Skinfaxi - 01.06.2013, Blaðsíða 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannam ót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T
16. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið
á Höfn í Hornafirði um verslunarmanna-
helgina. Mótið stendur yfir dagana 2.– 4.
ágúst og er undirbúningur fyrir það í full-
um gangi. Unglingalandsmót var síðast
haldið á Höfn 2007 og tókst vel. Að sögn
Matthildar Ásmundardóttur, formanns
unglingalandsmótsnefndar, er mikill
hugur í heimamönnum fyrir mótinu.
Kvöldvökur í knatt-
spyrnuhöllinni
„Undirbúningi miðar vel áfram. Við erum
búin að ráða alla sérgreinastjóra og fram-
kvæmdir ganga samkvæmt áætlun. Við
þurfum ekki að ráðast í neinar stórfram-
kvæmdir að þessu sinni en samt þarf að
ganga frá tjaldsvæðinu, mótokrossbraut-
inni og svo erum við að útbúa strandblak-
velli. Hér hefur risið stór knattspyrnuhöll
sem við ætlum að nýta okkur á Unglinga-
landsmótinu. Þar verður keppt í körfubolta
en við höfum keypt gólfefni sem lagt verð-
ur fyrir keppni í körfuboltanum. Síðan er
ætlunin að breyta út af vananum og halda
kvöldvökur í knattspyrnuhöllinni. Næstu
skref hjá okkur voru að auglýsa eftir sjálf-
boðaliðum og ljúka við að ráða verkefnis-
stjóra. Við búum við frábærar aðstæður
sem gerðar voru fyrir Unglingalandsmótið
2007. Þá var reyndar sundlaugin reyndar
ekki komin upp en hún er viðbót við það
sem var þá til staðar. Það verður því ekki
annað sagt en að aðstæður til mótshalds
séu fyrsta flokks,“ sagði Matthildur.
Áskorun fyrir okkur að
fá að halda þetta mót
Að sögn Matthildar kemur reynslan sem
framkvæmdaaðilar búa yfir frá mótinu
2007 að góðum notum núna. Meistara-
mót Íslands í frjálsum íþróttum 15–22 ára
var haldið á Hornafirði í fyrrasumar og
sagði Matthildur að það hefði verið góð
æfing fyrir Unglingalandsmótið sem væri
samt mun stærra í vöfum.
„Hafnarbúar hlakka til mótsins en almenn
ánægja var með mótið sem við héldum
2007. Það var ekki síst fyrir hvatningu frá
íbúunum sem við sóttum um að halda
mót á nýjan leik. Við ætlum að nota þann
tíma vel sem við höfum fram að mótinu
en það áskorun fyrir okkur að fá að halda
þetta mót og hvatning fyrir allt íþrótta-
starf á Hornafirði,“ sagði Matthildur.
16. Unglingalandsmót UMFÍ á Höfn í Hornafirði:
Matthildur
Ásmundardóttir,
formaður USÚ og
formaður ungl-
ingalandsmóts-
nefndar.
HVATNING FYRIR ÍÞRÓTTASTARF AÐ
HALDA UNGLINGALANDSMÓTIÐ
Matthildur Ásmundardóttir, formaður unglingalandsmótsnefndar á Höfn í Hornafirði: