Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 23
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23 Nám í íþróttalýðháskóla er fjölbreytt og í raun stökkpallur í framhaldsnám F ulltrúar frá íþróttalýðháskólanum í Sønderborg voru á Íslandi á dögunum í þeim tilgangi að kynna skólann og þá möguleika sem í boði eru fyrir íslensk ungmenni. Framhaldsskólar voru heim- sóttir og eins var haldinn opinn kynningar- fundur í þjónustumiðstöð UMFÍ. Íþróttalýðháskólar bjóða upp á skemmti- legt og spennandi nám fyrir ungt fólk á átjánda ári og eldra. Skólarnir leggja áhersl- ur á mismunandi íþróttagreinar en flestir bjóða þeir upp á mjög fjölbreytt námsefni. Námið er krefjandi og uppbyggjandi og hver dagur býður upp á ný ævintýri. UMFÍ er í samstarfi við níu danska lýðháskóla. Skemmtilegt og uppbyggi- legt nám í Sønderborg Íþróttalýðháskólinn í Sønderborg er í frábæru umhverfi rétt við landamæri Dan- merkur og Þýskalands. Hægt er að leggja stund á allar almennar íþróttagreinar, t.d. fótbolta, handbolta og badminton. Íslensk ungmenni hafa um langt skeið sótt nám í lýðháskólann í Sønderborg og er sam- dóma álit þeirra að skólinn bjóði upp á skemmtilegt og uppbyggilegt nám. Dvölin hafi verið frábær upplifun og góður skóli í lífinu. Karl F. Jörgensen Jóhannsson og Michael Willemar, skólastjóri Íþróttalýð- háskólans í Sønderborg, komu til Íslands í mars í þeim tilgangi að kynna skólann fyrir ungmennum í framhaldsskólum og víðar. Karl er fyrrverandi kennari og nemandi við skólann en nú vinnur hann sem lýð- háskólaráðgjafi í verkefnum sem heita Unge med power. Skiptir máli að fá nemend- ur frá mörgum löndum „Þetta er í fjórða sinn sem skólinn kynn- ir starfsemi sína á Íslandi. Íslensk ungmenni hafa sótt skólann í mörg ár og því má segja að það sé komin hefð á dvöl þeirra þar eins og annarra ungmenna frá hinum Norðurlöndunum. Okkur finnst skipta máli að skólann sæki nemendur frá mörgum löndum til að ná fram blandaðri menningu. Við erum ánægðir með ferðina til Íslands en auðvitað hefur verkfall kenn- ara í framhaldsskólum sett strik í reikning- inn. Við reyndum samt að gera sem best úr ferðinni. Þessi kynning á vonandi eftir að skila árangri og við eigum eftir að sjá fleiri Íslendinga í skólanum á næstunni,“ sagði Karl. Hann sagði skólann hafa átt gott samstarf við UMFÍ og aðra aðila hér á landi. Munum kynna skólann árlega á Íslandi „Nám í íþróttalýðháskóla gefur mikla möguleika og er í raun stökkpallur út í framhaldsnám í Danmörku og á hinum Norðurlöndunum. Íslendingum hefur aðeins fækkað á síðustu árum og þess vegna ákváðum við að fara í herferð í fyrra sem er farin að skila sér. Að sjálfsögðu hafði kreppan áhrif hvað fækkun varðaði en það hefur mjög jákvæð áhrif að fara um og kynna skólann. Það verður árlegur viðburð- ur hér eftir að fara til Íslands og kynna skól- ann og við vonum að sem flestir setji sig í samband við okkur og afli sér upplýsinga,“ sagði Karl. Samblanda af íþróttum og undirbúningur fyrir lífið Karl sagði að nám í íþróttalýðháskóla væri fjölbreytt og afar spennandi kostur. Boðið er upp á nám sem er sambland af íþróttum og undirbúningi fyrir lífið og um leið fyrir framhaldsnám. Margir koma til náms í skólanum að loknu framhalds- skólanámi og eru ekki búnir að ákveða næstu skref hvað framhaldsnám áhrærir. Karl sagði nám í íþróttalýðháskóla góða millilendingu fyrir annað nám, t.d. í Dan- mörku sem mörg íslensk ungmenni velja. Á meðal dvölin stendur í Sønderborg fara nemendur í námsferðir í 2–3 vikur á skíði í Frakklandi og á Ítalíu, á íþróttasetur á Kanaríeyjum og eins til Afríku en þessar ferðir bjóða upp á marga möguleika. Afríkuferðin er nýjung og er ætluð til að kynnast framandi menningu og víkka sjóndeildarhringinn. Blanda af námi og ferðalögum „Við getum sagt að dvöl í íþróttalýð- háskóla sé blanda af námi í skólanum sjálfum og ferðalögum með góðum skóla- félögum. Ég hvet alla til að kynna sér þenn- an möguleika og þá er um að gera að hafa samband, fara inn á heimasíðuna www. ihs.dk þar sem allar helstu upplýsingar koma fram og svo er hægt að fylgjast með okkur á Facebook,“ sagði Karl. Nemendur Versl- unarskóla Íslands sýndu kynning- unni mikinn áhuga. Karl F. Jörgensen Jóhannsson og Michael Willemar, skólastjóri Íþrótta- lýðháskólans í Sønderborg, á kynn- ingunni í Verslunarskóla Íslands.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.