Skinfaxi - 01.06.2013, Síða 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Þó nokkur umræða og fréttir hafa verið af auk-
inni notkun vefaukandi stera (einnig þekktir
sem anabólískir sterar) ungmenna á Íslandi
auk þess sem svo virðist sem innflutningur
þessara efna hafi stóraukist á síðustu misser-
um. Samkvæmt fréttum gerði tollgæslan tvö-
falt meira magn stera upptækt á fyrstu tveim-
ur mánuðum þessa árs en allt árið í fyrra.
Fyrstu fregnir og tilkynningar um notkun
vefaukandi stera til að bæta styrk og þyngd í
íþróttum koma fram 1954 en allar götur síðan
hafa íþróttamenn notað stera til að bæta
árangur sinn í íþróttum. Nú virðist þróunin
vera sú að einstaklingar, sem ekki eru að
stunda keppnisíþróttir, séu í auknum mæli
farnir að nota stera og þá oftast til að bæta
útlit og ímynd.
Notendur virðast einnig vera að yngjast hin
síðari ár og hefur komið fram fjöldinn allur
af rannsóknum þar sem könnuð er notkun
unglinga á sterum. Í Bandaríkjunum sýna
rannsóknir að á bilinu 3–12% karlkyns ungl-
inga viðurkenna að hafa notað stera ein-
hvern tíma á ævinni en hjá stúlkum er talan
1–2%. Önnur rannsókn sýndi svo að þessum
ungu notendum var síður umhugað um
heilsu sína og þeir höfðu minni þekkingu á
hollu og næringarríku mataræði.
Í Þýskalandi sýndi rannsókn gerð hjá not-
endum líkamsræktarstöðva að 13,5% þátt-
takenda höfðu notað ólögleg árangursbæt-
andi efni við æfingar og flestir höfðu útveg-
að sér þau á líkamsræktarstöðvunum en stór
hluti hafði hins vegar fengið efnin hjá lækni
sínum (~40%) og voru jafnvel undir eftir-
liti við notkun þeirra. Þó svo að engar
nákvæmar tölur séu til fyrir Ísland virðist
þetta vera að gerast á álíka máta hér og við
heyrum af unglingum sem eru að nota stera
einungis til að ná fram einhverri líkamsímynd.
Fræðslan og forvarnirnar, sem krakkar fá
vegna þessara efna, eru líklega ekki nægilega
miklar. Í gegnum tíðina hefur verið horft til
aldurshópa í kringum 16–17 ára og eldri í
forvörnum en nú heyrist af krökkum niður
undir fermingaraldur að fikta við þessi efni.
Aukaverkanir og afleiðingar
Notendur stera sjá undraverðan árangur
við upphaf inntöku og vöðvamassi eykst
verulega. Við notkun stera til að ná fram veru-
lega auknum vöðvamassa eru þeir notaðir í
allt að 50–100-földum skömmtum sem annars
væru notaðir í læknisfræðilegum tilgangi.
Þetta gífurlega magn utanaðkomandi efna í
líkamanum veldur því að líkaminn sjálfur
dregur úr og hættir jafnvel eigin framleiðslu
á testósteróni (sem er okkar náttúrulegi vef-
aukandi steri). Þetta rask hefur síðan keðju-
verkun yfir í önnur hormón og starfsemi
líkamans getur orðið fyrir miklu raski. Við
minnkandi testósterónframleiðslu hjá piltum
geta þeir orðið ófrjóir og dæmin sýna að það
tekur ekki nema þrjár vikur á vægum stera-
kúr að stöðva sáðfrumuframleiðslu. Þegar
unglingur, sem er enn að stækka, tekur vef-
aukandi stera eru líkur á því að hann loki
vaxtalínum beina, vöxtur hans stöðvist og
hann muni ekki ná þeirri hæð sem hann
annars hefði náð.
