Skinfaxi - 01.06.2013, Blaðsíða 49
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 49
Sértu hress og fróðleiksfús
fjöri skaltu dreifa.
Farðu strax á 50+
ferskan búk að hreyfa.
Við byrjum að þessu sinni á skemmti-
legri og viðeigandi stöku. Hana sendi
hagyrðingur sem kallar sig 3S. Mig
grunar að hann hafi mætt á Landsmót
UMFÍ 50+ sem var á dögunum í Vík
í Mýrdal. Við hvetjum alla til að vera
á tánum og yrkja t.d. um landsmótin,
héraðsmót eða hvaðeina sem getur
verið tilefni stökugerðar.
Þegar aldurinn færist yfir, er um að
gera að halda sér gangandi með reglu-
legri hreyfingu. Þrátt fyrir góða heilsu
þá er nánast óhjákvæmilegt fyrir flesta
að kíkja á doktorinn annað slagið, eins
og Ármann Þorgrímsson kynntist á
dögunum en þá þurfti hann að leggjast
undir hnífinn eins og hann orðaði það.
Þá varð til þessi staka:
Heilsufar er heldur slæmt,
á hugann sækja daprar kenndir,
aldrei sá á afturkvæmt
sem undir manna hendur lendir.
Vísnaþáttur
Höskuldur Búi Jónsson
Ármann átti þó afturkvæmt og fékk
læknirinn þessa stöku að launum:
Ennþá hækkar aldur minn,
áfram veginn miðar,
þér tókst ekki í þetta sinn
að þoka mér til hliðar.
Í seinasta þætti setti ég fram nokkra
fyrriparta og óskaði eftir botnum.
Nokkrir bárust þættinum, en ekki er
hægt að birta þá alla:
Mikið vísnamaraþon
mætir vilja yrkja.
Heitum á Jónas Hallgrímsson
hugann til að styrkja.
Hér var það Jón Ívarsson sem botnaði.
Sífellt hærra sólin rís,
syngur nærri spóinn.
Landsmót núna landinn kýs,
lifna tekur Flóinn.
Hér var það áðurnefndur 3S sem botn-
aði og minnti um leið á Landsmót UMFÍ
á Selfossi sem haldið verður 4.–7. júlí.
Seinni fyrriparturinn hér að ofan er
með innrími – en þar ríma saman
hærr(a) og nærr(i). Enginn af þeim
sem sendu inn botn að þessu sinni klár-
uðu vísuna á þann hátt, en þá yrði vísan
hringhend. Einn af okkar færustu hring-
hendusmiðum, Sigmundur Benedikts-
son, gaf út tvær ljóðabækur í fyrra. Í
fyrri bókinni, Þegar vísan verður til, má
finna margar góðar hringhendur og
meðal annars þessa um stökuna:
Meðan vakir óðsnilld ein
og andartakið bálar,
breiðir stakan björt og hrein
blóm á akur sálar.
Hér eru svo tveir fyrripartar:
Þar sem fólkið fagnar þér
flestir kalla heima.
Landsmót kæta, ljúf og mæt
lífsins bæta gæði.
Ég hvet sem flesta til að botna þessa
fyrriparta og senda þættinum, auk frum-
ortra vísna. Hægt er að senda efni á
Skinfaxa, Sigtúni 42, 105 Reykjavík, eða
með tölvupósti á hoskibui@gmail.com.
Kvæðakveðja
Höskuldur Búi Jónsson
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA