Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 33

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 33
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 33 Héraðsþing HSK var haldið í 92. sinn í félagsheimilinu á Borg í Grímsnesi laugar- daginn 8. mars sl. Þing HSK hafa þrisvar sinnum verið haldin á Borg, þ.e. árin 1968, 1976 og 2000. Vel yfir 90 fulltrúar mættu á þingið af 122 sem áttu rétt til setu. Fjöldi mála var afgreiddur á þinginu. Allir þeir sem komu að framkvæmd 27. Landsmóts UMFÍ, sem HSK hélt á Selfossi sl. sumar, hlutu þakkir fyrir störf sín. Íþróttafólk ársins var heiðrað og til- kynnt að Guðmunda Brynja Óladóttir, knattspyrnukona frá Selfossi, hefði verið valin íþróttamaður HSK 2013. Einnig voru veitt ýmis sérverðlaun. Umf. Selfoss var stigahæsta félagið, Umf. Hekla fékk unglingabikar HSK og frjálsíþróttadeild Héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins: Engilbert Olgeirsson sæmdur gullmerki UMFÍ E ngilbert Olgeirsson var sæmdur gullmerki UMFÍ á héraðsþingi HSK 8. mars sl. Engilbert er fædd- ur á Selfossi árið 1966. Hann ólst upp í Nefsholti í Holtum og vann við hefð- bundin sveitastörf á búi foreldra sinna og sundlaugarvörslu á Laugalandi fram að unglingsárum. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugar- vatni 1986 og hélt svo áfram námi við Íþróttakennaraskólann og útskrifaðist sem íþróttakennari 1988. Engilbert hefur látið til sín taka í félagsmálum íþrótta- og ungmenna- félaga og var m.a. formaður Ungmenna- félagsins Ingólfs um skeið á mennta- skólaárum sínum. Þá var hann formað- ur körfuknattleiksnefndar HSK um þriggja ára skeið. Hann vann að stofnun Íþróttafélagsins Garps árið 1992 og sat í stjórn þess um tíma. Þá var Engilbert kjörinn í stjórn ÍSÍ árið 2000 og sat þar í framkvæmdastjórn til ársins 2009. Eftir að Engilbert hóf störf hjá HSK hef- ur meginreglan verið sú að hann vinnur með nefndum sambandsins en situr ekki í þeim. Undantekning er ritnefndir um Umf. Þórs foreldrastarfsbikar HSK. Þá var Kristín Stefáns- dóttir, Umf. Vöku, valin öðling- ur ársins. Þórir Haraldsson, Umf. Sel- foss, var sæmdur gullmerki HSK og Helgi Kjartansson, Umf. Biskupstungna, og Þor- björg Vilhjálmsdóttir, Íþrótta- félaginu Suðra, voru sæmd silfurmerki HSK. Helga Guðrún Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, sæmdi Engilbert Olgeirsson, fram- kvæmdastjóra HSK, gullmerki UMFÍ. Jóhannes Óli Kjartans- son, Umf. Selfoss, Bjarnheiður Ástgeirsdóttir, Umf. Selfoss, og Guðmundur Jónasson, Umf. Heklu, hlutu starfsmerki UMFÍ. Stjórn HSK skipar eftirtalið fólk: Guðríður Aadnegard, for- maður, Guðmundur Jónasson, gjaldkeri, Bergur Guðmunds- son, ritari, Örn Guðnason, vara- formaður, og Fanney Ólafsdótt- ir, meðstjórnandi. Í varastjórn eru Anný Ingimarsdóttir, Gestur Einarsson og Jóhannes Óli Kjartansson. sögu Sigurðar Greipssonar og sögu HSK. Þá hefur hann einnig setið í ýmsum nefndum á vegum UMFÍ, FRÍ og GLÍ. Honum hefur tekist að gegna hinu vandasama og umfangsmikla starfi framkvæmdastjóra HSK frá 1991 á þann hátt að flestir telja það til fyrirmyndar enda hefur honum alltaf þótt gaman í vinnunni. „Ég lít svo á að ég hafi verið sæmdur gull- merki UMFÍ fyrir þau störf sem ég inni af „Ég nýt þess að vinna fyrir hreyfinguna“ hendi fyrir hreyfinguna. Ég hef alltaf lagt mig fram við að vinna að fram- gangi hreyfingarinnar. Þetta er líka viðurkenning fyrir það starf sem ég vinn fyrir mitt samband. Ég nýt þess að vinna fyrir hreyfinguna, hef alltaf haft gaman af vinnunni, alltaf eru ný verkefni til að takast á við, og ekki síður að vinna með góðu fólki,“ sagði Engilbert Olgeirsson í samtali við Skinfaxa. Engilbert sagðist alltaf hafa haft gaman af félagsmálum og að þau væru eitt af aðaláhugamálum hans. Hann væri ennfremur mikill íþrótta- unnandi. „Ég hef starfað lengi í hreyfing- unni og þetta hefur verið gefandi og skemmtilegur tími. Ég tel mig ennþá eiga erindi við hreyfinguna og meðan að svo er, er ég ekkert á förum úr þessu. Þetta er fjölbreytt starf og skemmtilegt vinnu- umhverfi og ég hef verið heppinn með samstarfsfólk í sambandinu. Maður hefur líka kynnst góðu fólki í hreyfingunni um allt land,“ sagði Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK. Mynd að ofan: Frá vinstri: Jóhannes Óli Kjartansson, Bjarnheiður Ást- geirsdóttir, Helga Guðrún Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, Guðmundur Jónasson og Engilbert Olgeirsson. Mynd til vinstri: Frá vinstri: Guðríður Aadnegard, formaður HSH, Þórir Haraldsson, Þorbjörg Vilhjálmsdóttir og Helgi Kjartansson. Engilbert Olgeirsson við setningu 27. Landsmóts UMFÍ á Selfossi 2013.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.