Morgunblaðið - 15.09.2012, Page 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2012
Í gær var opnuð í Listasafni Íslands
sýningin Musée Islandique eftir
Ólöfu Nordal. Á sýningunni eru
tvær nýjar ljósmyndaraðir sem
byggjast á heimsókn hennar í
geymslur þriggja mannfræðisafna
sem geyma gögn og muni um Ís-
lendinga, annarsvegar í Frakklandi
og á Kanaríeyjum og hinsvegar í
geymslum Háskóla Íslands.
Önnur röðin, Musée Islandique,
byggist á heimsókn landkönn-
unarleiðangurs undir forystu Je-
rome Napóleon prins, krónprins
Frakka, hingað til lands árið 1856. Í
hópnum voru vísinda- og listamenn
og tilgangur ferðarinnar að skrá og
rannsaka líf á norðurslóðum. Meðal
annars voru gerðar gifsafsteypur
af völdum Íslendingum í mann-
fræðilegum tilgangi og Ólöf ljós-
myndaði afsteypurnar sem varð-
veittar eru í Musée de l’Homme í
París og í El Museo Canario í Las
Palmas á Kanaríeyjum.
Einnig er á sýningunni ljós-
myndaröð af gagna- og sýnasafni
mannfræðingsins Jens Ólafs Páls
Pálssonar sem stundaði mannfræði-
rannsóknir á líkamsgerð tugþús-
unda Íslendinga, en Háskóli Íslands
varðveitir mikið magn gagna frá
rannsóknum hans, ljósmyndir af
fólki, hársýni, lýsingu fingrafara og
augna auk félagslegra upplýsinga.
Ljósmyndaröðin ber nafnið Das Ex-
periment Island.
arnim@mbl.is
Ólöf í Listasafni Íslands
Skyggnst inn í
mannfræðisöfn
í tveimur nýjum ljós-
myndaröðum
Mannfræði Musée Islandique – Framhluti bols, afsteypa af vinstri hand-
legg, afsteypa af vinstri fótlegg Kristjáns Gíslasonar; 23 ára, fæddur í
Reykjavík, íslenskur sjómaður.
Björg Júlíana Árnadóttir opnaði
sýningu á málverkum sínum í
Kirsuberjatrénu 11. september sl.
Sýningin ber yfirskriftina Konan
og blómin og eru verkin öll unnin
sl. vetur og vor. Júlíana starfaði í
banka í tæp 40 ár en var svo lán-
söm, að eigin sögn, að vera sagt
upp störfum árið 2008 þegar hún
átti tvö ár eftir í að komast á eft-
irlaun. Uppsögnin varð til þess að
hún snéri sér alfarið að því sem
hana hafði alla tíð dreymt um að
gera, þ.e. að læra að mála. Hún
stofnaði ásamt sjö öðrum konum fé-
lagið ART8 og saman hafa þær ver-
ið með vinnustofu í rúm tvö ár. Júl-
íana hefur haldið nokkrar mynd-
listarsýningar á landsbyggðinni og
tekið þátt í samsýningum með
Grósku, félagi myndlistarmanna í
Garðabæ.
