Morgunblaðið - 15.09.2012, Side 30

Morgunblaðið - 15.09.2012, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012 Eitt alstærsta átakamál í komandi þingkosningum verður aðild Íslands að Evr- ópusambandinu. Að- alkrafa kjósenda til stjórnmálaflokka og frambjóðenda þeirra í kosningunum, verður því um skýra og klára afstöðu þeirra til þessa mesta átakamáls á lýð- veldistímanum. Af þeim fjölda stjórnmálaflokka sem hafa boðað framboð í komandi þingkosningum, er að- eins einn flokkur, sem virðist skera sig úr hvað varðar skýra og afdráttarlausa þjóð- holla stefnu í Evrópu- málum, Hægri grænir, flokkur fólksins. Fyrir alla þjóðfrelsis- og full- veldissinna, og heima- stjórnarsinnaða íhalds- menn, virðast hægri grænir því mjög fýsi- legur kostur í Evrópu- málum í dag, enda flokkurinn stofnaður á Þingvöllum 17. júní árið 2010, sem segir jú svo fjölmargt um flokkinn, og fyrir hvað hann virkilega stend- ur. Skýr stefna Í Evrópumálunum hafa þannig Hægri grænir afar skýra stefnu, andstætt t.d. Sjálfstæðisflokknum, og hafna einir flokka alfarið aðild Ís- lands að ESB af pólitískum ástæð- um. Og vilja einn flokka um- svifalaust draga umsókn að ESB til baka, enda sé um aðlögunarferli að ræða að ESB en ekki samninga. Þá vilja Hægri grænir einir flokka upp- sögn á Schengen-ruglinu, og þannig strax taka á vandamáli ólöglegra innflytjenda og skipulagðri erlendri glæpastarfsemi hér á landi. Þá og Hægri grænir með skýra stefnu í Evrópumálum Eftir Guðm. Jónas Kristjánsson Guðmundur Jónas Kristjánsson Umræðan um ójöfn- uð milli kynjana sprettur upp reglulega þar sem bent er á þann launamun og stöðu- mun þar sem konur fara halloka. En það er eitt sem fer alveg ægi- lega í taugarnar á mér. Talað er um hinn „óút- skýrða“ launamun og hin fáu stöðugildi kvenna í æðri stjórnstigum sem ein- hvers konar sönnun þess að samsæri sé í gangi gegn konum almennt, samsæri þar sem feðraveldið hefur kúgað konur í árþúsundir í sína eigin þágu, að við karlmenn höldum þeim frá ábyrgðarstöðum með því að skipa okkur saman í lið þar sem við verjum hagsmuni hverjir annarra gegn ekki eins skipulögðu liði kvenna. Hefur þeim einstaklingum sem tala fyrir þessu aldrei dottið í hug að það geta verið eðlilegri ástæður sem útskýra þennan ójöfnuð í staðinn fyrir þá útskýringu að þetta sé allt saman eitt stórt samsæri. Hefur þessu fólki aldrei dottið í hug að svörin geta legið í mun- inum á milli karla og kvenna. Eðlilegt þykir mér að álykta að karlar eigi að jafnaði auðveldara með að sérhæfa sig á ein- hverju einu sviði á með- an konur eiga auðveld- ara með fjölhæfni á mörgum sviðum. Ég hef alltaf sem karlmaður haft það vandamál að þegar ég einbeiti mér að vinnu eða öðru sem undirleggur hug minn þá er tilhneig- ingin sú að ég vanræki aðra hluti sem skipta mig máli eins og félagslíf og eða heilsuna, ekki vegna þess að ég sé kærulaus heldur einfaldlega vegna þess að ég get ekki sinnt of mörgum áhyggjum í kollinum á mér á sama tíma. Þess vegna dáist ég að þeim hæfileika kvenna að geta sinnt mörgum mjög frábrugðnum hlutum án þessa að missa úr takt. Þó er mik- ilvægt að hafa það í huga við lestur þessarar greinar að vissulega skar- ast eiginleikarnir, sumar konur hafa sérhæfðari hugsunarhátt og sumir karlar hafa fjölhæfari hugsunarhátt, meining