á af- skekktu svæði í miðhluta Austur- Kongó og nú hafa vísindamenn slegið föstu að um sérstaka tegund sé að ræða en lesula minnir mjög á aðra, þekkta tegund. Fullorðinn le- sula-karlapi er með stóran, skærbláan og hárlausan blett á rasskinnum og sama lit á pungnum. AFP Feimnir skógarbúar í Austur-Kongó Lög margra landa eru undarleg, að sögn Jyllandsposten. Í Hol- landi má ekki reykja tóbak á al- mannafæri en reykja má kanna- bis. Bannað er að deyja í húsakynnum breska þingsins vegna þess að strangt til tekið á maður þá rétt á opinberri útför. Ekki má ganga um á bikiníi í Barcelona og ekki má borða eða drekka í grennd við opinberar byggingar eða kirkjur í Flórens. Bannað er að nota tyggigúmmí í hraðlestakerfi Singapúr og hand- taka má fólk í Egyptalandi fyrir að nota sjónauka nálægt flugvelli. kjon@mbl.is VERÖLD LAGANNA Margt skrítið Meirihluti neðri deildar rúss- neska þingsins samþykkti í gær að reka af þingi stjórnarand- stæðinginn Gen- nadí Gúdkov sem sakaður er um hags- munaárekstur en hann á örygg- isþjónustufyrirtæki. Ósk Gúd- kovs, sem oft hefur gagnrýnt stjórnvöld harkalega, um leyni- lega atkvæðagreiðslu var hafnað. kjon@mbl.is RÚSSLAND Stjórnarandstæð- ingur rekinn af þingi Ný skoðanakönnun á vegum New York Times og CBS í Bandaríkj- unum bendir til þess að Barack Obama forseti sé með ívið meira fylgi en Mitt Romney meðal þeirra sem líklegastir eru til að kjósa í nóvember. Er Obama með 49% stuðning en Romney 46%, mun- urinn er sagður innan skekkju- marka. New York Times bendir á að nýjar tölur um fjölgun nýrra starfa hafi valdið vonbrigðum en flestir kjósendur hafa mestar áhyggjur af stöðu efnahagsmála. kjon@mbl.is BANDARÍKIN Lítill fylgismunur Kristján Jónsson kjon@mbl.is Bresk hugveita segir í nýrri skýrslu að það myndi borga sig fyrir Evr- ópusambandið að stöðva fiskveiðar í allt að níu ár til að byggja upp of- veidda stofna. Aðeins muni taka fimm ár fyrir flesta stofnana að ná sér. Fram kemur í frétt BBC að 75% af veiðistofnum í sambandinu séu of- veidd og afli aðeins brot af því sem hann var fyrir 15-20 árum. Hugveitan, New Economics Fo- undation, segir að slíkt veiðistopp myndi hafa í för með sér hagnað upp á milljarða punda árið 2023. Hún vill að einkafyrirtæki leggi fram fé, alls liðlega níu milljarða punda, til að bæta sjómönnum upp tapið og koma í veg fyrir að selja verði skip og báta. Bent er á í fréttinni að þing ESB hafi í vikunni samþykkt aðgerðir gegn ríkjum utan sambandsins sem stundi ofveiði, þeirri samþykkt var einkum beint gegn makrílveiðum Ís- lendinga og Færeyinga úr sameig- inlegum stofnum. En Maria Dam- anaki, sjávarútvegsstjóri ESB, hafi nýlega sagt að tekist hefði að draga verulega úr ofveiði. Nú væri stunduð sjálfbær veiði á 19 stofnum en þeir hefðu aðeins verið 13. Barry Deas, framkvæmdastjóri sjómannasambands Bretlands, sagði í viðtali við BBC að engin þörf væri á veiðistoppi eins og NEF leggur til. „Ég held að það sé ekkert vit í þessu, hvort sem er líffræðilega, efnahagslega eða pólitískt,“ sagði Deas. „Almennt séð erum við þegar á leiðinni að því takmarki að ná hæsta, mögulega afla með tilliti til sjálfbærni og hvers vegna væri þá skynsamlegt að eyða öllum þessum peningum?“ Vilja allt að níu ára veiðistopp  Aðgerðin sögð borga sig fyrir ESB Óttast tjón á markaði » BBC spurði Aniol Esteban, liðsmann NEF, hvort aukinn fiskinnflutningur frá löndum utan ESB myndi ekki skadda stofna umræddra landa. » Aniool sagði aðra lausn að draga um hríð úr fiskneyslu um fimmtung. » Deas segir að svo langt veiðistopp gæti valdið miklu tjóni á markaðnum. ÓDÝRU BÍLALEIGUBÍLARNIR VORU AÐ KOMA! Vertu fyrstur, fáðu þann besta! Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is Eigum allskonar bíla, langar þig í einn? Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is Ertu með kaupanda? Skjalafrágangur frá 14.990 kr. Löggildir bílasalar tryggja öryggi beggja aðila Fylgstu með okkur á facebook Sölulaun frá 39.900 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.