Skinfaxi - 01.03.2014, Page 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
L
eikdeild Ungmennafélags Biskups-
tungna sýndi í mars leikritið Barið í
brestina eftir Guðmund Ólafsson, í
leikstjórn Gunnars Björns Guðmundsson-
ar. Óhætt er að segja að leikritið hafi held-
ur betur slegið í gegn. Aðsókn var mjög
góð og sló öll met. Sýningarnar fóru fram í
Aratungu og er þetta leikrit það 28. í röð-
inni sem ungmennafélagið hefur staðið
fyrir síðan Aratunga var vígð árið 1961.
Stórskemmtilegur gamanleikur
Barið í brestina er stórskemmtilegur gaman-
leikur sem gerist á heilbrigðisstofnun þar
sem starfsmennirnir taka starf sitt misjafn-
lega alvarlega. Von er á velferðarráðherra
til að skoða magaspeglunartæki sem hann
lét ráðuneyti sitt fjármagna fyrir stofnun-
ina. En starfsfólkið ákvað þá að hagstæðara
væri að nota fjármunina til að fjárfesta í
Gamanleikurinn Barið í brestina
sýndur í Aratungu
færeyskum knattspyrnumanni fyrir lið bæj-
arins. Upphefst þá mikill ærslagangur til
að sannfæra ráðherrann um að tækið hafi
verið keypt og er það mikið sjónarspil.
Mikið lagt í sýninguna
Mikið er lagt í sýninguna og er leikritið í
alla staði vel heppnað. Leikararnir fara á
kostum, sviðsmyndin er vel úr garði gerð,
búningar, tæknibrellur og lýsing er allt vel
útfært. Söngur er stór hluti af sýningunni
og er sá flutningur til fyrirmyndar. Það er
ótrúlega dýrmætt fyrir samfélag að eiga
eins öfluga leikdeild og raun ber vitni. Að
setja upp leikrit krefst mikillar vinnu, tíma
og þolinmæði þeirra sem að sýningunni
standa en allt auðgar og bætir þetta mann-
lífið hér í kring og gefur því mikla ánægju.
Allir þeir aðilar sem að þessu standa eiga
svo sannarlega hrós skilið.
Undirritaður fór á sýninguna 21. febrúar
og var stemningin einstök en á þriðja
hundrað gesta var þá í Aratungu og fóru
allir glaðir heim.
Helgi Kjartansson, formaður Ungmenna-
félags Biskupstungna.
Leiklistarstarf