Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.2013, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.06.2013, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands „Okkur líst sérlega vel á mótið og við erum mjög spennt að takast á við þetta verkefni. Við vorum með Unglingalandsmótið í fyrra og það var góð prufa, ef við getum sagt svo, fengum gríðarlegan fjölda gesta, gott veður og hér nutu allir verslunarmannahelgarinnar í botn. Það var ekkert sem kom upp á mótinu í fyrra sem þurfti einhverjar verulegrar lagfær- ingar við þannig að við trúum því að við séum komin með mjög góða aðstöðu og getum haldið þetta mót með miklum sóma. Við erum ennþá að bæta í mannvirkin síðan í fyrra en erum að taka í gagnið nýja búningsklefa á íþróttavellinum þannig að aðstaðan verður enn betri fyrir keppendur að sinna sínum mál- um,“ sagði Ásta Stefánsdóttir, framkvæmda- stjóri sveitarfélagsins Árborgar, í samtali við Skinfaxa þegar hún var innt eftir undirbún- ingi fyrir 27. Landsmóti UMFÍ sem haldið verður á Selfossi dagana 4.–7. júlí í sumar. Mjög góð kynning fyrir sveitarfélagið – Er ekki skemmtileg áskorun fyrir sveitar- félagið að takast á við að halda Landsmót? „Jú, verkefnið er skemmtilegt, krefjandi og ekki síður gefandi. Við fundum það á Ungl- ingalandsmótinu í fyrra að fólk var gríðarlega ánægt og við fengum til baka góð og jákvæð viðbrögð frá þeim sem komu á mótið. Svona mótshald er ekki síður mjög góð kynning fyrir sveitarfélagið og það að svona margir koma og kynnast bænum og aðstöðunni skilar sér margfalt til baka,“ sagði Ásta. Við erum opin fyrir nýjum íþróttagreinum – Nú hefur sveitarfélagið verið þekkt fyrir að byggja upp góða aðstöðu og hlúa vel að íþróttafólki. Þið hljótið að hafa lagt töluverða fjármuni í þessa uppbyggingu? „Já, þetta er reyndar búið að gerast á þó nokkuð löngum tíma en kannski hefur mest- ur þungi verið á framkvæmdum hin síðustu ár, eftir að ákveðið var að sækjast eftir að halda Landsmótin. Það er búið að leggja mikla pen- inga í þetta en ég held að bæjarbúar almennt séu mjög ánægðir og sjái að þeir eru að fá heilmikið fyrir peninginn. Við erum svo sem ekki hætt en við ætlum að fara í það að byggja við sundlaugina á næstunni og erum í hönnunarferli með verkefnið. Ráðgert er að stórbæta búningsaðstöðu og afgreiðslu sem er frekar þröng og úr sér gengin í dag. Við erum að fara í það að bæta íþróttaaðstöðuna á Stokkseyri og ennfremur hefur verið sett fjármagn í að bæta göngu- og hjólastíga sem má segja að sé hluti af uppbyggingu íþrótta- mannvirkja. Almenningur notar þetta sér til heilsubótar mjög mikið og þá sérstaklega sá hópur sem æfir ekki beint íþróttagreinar. Við erum að leggja núna göngu- og hjólastíga milli Eyrarbakka og Stokkseyrar og vonumst til að geta síðan tengt Selfoss og strandbæ- ina okkar með stíg á næstu árum. Þetta hjálp- ar allt í því að auka fjölbreytnina hvað varðar íþróttaiðkun og hreyfingu almennt. Sveitar- félagið hefur síðan verið mjög opið fyrir því að fá hugmyndir um nýjar íþróttagreinar sem almenningur hefur viljað byrja að stunda. Við höfum leitast eftir því að finna húsnæði eða aðra aðstöðu fyrir þær greinar án þess að það þurfi að rjúka til og byggja ný hús heldur að nýta ónýtt húsnæði sem við höfum átt. Við höfum í þessu sambandi t.d. getað hýst taekwondo og júdódeildina í rýmum sem voru ekki í notkun en henta ágætlega fyrir þá starfsemi. Karatefélag Suðurlands hefur fengið inni hjá okkur í kennslustofu sem hentar vel fyrir þá starfsemi og mótocross- deildina höfum við einnig aðstoðað við að byggja upp braut og húsnæði. Það er því ýmis- legt í boði,“ sagði Ásta. Íþróttaaðstaða í hjarta bæjarins Hún sagði ennfremur það skipta mjög miklu máli að hafa þessa þætti í lagi svo íbú- um sveitarfélagsins liði vel. Hún sagðist finna það mjög vel að bæjarbúar kunna vel að meta þessa aðstöðu og líka það að hún er að miklu leyti miðsvæðis í bænum. Foreldrar og að- standendur barna þurfa því ekki að vera skutlast með börnin. Mjög margir eru í göngu- færi við íþróttasvæðið. „Það var mikið gæfuspor þegar ákveðið var að fara ekki að flytja íþróttaaðstöðuna út fyrir bæinn eins stóð til fyrir nokkrum árum. Hún er í hjarta bæjarins og þar á hún svo vel heima og stuðlar enn frekar að því að fólk nýti sér hana. Við erum mjög ánægð með nýting- una en það er slegist um hverja einustu mín- útu í íþróttahúsinu og vellirnir eru í stans- lausri notkun. Þetta er bara allt að skila sér vel út í samfélagið,“ sagði Ásta. Íbúarnir bíða spenntir – Hlakka Selfyssingar til mótsins? „Bæjarbúar eru mjög spenntir en það kom þeim mörgum á óvart í fyrra hvað Unglinga- landsmótið var stór viðburður. Þeir tóku mjög vel þátt í því verkefni og voru ekki síður ánægðir yfir hve keppendur og gestir voru sáttir svo að ég get sagt að íbúarnir bíði spenntir eftir því að Landsmótið bresti á og séu tilbúnir að taka á móti fólki með bros á vör. Þetta hefur í alla staði mjög góð áhrif á bæjarlífið og er um leið góð kynning. Það er bara tilhlökkun að takast á við þetta verkefni. Við bíðum spennt og ætlum að taka vel á móti fólki og vonandi á það eftir að eiga góða daga hér hjá okkur meðan á mótinu stendur,“ sagði Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri sveitarfélagsins Árborgar. 27. Landsmót UMFÍ á Selfossi: SKEMMTILEGT, KREFJANDI OG GEFANDI AÐ HALDA ÞETTA MÓT Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar: „Við bíðum spennt og ætlum að taka vel á móti fólki og vonandi á það eftir að eiga góða daga hér hjá okkur meðan á mótinu stendur“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.