Morgunblaðið - 15.09.2012, Síða 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Evrópudeild Al-
þjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar WHO hefur
mótað nýja stefnu í
heilbrigðisþjónustu
sem nefnd er Health
2020. Ástæðan er
krafa um aukin áhrif
sjúklinga og aðstand-
enda þeirra á heil-
brigðisþjónustu land-
anna. Einnig má nefna
hærri lífaldur, áhrif mengunar og
umhverfis á heilsufar, breytingar
á búsetu, efnahagslega mismunun
og minna fjármagn til heilbrigð-
isþjónustu í kjölfar óreiðu í fjár-
málaheiminum. Við bætist að
tækniframfarir hafa aukið kostnað
við heilbrigðisþjónustu en jafn-
framt opnað nýjar leiðir til að
samþætta ólíkar greinar og auka
samstarf stofnana.
Með aukinni menntun hefur
einnig verið gerð krafa um
gagnsæi í heilbrigðiskerfinu og
aukin áhrif á mótun og rekstur
þess. Í stefnu WHO er lögð
áhersla á að aðildarríki vinni að
samræmdum aðgerðum og sam-
eiginlegri stefnu með það að
markmiði að styrkja heilbrigð-
isþjónustu landanna í þessum
anda og blása lífi í starf heilbrigð-
isstofnana í samráði við almenn-
ing.
Samhandlings-
reformen
Í samræmi við
stefnu WHO tók áætl-
un um nýtt heilbrigð-
iskerfi gildi í Noregi í
upphafi þessa ára í
kjölfar laga norska
Stórþingsins frá því í
fyrra. Áætlunin er
nefnd Samhand-
lingsreformen: „sam-
starfsáætlun um end-
urbætur í
heilbrigðiskerfinu“. Með lögunum
er almenn heilbrigðisþjónusta og
umönnun aldraðra og deyjandi
sameinuð undir eina stjórn og lögð
áhersla á forvarnir fremur en lag-
færingar, lækningu strax en ekki
þegar allt er komið í eindaga og
mælt fyrir um aukið samstarf heil-
brigðisstofnana. Þá er stefnt að því
að færa heilbrigðisþjónustu nær
fólkinu og auka samstarf sérhæfðra
þjónustustofnana. Einnig eru fleiri
verkefni fengin sveitarfélögum – og
áhrif sjúklinga og aðstandenda
þeirra aukin: „bedre for pasientene
– sterkere brukermedvirkning“,
eins og það er orðað í áætluninni.
Brugerinddragelse
Í lok októbermánaðar efna Danir
til ráðstefnu í Kaupmannahöfn í
samræmi við stefnu WHO. Þar
verður fjallað um þátttöku notenda
í heilbrigðiskerfinu undir heitinu
„Brugerinddragelse i sundheds-
væsenet“ sem felur í sér að not-
endur verði kallaðir til áhrifa. Um
er að ræða notendamiðað heilbrigð-
iskerfi. Eitt meginþema ráðstefn-
unnar er þátttaka og stuðningur
aðstandenda sjúklinga og bent á að
aðstoð og virk þátttaka sjúklinga
og aðstandenda þeirra sé einn mik-
ilsverðasti þáttur í lækningu og
meðhöndlun sjúkra og aldraðra.
Frá vöggu til grafar
Hollvinasamtök líknardeilda efna
til ráðstefnu á Grand Hótel
Reykjavík mánudag 24. september
nk. undir heitinu Frá vöggu til
grafar. Með ráðstefnunni vilja sam-
tökin knýja Alþingi til að koma á
notendamiðuðu heilbrigðis- og vel-
ferðarkerfi, mótuðu í samráði við
sjúka, aldraða og deyjandi – og að-
standendur þeirra.
Frá vöggu til grafar
Eftir Tryggva
Gíslason »Hollvinasamtökin
vilja að Alþingi komi
á notendamiðuðu heil-
brigðiskerfi, mótuðu í
samráði við sjúka, aldr-
aða og deyjandi og að-
standendur þeirra.
Tryggvi Gíslason
Höfundur er fyrrverandi skólameist-
ari MA og stjórnarmaður Hollvina-
samtaka líknardeilda.
Iðulega fæ ég spurn-
inguna: „Við hvað
starfar þú?“ Við þeirri
spurningu á ég í raun
nokkur svör allt eftir
því hvert ég vil að um-
ræðurnar þróist. Ein-
faldasta svarið og í
flestum tilfellum líklegt
til að drepa samræð-
urnar er: „Ég er verk-
fræðingur.“ Þá er um-
ræðum oftast lokið og harla ólíklegt
að það skapist skemmtilegar umræð-
ur um starfið. Þó að sumir undrist
reyndar að lítil, ljóshærð, tiltölulega
ung kona státi af þessum titli.
Aðeins flóknara svar, sem ég til-
kynni með stolti: „Ég starfa hjá Öss-
uri hf.“ Í kringum það svar skapast
iðulega skemmtilegar umræður um
hversu frábært fyrirtæki Össur
vissulega sé, hvaða vörur við fram-
leiðum, hvar við erum staðsett í
heiminum, hversu frábær starfsandi
er hjá Össuri, hversu gefandi starfið
er og svo mætti áfram telja.