Konan og blómin í
Kirsuberjatrénu
Blóm Eitt málverka Júlíönu.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Lau 15/9 kl. 20:00 4.k Fim 27/9 kl. 20:00 9.k Fös 5/10 kl. 20:00 13.k
Fim 20/9 kl. 20:00 5.k Fös 28/9 kl. 20:00 10.k Lau 6/10 kl. 20:00 14.k
Fös 21/9 kl. 20:00 6.k Lau 29/9 kl. 20:00 11.k Sun 7/10 kl. 20:00 15.k
Lau 22/9 kl. 20:00 7.k Sun 30/9 kl. 20:00 12.k
Sun 23/9 kl. 20:00 8.k Fim 4/10 kl. 20:00 aukas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Lau 15/9 kl. 19:00 2.k Sun 23/9 kl. 19:00 aukas Lau 6/10 kl. 14:00 9.k
Sun 16/9 kl. 16:00 3.k Lau 29/9 kl. 14:00 6.k Sun 7/10 kl. 14:00 10.k
Lau 22/9 kl. 14:00 4.k Sun 30/9 kl. 16:00 7.k
Sun 23/9 kl. 16:00 5.k Sun 30/9 kl. 19:00 8.k
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið)
Fös 28/9 kl. 20:00 frums Lau 6/10 kl. 22:00 4.k Lau 13/10 kl. 19:00 7.k
Lau 29/9 kl. 20:00 2.k Sun 7/10 kl. 20:00 5.k Lau 20/10 kl. 19:00 8.k
Lau 6/10 kl. 19:00 3.k Fös 12/10 kl. 19:00 6.k
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur
Rautt (Litla sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 frums Mið 26/9 kl. 20:00 4.k Lau 29/9 kl. 20:00 7.k
Lau 22/9 kl. 20:00 2.k Fim 27/9 kl. 20:00 5.k Sun 30/9 kl. 20:00 8.k
Sun 23/9 kl. 20:00 3.k Fös 28/9 kl. 20:00 6.k Mið 3/10 kl. 20:00 9.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 7/10 kl. 13:00 1.k Sun 14/10 kl. 13:00 2.k Sun 21/10 kl. 13:00 3.k
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 16/9 kl. 14:00 3.sýn Lau 13/10 kl. 14:00 AUKAS. Sun 28/10 kl. 14:00 15.sýn
Sun 16/9 kl. 17:00 4.sýn Lau 13/10 kl. 17:00 AUKAS. Sun 28/10 kl. 17:00 16.sýn
Sun 23/9 kl. 14:00 5.sýn Sun 14/10 kl. 14:00 11.
sýn
Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn
Sun 23/9 kl. 17:00 6.sýn Sun 14/10 kl. 17:00 12.sýn Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn
Sun 30/9 kl. 14:00 7.sýn Lau 20/10 kl. 14:00 AUKAS. Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn
Sun 30/9 kl. 17:00
TÁKNMÁL
Lau 20/10 kl. 17:00 AUKAS. Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn
Sun 7/10 kl. 14:00 9.sýn Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn
Sun 7/10 kl. 17:00 10.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn
Sýningar í október komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Afmælisveislan (Kassinn)
Lau 15/9 kl. 19:30 Fös 21/9 kl. 19:30 Lau 22/9 kl. 19:30
Þrenn Grímuverðlaun! Sýningum lýkur í september!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Lau 15/9 kl. 20:30 Frums Fim 27/9 kl. 20:30 6.sýn Fös 5/10 kl. 20:30 10.sýn
Fim 20/9 kl. 20:30 2.sýn Fös 28/9 kl. 20:30 7.sýn Lau 6/10 kl. 20:30 12.sýn
Fös 21/9 kl. 20:30 3.sýn Sun 30/9 kl. 20:30 8.sýn Sun 7/10 kl. 20:30 13. sýn.
Lau 22/9 kl. 20:30 5.sýn Fim 4/10 kl. 20:30 9.sýn
Sýningin sem sló öll aðsóknarmet aftur á svið. Sýnd í september og október.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Mið 7/11 kl. 19:30 Fim 15/11 kl. 19:30
Fim 8/11 kl. 19:30 Fös 16/11 kl. 19:30
Miðasala hafin. Aðeins þessar fjórar sýningar í nóvember.
FRUMSÝNING 20. OKTÓBER KL. 20
Föstudaginn 26. október kl. 20 – 2. sýning
Laugardaginn 27. október kl. 20 – 3. sýning
Sunnudaginn 4. nóvember kl. 20 – 4. sýning
Laugardaginn 10. nóvember kl. 20 – 5. sýning
Laugardaginn 17. nóvember kl. 20 – 6. sýning
Miðasala í Hörpu og á www.harpa.is
Miðasölusími 528 5050
SAGAUMÁSTIROGHEFND
JÓHANNFRIÐGEIRVALDIMARSSON· AUÐURGUNNARSDÓTTIR
TÓMASTÓMASSON/ANOOSHAHGOLESORKHI
ELSAWAAGE/ALINADUBIK · VIÐARGUNNARSSON
GRÉTAHERGILS · SNORRIWIUM
KÓROGHLJÓMSVEITÍSLENSKUÓPERUNNAR
HLJÓMSVEITARSTJÓRI:CAROLI.CRAWFORD
LÝSING:BJÖRNBERGSTEINNGUÐMUNDSSON
BÚNINGAR:ÞÓRUNNMARÍAJÓNSDÓTTIR
LEIKMYND:GRETARREYNISSON
LEIKSTJÓRI:HALLDÓRE.LAXNESS