Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 13
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 13 Bylting í aðstöðu – Nú virðist manni mikil vakning fyrir frjálsum íþróttum. Hvað veldur því? „Bylting í aðstöðu er líklega stærsta ástæð- an fyrir þessari þróun. Það er gríðarlegur munur að fólk geti æft innanhúss yfir vetrar- mánuðina, fleiri koma til að æfa og árangur- inn verður betri. Frjálsíþróttahöllin í Laugar- dal breytti öllu fyrir frjálsíþróttafólk.“ Gefast aldrei upp – Hvaða veganesti gefur þú ungum frjáls- íþróttamanni í dag? „Að gefast aldrei upp. Ef þér finnst þetta skemmtilegt og þú ert að fá eitthvað út úr því skaltu halda áfram. Ég lenti sjálf oft í alls konar meiðslum, var með beinhimnubólgu í um tveggja ára skeið þar sem ég varð að hætta að hlaupa. Ég hélt áfram, fór aðra leið, hljóp í vatni og lyfti. Tók spretti einu sinni í viku til að halda mér við. Ég vildi alveg sjá fleiri í frjálsum íþróttum og meiri umfjöllun. Boltaíþróttir fá stærsta plássið og fyrir vikið er öðrum íþróttum ýtt til hliðar. Við fáum á hinn bóginn mun meiri umfjöllun en fyrir tíu árum. Við erum loksins að ná athygli sem kem- ur til af bættum árangri. Ég fæ sjálf mun meiri athygli, auðvitað er það gaman og fólk er farið að taka miklu meira eftir manni en áður. Ég sagði einu sinni að ég ætlaði að verða ein besta frjálsíþróttakona Íslandssögunnar og að komast jafnvel eitthvað lengra. Þetta voru stór orð þegar ég sagði þetta á sínum tíma í sjónvarpsviðtali en kannski er þetta að rætast. Ég ætlaði að setja Íslandsmet í langstökki og skrá nafn mitt í sögubækurnar. Þegar maður setur sér markmið geta hlutirnir alveg ræst.“ Veit ekki hvað þarf til að fá styrk úr Afrekssjóði – Hvernig gengur að sameina nám, æfingar og keppni? Ekki lifirðu heldur á loftinu. Hefurðu einhvern fjárhagslegan stuðning til að þú getir einbeitt þér enn frekar í íþróttinni? „Nei, ég get ekki sagt að ég fái fjárhags- legan stuðning. Ég er ekki á neinum styrk. Það var úthlutað úr Afrekssjóði nýverið en ég komst ekki á blað. Ég hef ekki fengið neinar skýringar á því, er líklega ekki nógu góð. Þeir úthlutuðu að vísu eingreiðslu að upphæð 300 þúsund krónur til þriggja einstaklinga sem ég hef ekki séð enn. Einu sinni á ári fæ ég styrk frá Akureyrarbæ, um 150 þúsund, sem er varla fyrir einni keppnisferð á erlendri grund. Ég hef lagt mikið á mig, sett met, svo ég veit ekki alveg hvað maður þarf að afreka til að fá styrk úr Afrekssjóði. Ég væri alveg til í að heyra frá þeim og fá að vita hvað veldur. Kannski þarf ég að vera hærri á heimslistan- um en með árangrinum í langstökkinu er ég komin í 35. sæti. Það finnst mér bara gott. Það er hrikalega erfitt að fjármagna sig, ég lifi á kærastanum og foreldrum mínum og ég get aldrei þakkað nógu vel fyrir stuðning- inn alla tíð. Þau styðja mig í einu og öllu en það er bara ofsalega erfitt að vera upp á aðra komin. Það er óþægileg tilfinning að geta ekki séð um sig sjálfur af því að maður er að reyna lifa drauminn. Það er erfitt að tala um þetta því að það er hrikalega sárt hvernig málum er háttað í þessum efnum. Ég verð bara að vona að ég komist inn og fái styrk úr Afrekssjóði á næsta ári.“ Þess má geta að Hafdís hefur verið dug- leg að taka þátt í mótum á vegum UMFÍ í gegnum tíðina. Hún keppti nokkrum á Ungl- ingalandsmótum og hefur keppt á öllum Landsmótum UMFÍ en fyrsta mót hennar var á Sauðárkróki 2004. Ákveðinn sjarmi yfir Landsmótum UMFÍ „Mér finnst Landsmótin skipa stóran sess í sögu UMFÍ og vil endilega að þau haldi reisn sinni og haldi áfram. Auðvitað hafa tímarnir breyst og miklu meira er í boði en var fyrir 20–30 árum. Engu síður finnst mér alltaf ákveðinn sjarmi yfir Landsmótum, gaman að taka þátt og hitta fólk. Þetta er ákveðin stemning sem ég vil ekki missa af. Vonandi halda þau áfram,“ sagði Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona í viðtali við Skinfaxa. „Ég hef lagt mikið á mig, sett met, svo ég veit ekki alveg hvað maður þarf að afreka til að fá styrk úr Afrekssjóði“.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.