En síðasta og að öllum líkindum
flóknasta svarið við spurningunni er:
„Ég er verkefnastjóri.“ Þetta svar
skilur margan spyrjandann eftir í
lausu lofti. Já, því hvað gera eig-
inlega verkefnastjórar? Mig grunar
að jafnvel mitt nánasta fólk viti í raun
og veru ekki um hvað starf mitt
snýst.
Starfsheitið verkefnastjóri hefur
nefnilega átt undir högg að sækja. Í
ljósi þess að starfsheitið er ekki lög-
verndað þá er það frjálslega notað og
ekki bætir úr skák að það er til
ákveðinn launaflokkur með titilinn
verkefnastjóri, þrepið á
milli þess að vera al-
mennur starfsmaður og
deildarstjóri. Það þarf
þó alls ekki að þýða að
viðkomandi starfs-
maður sinni eiginlegri
verkefnastjórnun.
Þetta flækir eðlilega
vitund fólks um það
hvað verkefnastjórar
gera í raun og veru.
Verkefnastjórar
starfa á mörgum svið-
um atvinnulífsins og
koma víða að, þeir eru ekki endilega
verkfræðingar eins og ég. Í dag er
hægt að mennta sig sem verk-
efnastjóri og jafnframt er hægt að fá
alþjóðlega vottun sem verkefnastjóri
(IPMA vottun) sem þykir eftirsókn-
arvert á vinnumarkaðnum.
Verkefnastjóri er sá aðili sem stýr-
ir verkefni, einu eða fleirum. Verk-
efni er í einföldu merkingunni skil-
greint sem fyrirfram skilgreind
aðgerð með upphaf og endi. Hlutverk
verkefnastjórans er að leiða verk-
efnateymið áfram í verkefninu frá
byrjun verkefnis allt til verkloka.
Tími, kostnaður og gæði eru þær
þrjár grunnvíddir sem kemur í hlut
verkefnastjórans að halda jafnvægi á
innan hvers verkefnis. Þetta getur
oft reynst eins og risavaxinn Tetris
leikur, þ.e.a.s. púsl þar sem ein lítil
breyting hefur áhrif á allt framhaldið
og það þarf að huga að því í tíma
hvernig á að bregðast við.
Fjórða grunnvíddin við verk-
efnastjórnun sem hefur tiltölulega
nýlega hlotið verðskuldaðan sess inn-
an verkefnastjórnunarfræðinnar er
mannauðurinn, eða verkefnateymið.
Verkefnateymið er kjarni verkefn-
isins, enda gerist ekkert án þess!
Hlutverk verkefnastjórans er að að-
stoða teymið við að vinna vinnuna
sína með því að skipuleggja verk-
efnið sem framundan er, skilgreina
markmiðin og halda þeim á lofti allan
verkefnistímann. Auk þess þarf hann
að hafa yfirsýnina yfir allt verkefnið,
hvetja teymið og aðstoða við að ryðja
úr vegi þeim hindrunum sem kunna
að verða á vegi þess. Verkefnastjór-
anum er gjarnan líkt við hljómsveit-
arstjóra sem sér um að allir í sveit-
inni stilli saman strengi og spili í takt
allt frá byrjun verksins til loka þess.
Verkefnastjórar geta nýtt sér fjöl-
mörg tæki og tól til að halda utan um
verkefni og getur það reynst töluverð
áskorun að velja réttu verkfærin.
Það gefst því einstakt tækifæri
fimmtudaginn 27. sep. næstkomandi,
á haustráðstefnu Verkefnastjórn-
unarfélags Íslands, til að fá að heyra
erlenda og innlenda sérfræðinga
deila með sér af sinni reynslu og jafn-
vel fá að gægjast í verkfærakistur
þeirra.
Hljómsveitarstjórar
atvinnulífsins
Eftir Ylfu
Thordarson » Verkefnastjóri er sá
aðili sem stýrir
verkefni, einu eða fleir-
um. Verkefni er í ein-
földu merkingunni skil-
greint sem fyrirfram
skilgreind aðgerð með
upphaf og endi.
Ylfa Thordarson
Höfundur er iðnaðarverkfræðingur,
forstöðumaður verkefnastofu þróun-
ardeildar á Íslandi hjá Össuri hf. og
formaður Verkefnastjórnunarfélags
Íslands.
Þann 21.september gefur
Morgunblaðið út sérblað um
Heimili og Hönnun
Í blaðinu verða kynntir
geysimargir möguleikar
sem í boði eru fyrir þá sem
eru að huga að breytingar
á heimilum sínum.
Skoðuð verða húsgögn í
stofu, eldhús, svefnher-
bergi og bað, litir og lýsing
ásamt mörgu öðru sem er
huggulegt fyrir veturinn.
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
17. september
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 5691105
kata@mbl.is
– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
Sjá sölustaði á istex.is
Íslenska ullin
er einstök