Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Nafn Hafdísar Sigurðardóttur, frjálsíþróttakonu í Ungmennafélagi Akureyrar, hefur ómað í eyrum íþróttaáhugafólks um nokkra hríð og kemur til af góðu en árangur hennar hefur skipað henni á bekk á meðal bestu frjálsíþróttamanna landsins. Það hefur verið gaman og áhugavert að fylgjast með þessari stúlku, en eljusemi, þrautseigja og ástundun hafa fleytt henni langt. Á mín bestu ár eftir Hafdís, sem er 27 ára gömul, lítur björtum augum til framtíðarinnar og segist í viðtali við Skinfaxa eiga bestu árin eftir. Það er ekkert ókeypis í þessum heimi og því fá íþróttamenn að kynnast sem þurfa að fara um langan veg til keppni. Hafdís hefur lengst- um þurft að standa undir kostnaði af íþrótta- iðkun sinni sjálf og enn sem komið er hefur hún ekki fengið styrk til æfinga og keppni úr Afrekssjóði. Hafdís leggur stund á iðjuþjálf- unarnám við Háskólann á Akureyri auk þess sem mikill tími fer í æfingar. Það er ekki að ástæðulausu sem Hafdís þarf að skipuleggja tíma sinn vel. Það gengur eftir því að árangur- inn talar sínu máli. Íslandsmet í langstökki Hafdís bætti Íslandsmetið í langstökki innanhúss á Meistaramóti Íslands í fjölþraut- um í febrúar þegar hún stökk 6,45 m. Þessi árangur Hafdísar er betri en utanhússmet hennar í greininni frá því sl. sumar en þar á hún lengst 6,36 m. Ritstjóri Skinfaxa hitti Hafdísi á dögun- um, en í byrjun mars tók hún sér vikupásu frá æfingum áður en æfingar fyrir tíma- bilið hæfust fyrir alvöru. Eingöngu æft frjálsar „Áhuginn á íþróttum kviknaði þegar ég var lítil stelpa. Báðar eldri systur mínar byrj- uðu líka snemma að æfa frjálsar íþróttir á Laugum. Við æfðum í upphafi á Bjarmavelli en síðan fór ég reglulega að fara á Laugar. Ég fór aldrei í aðrar íþróttir og er því eingöngu búin að æfa frjálsar íþróttir frá unga aldri eða í kringum tuttugu ár. Það er varla að maður trúi því að árin í þessu séu orðin svona mörg. Þetta er orðinn langur tími en á hinn bóginn ofsalega skemmtilegur. Ef ég á segja alveg eins og er tel ég mig eiga mín bestu ár eftir,“ sagði Hafdís. Þarf vilja, þrautseigju og allt til að þetta gangi – Kemur árangur þinn þér sjálfri á óvart? „Ég ætla ekki að segja já því að ég hef alltaf stefnt að þessu. Kannski tók það lengri tíma en ég hefði óskað. Eins og við vitum skapar æfingin meistarann og ég hef sjálf unnið og stefnt markvisst að þessu. Það tekur tíma að ná svona árangri, maður þarf vilja, þrautseigju og allt til að þetta gangi. Ég held að ég sé búin að leggja rosalega inn fyrir þessu. Ég heyri það á fólki að ég hafi verið dugleg að halda áfram og aldrei viljað gefast upp. Mér finnst þetta stundum fullmikið því að ég var ekki brjálæðislega efnileg þegar ég var yngri. Ég er hins vegar búin að vinna fyrir þessu og það er það sem þarf. Margir í kringum mig hafa hætt og gefist upp en ég hef haldið áfram og stefnt að markmiðum mínum,“ sagði Hafdís. Íþróttamaður verður að hafa skap Þegar Hafdís var spurð hvort hún væri þrjósk svaraði hún: „Já, svolítið. Það er þrjóska í mér og ég er með mikið skap. Ég er líka fljót upp ef mér finnst gengið á rétt minn. Íþróttamaður verður að hafa skap.“ Stefni á Ólympíuleikana – Hvað hyggstu fyrir með þann árangur sem þú hefur náð og gefur hann þér fleiri tækifæri? „Eins og staðan er nákvæmlega núna sé ég fyrir mér að ég haldi áfram með mín mark- mið. Ég stefni að þátttöku á Ólympíuleikun- um 2016 og ég trúi því að ég geti haldið áfram að bæta mig. Ég er ekkert stopp. Líkaminn byrjar ekki að fara niður á við alveg strax, ég er ekki komin á þann aldur og ég held bara að ég sé á besta aldri. Maður er alltaf að þroskast og líkaminn er meðtækilegri og því sé ég ekkert því til fyrirstöðu að ég haldi áfram á minni braut, í það minnsta fram yfir Ólympíuleika. Eftir það sé ég bara til. Aðstaðan kemur, bara spurning hvenær – Hvað með aðstöðuna sem þú býrð við fyrir norðan? „Ég er ekkert að fara héðan frá Akureyri eins og er. Ég er með frábæran þjálfara, Gísla Sigurðsson, sem hefur þjálfað mig í kringum tíu ár. Hann veit nákvæmlega hvað hann er að gera, hann ýtir mér og hvetur mig áfram. Hann sýnir ennfremur góðan stuðning sem skiptir miklu máli í mínum huga. Margir hafa haft á orði að ég búi ekki við nógu góða aðstöðu fyrir norðan. Hún er greinilega nógu góð en að sjálfsögðu myndi ég vilja hafa innanhússaðstöðu eins og í Reykjavík. Það væri algjör draumur að hafa þannig aðstöðu og mér finnst að við íþróttafólk norðan heiða eigum hana fyllilega skilið. Auðvitað snýst þetta allt um fjármagn og það er ekki fyrir hendi í dag. Þessi aðstaða kemur, bara spurning hvenær.“ Vona að fleiri dyr opnist „Árangur minn að undanförnu hefur opn- að möguleika til að keppa á stærri mótum en ég hef áður verið á en það gerist kannski ekki alveg strax. Ég ætlaði til að mynda á sænska meistaramótið. Ég fékk ekki inni á mótinu en miðað við úrslitin þar hefði ég unnið langstökkið. Ég horfi fram á sumarið og vonandi fæ ég fleiri tækifæri þar. Mig vantar 10 sm til að vinna mér keppnisrétt á Evrópumeistaramótið utanhúss en eins og ég segi vona ég að fleiri dyr opnist á næstunni.“ Er bjartsýn á sumarið – Telurðu að þú getir bætt árangur þinn enn frekar? „Já, það tel ég. Það var samt slæmt eftir langstökksmetið innanhúss að fá ekki mót til að keppa á. Það kom smápása eins og gerist alltaf á þessum tíma árs. Nú æfir maður bara á fullu og byggir sig upp fyrir sumarið. Miðað við hvernig veturinn var er ég mjög bjartsýn á sumarið og stefnan er að bæta sig og setja fleiri met,“ sagði Hafdís. HAFDÍS SIGURÐARDÓTTIR „Ég ætlaði að setja Íslandsmet í langstökki og skrá nafn mitt í sögubækurnar. Þegar maður setur sér markmið geta hlutirnir alveg ræst“.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.