Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 40

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 40
40 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 94. ársþing Ungmennasambands Skaga- fjarðar var haldið 2. mars sl. í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi, í boði hestamanna- félagsins Svaða. Þingið var vel sótt og voru þingfulltrúar um 50 talsins. Haukur Valtýs- son, varaformaður UMFÍ, ávarpaði þingið. Jón Daníel Jónsson var endurkjörinn for- maður UMSS. Að sögn Dúfu Ásbjörnsdóttur, framkvæmdastjóra UMSS, gekk þingið með ágætum. Vel var unnið í nefndum og þaðan komu fjölmargar tillögur sem voru bornar upp á þinginu. „Verkefnin fram undan eru ærin en þar ber hæst Unglingalandsmótið sem verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmanna- helgina. Undirbúningur fyrir mótið gengur vel. Það er, eins og gefur að skilja, í mörg horn að líta en þetta er mjög spennandi verkefni,“ sagði Dúfa Ásbjörnsdóttir, fram- kvæmdastjóri UMSS. Breytingar urðu í stjórn sambandsins. Þeir Rúnar Vífilsson og Pétur Grétarsson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en í þeirra stað komu Sylvía Magnúsdóttir og Steinunn Rósa Guðmundsdóttir nýjar inn í stjórnina. Á þingi UMSS sem haldið var í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi. Ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar: Undirbúningur fyrir Unglingalandsmót ber hæst Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar var haldinn í Félagsmiðstöðinni 6. mars sl. Farið var yfir skýrslu stjórnar, ársreikningar lagðir fram til samþykktar og kosið í stjórn. Svava Arnardóttir bauð sig aftur fram til formanns og var hún kjörin samhljóða. Íris Pétursdóttir og Guðmann Rúnar Lúðvíksson sitja einnig áfram í stjórn. Ekki tókst að manna stjórn að fullu annað árið í röð og var stjórnarmeðlim- um falið það verkefni að finna áhugasama einstaklinga til þess að vinna með stjórninni. Þrátt fyrir fámenna stjórn hefur stjórnin ásamt framkvæmdastjóra unnið vel saman. Aðalfundurinn var ágætlega sóttur og voru umræður málefnalegar. Metnaðarfullt starf er unnið í öllum deildum og fjöldi barna og unglinga leggur stund á íþróttir hjá félaginu, eina eða fleiri. Iðkendur á vegum Þróttar í barna- og unglingadeild eru tæplega 130 talsins. Fjórar deildir eru reknar í félaginu, júdó, sund, körfubolti og knattspyrna. Einnig stendur félagið fyrir íþróttaskóla fyrir yngstu krílin einu sinni í viku. Fundargestir voru almennt jákvæðir og voru þeir einróma sammála því að stjórn Þróttar væri að gera góða hluti og ætti að vera sátt við starfsárið 2013. Svava Arnardóttir, formaður Umf. Þróttar. Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar í Vogum: Stjórnin vinnur að góðum verkefnum Að undanförnu hafa starfsfólk og stjórnarmenn UMFÍ heimsótt sambandsaðila víðs vegar um landið. Annars vegar hafa stefnumótun- arfundir verið haldnir á nokkrum stöð- um á landinu og hins vegar hafa héraðs- sambönd verið heimsótt þar sem starf- semi og framtíðarsýn hafa verið rædd. Þessir fundir hafa heppnast vel og vonast stjórn UMFÍ til að fundirnir skili sínu þegar fram í sækir. Á síðasta sambandsþingi UMFÍ var samþykkt að halda fleiri fundi vegna stefnumótandi vinnu um framtíð Lands- móta UMFÍ. Vinnufundir hafa verið haldnir í Borgarnesi, á Akureyri, á Sel- fossi, á Egilsstöðum og í Reykjavík. Á fundinum hefur verið kallað eftir áliti og hugmyndum fólks úr hreyfingunni um hvernig mótin eigi að þróast og í hvaða farveg þau eigi að fara. Fundir með stjórnum aðildarfélaga UMFÍ hafa verið haldnir víða um land frá áramótum. Sem dæmi má nefna að fundur var haldinn með stjórn Umf. Njarðvíkur þar sem m.a. kom fram að starfið stendur með miklum blóma hjá félaginu, þátttaka í íþróttum er mikil og fer vaxandi. Sex deildir eru reknar innan félagsins og á sumrin hefur verið haldið úti íþróttaskóla sem hefur gefið góða raun. Félagið verður 70 ára 10. apríl nk. og verður þeirra tímamóta minnst með ýmsum hætti. Þá voru haldnir fundir með HSK á Selfossi og UÍF á Siglufirði. Starfið innan þessara sambanda er mikið og góður hugur í fólki. Í byrjun febrúar voru haldnir fundir með HHF á Patreksfirði, USVS í Vík og HSS á Hólmavík. Fleiri fundir verða haldnir fram á vorið. Stefnumótunarfundir og héraðssamböndin sótt heim Hólmavík Borgarnes

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.