Morgunblaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 33
Ég legg til að við sýnum heil-
brigða dómgreind og staðfestu og
höfnum öllum fyrirætlunum um
að fá hingað kvótaflóttamenn og
svo auðvitað alla ættingjana
þeirra sem fylgja í kjölfarið. Slíkt
mun kosta þjóðfélagið stórfé. Við
skulum líka sýna skynsemi í mál-
efnum hælisleitenda sem koma
hingað í sívaxandi mæli og spila á
strengi góðsemi og meðvirkni.
Er ekki nóg að gert með því að
ríkið eyðir meira en 5 milljörðum
króna í þróunaraðstoð á hverju
ári? Þar er einn hjálpariðnaðurinn
sem blómstrar með mannskap á
feitum launum og allt í nafni góð-
seminnar. Hvernig væri að hjálpa
fátækum íslendingum í staðinn?
Ég hef gagnrýnt Írisi og fleiri
aðila sem koma að þessum málum
fyrir skort á heilbrigðri dóm-
greind og því að sjá ekki þennan
málaflokk með augum skynsem-
innar. Ég tel að gagnrýni mín á
núverandi innflytjendastefnu sé
málefnaleg og byggð á varfærinni
raunsæisstefnu. Lærum af
reynslu annarra þjóða. Við skul-
um ekki stinga höfðinu í sandinn
og láta dómgreindarlausa góð-
semispostula ráða för.
»Ég legg til að við
sýnum heilbrigða
dómgreind og staðfestu
og höfnum öllum fyrir-
ætlunum um að fá
hingað kvótaflóttamenn
og svo auðvitað alla
ættingjana þeirra
sem fylgja í kjölfarið.
Höfundur er formaður
Bjartsýnisflokksins, flokks
hófsamra þjóðernissinna.
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Yamaha píanó og flyglar með og án “silent”
búnaðar. Áratuga góð reynsla gerir Yamaha
að augljósum kosti þegar vanda skal valið.
Veldu gæði,
veldu
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson |
norir@mbl.is
Félag eldri borgara
Reykjavík
Fimmtudaginn 13. sept var spil-
aður tvímenningur að Stangarhyl 4.
Spilað var á 11 borðum. Meðalskor:
216 stig. Efstu pör í N/S:
Ólafur Theodórs - Björn E. Péturss. 244
Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 243
Auðunn Guðmss. - Óli Gíslason 237
Ingibj. Stefánsd. - Margrét Margeirsd. 225
A-V
Sigurður Tómass. - Guðjón Eyjólfsson 275
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnsson 267
Bergur Ingimundars. - Axel Láruss. 246
Björn Svavarss. - Jóhannes Guðmannss. 235
Uppgangur í Gullsmára
Mjög góð þátttaka var í Gullsmára
fimmtudaginn 13. september. Spilað
var á 16 borðum. Úrslit í N/S:
Jónína Pálsdóttir - Þorleifur Þórarinss. 308
Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 303
Sigríður Gunnarsd. - Ólafur Oddsson 288
Þorsteinn Laufdal - Guðlaugur Nielsen 287
A/V
Anna Hauksdóttir - Hulda Jónasard. 329
Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 317
Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 312
Lúvísa Kristinsd. - Sigurður Þórarinss. 293
mbl.is
smáauglýsingar