Frést hefur einnig um aukningu í brjósta-
aðgerðum hjá ungum mönnum á Íslandi en
ein af aukaverkunum vefaukandi stera er að
líkaminn reynir að aðlagast nýju ástandi og
Óhugnanleg þróun í notkun stera á Íslandi
Dr. Skúli Skúla-
son, formaður
Lyfjaráðs ÍSÍ.
fer að framleiða aukið magn estrógens sem
leiðir til vefmyndunar í brjóstum. Þessi auka-
verkun er ekki afturkræf og því þarf að fjar-
lægja brjóstin með skurðaðgerð. Aukaverk-
anir eru ekki allar eins fljótar að koma fram
og þá sérstaklega ekki þær sem eru alvarlegri
eins og áhrif á hjarta og æðakerfi, en mörg
ár getur tekið fyrir þessar aukaverkanir að
koma fram.
Líkur á hjarta- og æðasjúkdómum aukast
og fjöldi dauðsfalla langtíma steranotenda
vegna hjartaáfalla hefur verið tengdur þessari
notkun. Eðlilega tengist hversu miklar líkur
eru á aukaverkunum, hvað notkunin er löng
og í hve miklu magni. Mikil hætta er þó
einnig til skemmri tíma og sérstaklega hjá
ungum neytendum, en mörg dæmi eru
erlendis um sjálfsvíg sem tengd hafa verið
steranotkun. Þar hafa unglingar hafið notkun
og hætt of hratt sem getur valdið miklu ójafn-
vægi í hormónakerfi líkamans, sem mikið
þunglyndi getur fylgt. Innlend rannsókn hef-
ur sömuleiðis bent í þessa átt, að unglingar
sem taka eða hafa tekið inn stera voru mun
líklegri til að stofna til eða lenda í slagsmál-
um en þeir sem aldrei höfðu neytt stera.
Brýnt er að fylgjast með unglingum
og líta eftir þeim einkennum sem geta
fylgt steranotkun, eins og óeðlilega mikilli
aukningu á vöðvamassa á stuttum tíma,
skapgerðarbreytingum og mikilli bólumynd-
un á baki og öxlum (erfitt þó að aðgreina frá
eðlilegu ástandi vegna unglingabóla).
Dr. Skúli Skúlason,
formaður Lyfjaráðs ÍSÍ
Þann 6. júní sl. var haldið í þjónustumið-
stöð Ungmennafélags Íslands útgáfu-
hóf vegna endurútgáfu bókarinnar
Verndum þau. Á vegum Æskulýðsvett-
vangsins (ÆV), samstarfsvettvangs Ung-
mennafélags Íslands, Bandalags íslenskra
skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, var höfund-
um bókarinnar, þeim Ólöfu Ástu
Farestveit og Þorbjörgu Sveinsdóttur,
afhentur þakklætisvottur fyrir tíu ára
samstarf.
Á þessum tíu árum hafa þær, í sam-
starfi við ÆV, haldið yfir hundrað Vernd-
um þau námskeið sem þúsundir manna
hafa sótt. Viðfangsefni námskeiðanna er
mikilvægi þess, fyrir þá sem starfa með
börnum og ungmennum, að vera með-
vitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, geta
lesið í vísbendingar um að vanræksla
eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt,
líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað
og vita hvernig bregðast eigi við ef slík
Endurútgáfa
bókarinnar
Verndum þau
mál skjóta upp kollinum. ÆV telur mjög
mikilvægt að bjóða þessi námskeið og
standa fyrir þeim. Þau auka fagkunnáttu
fólks og gera það betur í stakk búið til að
hlúa enn frekar að velferð barna og ung-
menna sem fólk er að starfa með. Æsku-
lýðsvettvangurinn óskar þeim Ólöfu Ástu
og Þorbjörgu til hamingju með nýja og
endurbætta útgáfu af bókinni og hlakkar
til áframhaldandi samstarfs.
Frá vinstri: Sæmundur Runólfsson, framkvæmda-
stjóri UMFÍ og formaður ÆV, Ólöf Ásta Farestveit,
höfundur bókarinnar, Þorbjörg Sveinsdóttir, höf-
undur bókarinnar, og Ragnheiður Sigurðardóttir,
verkefnastjóri ÆV.