Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 25

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 25
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25 G rindvíkingar hafa fundið leið til að draga úr brottfalli barna úr íþróttum og auka fjölbreytni í æfingum. Hlut- fall barna, sem æfa íþróttir í bænum, er hátt og kostnaður við fyrirkomulagið er lítill. Bærinn og ungmennafélagið hafa tekið höndum saman til að efla íþrótta- iðkun barna og ungmenna. Bærinn niður- greiðir æfingagjöld og í staðinn skuld- bindur félagið sig til að hafa samræmd gjöld á milli deilda. Þetta þýðir að fyrir hvert barn á aldrinum sex til sextán ára eru greiddar 22.500 krónur á ári eða 1.850 krónur á mánuði og má fyrir það æfa allar íþróttir sem í boði eru. Deildirnar skipta fjármunum á milli sín og fyrir vikið starfa þær saman í stað þess að keppa um krón- urnar. Börnin fá tækifæri til að prófa ólíkar greinar og finna það sem hentar þeim best. „Bærinn og Ungmennafélag Grindavík- ur eru með samning sín í milli í barna- og unglingastarfi frá 6 til 16 ára þar sem bær- inn greiðir ungmennafélaginu ákveðna upphæð á ári sem skiptist á milli deilda eftir ákveðinni formúlu sem þær koma sér saman um. Æfingagjöldin á ári eru rúmar tuttugu þúsund fyrir einstaklinginn og getur hann æft allar þær greinar sem í boði eru. Þetta hefur mælst ákaflega vel fyrir en Grindavíkurbær greiðir nú á milli 40 og 50 þúsund krónur með hverju barni. Mesta brottfall úr íþróttum er á aldrinum 16–18 ára eins og rannsóknir sýna en með þessu átaki ætlum við að reyna að sporna við þessari þróun. Það verður fróðlegt að Grindvíkingar finna leið sem dregur úr brottfalli barna í íþróttum sjá hvernig þetta kemur út hjá okkur með tímanum,“ sagði Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkur, í samtali við Skinfaxa. Þ ann 19. mars sl. undirrituðu Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Æskulýðsvettvangurinn (ÆV) samning um ráðstöfun á fjárframlagi til samtakanna. Í samn- ingnum kemur fram að Æskulýðsvettvangurinn sé vettvangur sjálfboðaliðasamtaka sem leggi sérstaka áherslu á virka þátttöku ungs fólks í samfélaginu og í þeim tilgangi skipuleggur hann fjölbreytt félags- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni. Markmiðið með fjárstuðningi ríkisins er að gera ÆV kleift að inna þetta verkefni af hendi. Stuðningur ríkisins tekur einnig mið af starfi ÆV sem félags-, forvarna-, uppeldis- og menntunar- vettvangur barna og ungmenna. Í samningnum er að auki m.a. kveðið á um að Æskulýðsvett- vangurinn eigi að hafa aðgerðaáætlun til að bregðast við mál- um er tengjast kynferðislegu ofbeldi eða einelti. Einnig er í samningnum kveðið á um að: • Æskulýðsvettvangurinn vinni gegn hatursorðræðu á netinu og eða í starfinu, vinni með verkefnið Verndum þau í samstarfi við höfunda bókarinnar, að verkefninu Þátttaka er lífsstíll er mið- ar að því að auka þátttöku ungmenna í félags- og tómstunda- starfi og að verkefnum gegn einelti og hvers konar ofbeldi. • Æskulýðsvettvangurinn vinni með KOMPÁS og Litla-kompás, m.a. með námskeiðum fyrir þjálfara og kynningu á handbókum. • Æskulýðsvettvangurinn standi fyrir námskeiðum og fræðslu- verkefnum sem séu öllum opin þar sem því verður við komið. Samningur mennta- og menningarmálaráðuneytis við Æskulýðsvettvanginn Frá vinstri: Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Illugi Gunnars- son, mennta- og menningarmálaráðherra, Sæmundur Runólfsson, formaður ÆV, Ragnheiður Sigurðar- dóttir, verkefnastjóri ÆV, Júlíus Aðalsteinsson, málefnastjóri BÍS, og Erlendur Kristjánsson, deildarstjóri íþrótta- og æskulýðsdeildar mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.