mín er aðeins hvernig þess- ir eiginleikar lita kynin að jafnaði. Í ljósi þessa gefur að skilja að karlmenn að „jafnaði“ einbeita sér af meiri hörku að því sem grípur áhuga þeirra og gerir þá kappsamari en konur, sem útskýrir að stærstum hluta af hverju vinnuveitendur kjósa að veita þeim hærri laun eða hærri stöður. Þannig að þetta er ekki ein- hverskonar samsæri eða kúgun af hendi karlmanna, þetta er einfald- lega hvernig hausinn á okkur er vír- aður í gegnum genin. Við verðum sem kyn að viðurkenna galla hvort annars og á sama tíma upphefja styrkleikana því að þetta hlutskipti okkar í samfélagi manna er þess valdandi að við erum háð þessum styrkleikum sem hvort kynið hefur. Þess vegna legg ég til að við tökum af okkur álpappírshattana og hætt- um þessu samsæriskenningakjaf- tæði og förum að vinna saman sem eitt lið. Samsæri feðraveldisins Eftir Sigurjón Friðriksson Sigurjón Friðriksson » Við verðum sem kyn að viðurkenna galla hvort annars og á sama tíma upphefja styrkleikana. Höfundur er rithöfundur. Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900 Allt fyrir farsíma, smartsíma og fistölvur Allar GSM rafhlöður 2.990.- SanDisk minniskort og minnislyklar í miklu úrvali - Micro-SD - SDHC - Compact Flash - Memory Stick Gerið verðsamanburð! iPad borðstandur - Festing fyrir sætisbak fylgir 5.990.- Landsins mesta úrval af GSM aukahlutum! Nettir en öflugir ferðahátalarar fyrir iPod/iPhone/iPad og aðra spilara eða síma. Innbyggð rafhlaða. 4.990 Allt fyrir IPod og Ipad Ipad bílhleðslutæki 1.490.- Öll GSM bílhleðslutæki 990.- 12V tvídeilir 1490.- Flott úrval 12V fjöltengja í bílinn, húsbílinn eða fellihýsið. 12V þrídeilir með Micro-USB útgangi og viðvörunarljósi ef raf- geymirinn í bílnum er að tæmast 2.990.- Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali. Kjarna, Þverholti 2, Mosfellsbæ Sími 586 8080, fax 586 8081 www.fastmos.is Vatnsstígur 21 - 101 Reykjavík Falleg og rúmgóð 163,3 m2, 4ra her- bergja íbúð á 2. hæð við Vatnsstíg 21 í Skuggahverfinu í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofuhol, tvö bað- herbergi, þvottahús, þrjú svefnher- bergi, eldhús, stofu og borðstofu. Íbúðinni fylgir 7,1 m2 sérgeymsla í kjallara. Íbúðinni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu. Eignin er laus til af- hendingar strax. V. 58,5 m. Kórsalir 1 - 201 Kópavogur Sérlega glæsileg 292,4 m2 penthouse íbúð á tveimur hæðum með miklu út- sýni og tveimur bílastæðum í bílakjall- ara, við Kórsali 1 í Kópavogi. Falleg gólfefni og glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar. Á neðri hæðinni er góð stofa, glæsilegt eldhús m/borðkrók, þrjú góð barnaherbergi, þvottahús, sjónvarpsstofa, baðherbergi með horn- baðkari og sturtu og hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi. Á efri hæðinni er stór setustofa með arni, gott svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. V. 83,0 m. Klettagarðar 12 - 104 Reykjavík Sérlega glæsilegt 6.680 m2 verslun- ar/lager- og iðnaðarhúsnæði á 18.324 m2 sjávarlóð við Klettagarða 12 í Reykjavík. Eignin er laus til afhending- ar strax. Húsið er fullbúið og mjög vandað í alla staði utan sem innan. Malbikuð bílastæði, mjög góð aðkoma og mikið auglýsingagildi. V. 895,0 m.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.