Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 38

Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Námið heillar, ekki er illa menntuð þjóðin. Klámið bönnum, hvergi hér hrakleg yrkjum ljóðin. Þessi staka er eftir Ragnar Inga Aðal- steinsson og er ekki öll þar sem hún er séð. Hér er um að ræða sléttubönd en vísu, sem er gerð undir þeim bragarhætti, er hægt að hafa yfir jafnt aftur á bak sem áfram án þess að bragreglur raskist. Sléttu- bönd, sem skipta að auki um merkingu eftir því hvort þau eru lesin aftur á bak eða áfram, þykja einstaklega skemmtileg. Ef lesendur ætla að spreyta sig á þessu formi bið ég þá um að gæta vel að stuðlum – því að ekki er rétt ort ef stuðlarnir lenda ekki rétt í báðar áttir. Margir kannast við Ragnar Inga Aðal- steinsson frá Vaðbrekku í Jökuldal, en hann hefur í gegnum tíðina látið til sín taka í ljóðagerð og bragfræðikennslu. Nú nýverið gaf Ragnar út stórgóða bók um bragfræði sem heitir einfaldlega Íslensk bragfræði. Hægt er að mæla með henni, jafnt fyrir byrjendur og lengra komna. Þá geta áhugamenn um hefðbundna ljóðlist gerst áskrifendur að tímariti sem Ragnar Ingi gefur út og heitir Stuðlaberg. Hægt er að hafa samband við Ragnar Inga í gegnum netfangið ria@hi.is til að fá nán- ari upplýsingar um ritið og til að gerast Vísnaþáttur Höskuldur Búi Jónsson áskrifandi en efni þessa tímarits er fjöl- breytt og að mati undirskrifaðs mjög skemmtilegt. En víkjum að því efni sem vikið var að hér í upphafi, þ.e. sléttuböndum, en margir hafa spreytt sig á þeim. Sigurlín Hermannsdóttir er þar á meðal, en hún orti á Boðnarmiði: Dáir ljóðin, aldrei ann illum rógi manna. Sáir góðu, hvergi hann heggur skóginn sanna. Ingólfur Ómar Ármannsson sendi mér nokkur sléttubönd, hér eru tvö þeirra: Kveður ljóðin, ekki er ansi rogginn seggur. Gleður fljóðin hvergi hér hæðni brúkar Skeggur. Bögur góðar mæra menn mörgum hylli veita. Fögur ljóðin yrkja enn andans snilli beita. Eins og venjulega óskaði ég eftir botn- um í síðasta þætti. Tveir botnar bárust en það var Jóhannes Sigmundsson, dyggur lesandi Skinfaxa, fyrrverandi formaður HSK og núverandi heiðursformaður, frá Syðra-Langholti, sem botnaði svo: Enn blæs vetur ósköp kaldann ís og hret að landi. Þó sem betur, það er sjaldan þrúgað getur landsins fjandi. Sólin upp rís bljúg og blíð bræðir vetrarhjarta. Bráðum kemur betri tíð, burt flýr myrkrið svarta. Ég þakka Jóhannesi kærlega fyrir. Hér eru fyrripartar til að glíma við fyrir næsta þátt: Þiðnar klaki, kraftur vex kitlar vorið blíða. - Þrýtur aflið, sjaldan sé sæta góða stöku. Ég hvet sem flesta til að botna þessa fyrriparta og senda þættinum, auk frum- ortra vísna. Hægt er að senda efni á Skin- faxa, Sigtúni 42, 105 Reykjavík, eða með tölvupósti á hoskibui@gmail.com. Kvæðakveðja Höskuldur Búi Jónsson

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.