Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Andrea Dan Árnadóttir vann lokaverkefni til B.A.-prófs úr Skinfaxa: Kom mér einna helst á óvart hvað efnið er fjölbreytt A ndrea Dan Árnadóttir vann lokaverk- efni til B.A.-prófs í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands sem er efnisskrá Skinfaxa. Efnisskráin hef- ur að geyma allar þær greinar, samtals 311, sem birtust í Skinfaxa á árunum 2011 og 2012. Skráin skiptist í aðalskrá, efnis- orðaskrá og mannanafnaskrá. Á fyrstu síðum verkefnisins er fjallað um uppbyggingu þess og tilgang. Einnig er fjallað um Ungmennafélag Íslands, tíma- ritið Skinfaxa og helstu verkefni félagsins. Fjallað er um gerð verkefnisins og ýtar- legar leiðbeiningar ásamt dæmum er að finna fyrir hverja skrá fyrir sig. Í inngangi ritgerðarinnar segir m.a.: „Ungmennafélag Íslands er landssamtök allra ungmennafélaga á landinu sem eiga sér merkilega og yfir hundrað ára sögu. Starfið, sem unnið er í hreyfingunni, er ómetanlegt bæði börnum, unglingum og fullorðnum og hafa margir landsmenn notið góðs af starfsemi UMFÍ. Eitt af mörg- um verkefnum félagsins í áranna rás hefur verið útgáfa tímaritsins Skinfaxa. Tímaritið hefur verið gefið út frá árinu 1909 og til dagsins í dag og er aðgengilegt á www. timarit.is og á heimasíðu Ungmenna- félags Íslands. Mikið og merkilegt efni hefur litið dagsins ljós í Skinfaxa, svo sem fréttir af þeim verkefnum sem eru í gangi hverju sinni, greinar um forvarnir og fréttir frá aðildarfélögum. Til að þetta efni nýtist ennþá betur og jafnvel fleirum en hingað til, þá er hér ráðist í gerð efnisskrár fyrir Skinfaxa, tímarit Ungmennafélags Íslands. Verkefnið er fólgið í því að lesa og greina efni þeirra greina sem birtust í Skinfaxa á árunum 2011–2012 og gefa þeim efnis- orð. Eftir að greinunum eru gefin efnis- orð eru efnisorðin tekin saman og búnar til skrár úr þeim. Þessum skrám er ætlað að auðvelda lesendum að finna greinar eftir efni þeirra. Markmiðið með gerð efnisskrárinnar er að gera efni Skinfaxa aðgengilegra öllum þeim sem hafa áhuga á starfi Ungmennafélagshreyfingarinnar eða íþrótta almennt sem og þeim sem vilja afla sér frekari þekkingar á starfinu. Efni tímaritsins er fjölbreytt svo sem fréttir af þeim verkefnum sem eru í gangi hverju sinni, greinar um forvarnir og fréttir frá aðildarfélögum.“ „Ástæðan fyrir því að ég ákvað að nota Skinfaxa í ritgerð minni var að ég hef ver- ið viðloðandi íþróttir og fimleika. Ég fór líka á sínum tíma á vegum UMFÍ í íþrótta- lýðháskóla í Danmörku og mig langaði þannig að vinna ritgerðina úr frá íþrótta- tengdu efni í lokaverkefninu. Þetta var blað sem mér fannst spennandi og ég lét slag standa. Ég keppti einu sinni á Landsmóti með UMSK á Sauðárkróki. Mér fannst ritgerðarvinnslan skemmtileg, hún var nákvæmisvinna og gaman að lesa öll blöðin á tímabilinu 2011–2012. Það kom mér einna helst á óvart hvað efnið er fjölbreytt og margt áhugavert að lesa úr hreyfingunni,“ sagði Andrea Dan Árnadóttir. Andrea sagðist alltaf hafa verið ákveðin að skrifa um þetta efni og það hefði tekið um þrjá mánuði sumarið 2013. Andrea Dan vinnur nú í Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur. Auk þess er hún dómari fyrir Stjörnuna í áhaldafimleikum. Hún var reyndar að þjálfa en hætti því um síðustu áramót, eða er í smápásu eins og hún orðaði það. Góð þátttaka var í almenningsverkefnum UMFÍ síðastliðið sumar. Viðurkenningar hafa verið veittar einstaklingum sem voru dug- legastir í verkefnunum Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga og Fjöl- skyldan á fjallið. Inga Birna Tryggvadóttir hreyfði sig í 103 daga í verkefninu Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga. Jón Hjaltason hreyfði sig í 101 dag, Eyrún Baldvinsdóttir í 98 daga, Sigurður Ingvarsson í 94 daga, Gróa María Þórðardóttir í 90 daga, Kristín G. Páls- dóttir í 66 daga, Kristján Björgvinsson í 60 daga og Gústav Sveinsson hreyfði sig í 50 daga. Viðurkenningar fyrir að ganga á flest fjöll fengu Guðbjartur Guðbjartsson sem gekk á 111 fjöll og Ástríður Helga Sigurðardóttir sem gekk á 68 fjöll. Verkefnið Fjölskyldan á Viðurkenningar veittar fyrir þátttöku í almenningsverkefnum UMFÍ fjallið gengur út á að sambandsaðilar UMFÍ tilnefna fjöll í verkefnið á hverju ári. Fólk er svo hvatt til að ganga á fjöllin og rita nafn sitt í gestabækur sem þar er komið fyrir. Heppnir göngugarpar eru síðan dregnir út og fá glaðning. Eftirfarandi einstaklingar voru dregnir út fyrir árið 2013: Þorsteinn Freyr Bender sem gekk á Stóra-Dímon, Steinþóra Guðmunds- dóttir sem gekk á Búrfell, Árný Jóhannes- dóttir sem gekk á Úlfarsfell, Sigurbjörg Baldursdóttir sem gekk á Snók, Jón Hákon Ágústsson sem gekk á Bíldudalsfjall og Þorsteinn Jakobsson sem gekk á Kollufjall. Ungmennafélag Íslands þakkar öllum sem tóku þátt í verkefninu og vonast til að sjá sem flesta taka þátt í verkefnum UMFÍ næsta sumar.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.