Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 19
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 19
Annað árið í röð náði lið HSK/Selfoss þeim frábæra árangri að vinna stiga-
keppni þátttökuliða á Meistaramóti Íslands
í frjálsum íþróttum 11–14 ára innanhúss,
en mótið var haldið í Laugardalshöllinni
8.–9. febrúar sl. Keppnin var gríðarlega
spennandi, lengst af var liðið í öðru eða
Lið HSK/Selfoss Íslandsmeistari annað árið í röð
þriðja sæti en því tókst að fara fram úr ÍR í
síðustu boðhlaupsgreininni.
Lið HSK/Selfoss endaði með 586,9 stig,
ÍR varð í öðru sæti með 576,4 stig og FH
varð í þriðja sæti með 524,7 stig. Einnig
varð liðið Íslandsmeistari í þremur flokk-
um, þ.e. piltum 12 ára og 14 ára og stúlk-
um 12 ára. 79 keppendur voru skráðir til
leiks frá HSK/Selfossi og unnu keppendur
þaðan til fjölda verðlauna. Þá voru tvö
HSK-met sett á mótinu.
Alls tóku 392 keppendur víðs vegar af
að landinu þátt í mótinu og náðist góður
árangur í mörgum greinum.
Meistaramót Íslands í frjálsum íþrótt-um 15–22 ára fór fram í Laugardals-
höllinni 11.–12. janúar sl. Alls voru 217
keppendur skráðir til leiks frá 16 félögum
víðs vegar að af landinu. Mikið líf var í höll-
inni og var gaman að fylgjast með unga
fólkinu okkar.
Irma Gunnarsdóttir, Breiðabliki, og
Tristan Freyr Jónsson, ÍR, urðu fjórfaldir
Íslandsmeistarar í aldursflokki sínum
(16–17 ára). Þetta var frábær árangur hjá
þeim og ljóst er að hér eru á ferð mikil
efni. Guðbjörg Bjarkardóttir, FH, Reynir
Zoëga, Breiðabliki, Kolbeinn Höður Gunn-
arsson, UFA, og Björg Gunnarsdóttir, ÍR,
urðu þrefaldir Íslandsmeistarar í sínum
aldursflokkum.
Guðbjörg Bjarkardóttir, FH, varð Íslands-
meistari 15 ára stúlkna í 60 m hlaupi, 200
m hlaupi og 60 m grindahlaupi. Hörður
Franz Pétursson, ÍR, varð Íslandsmeistari
15 ára pilta í 60 m hlaupi og 200 m hlaupi.
Helgi Guðjónsson, UMSB, varð Íslands-
meistari 15 ára pilta í 800 m hlaupi og
1500 m hlaupi. Reynir Zoëga, Breiðabliki,
varð Íslandsmeistari 15 ára pilta í 60 m
grindahlaupi, langstökki og þrístökki.
Harpa Svansdóttir, HSK/Selfossi, varð
Íslandsmeistari 15 ára stúlkna í langstökki
og kúluvarpi. Tristan Freyr Jónsson, ÍR, varð
Íslandsmeistari 16–17 ára pilta í 60 m
hlaupi, 200 m hlaupi, hástökki og stangar-
stökki. Fannar Yngvi Rafnarsson, HSK/Sel-
fossi, varð Íslandsmeistari 16–17 ára pilta í
langstökki og þrístökki.
Irma Gunnarsdóttir, Breiðabliki, varð
Íslandsmeistari 16–17 ára stúlkna í 60 m
hlaupi, 200 m hlaupi, 60 m grindahlaupi
og kúluvarpi. Thelma Lind Kristjánsdóttir,
ÍR, varð Íslandsmeistari 16–17 ára stúlkna
í langstökki og þrístökki. Kolbeinn Höður
Gunnarsson, UFA, varð Íslandsmeistari
18–19 ára pilta í 60 m hlaupi, 200 m hlaupi
og 400 m hlaupi. Sæmundur Ólafsson, ÍR,
varð Íslandsmeistari 18–19 ára pilta í 800
m hlaupi og 1500 m hlaupi. Krister Blær
Jónsson, ÍR, varð Íslandsmeistari 18–19
ára pilta í 60 m grindahlaupi og hástökki.
Aníta Hinriksdóttir, ÍR, varð Íslandsmeistari
18–19 ára stúlkna í 200 m hlaupi og 800 m
hlaupi. Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir, UFA,
varð Íslandsmeistari 18–19 ára stúlkna í
60 m grindahlaupi og langstökki. Ívar
Kristinn Jasonarson, ÍR, varð Íslandsmeist-
ari 20–22 ára pilta í 60 m hlaupi og 200 m
hlaupi. Björg Gunnarsdóttir, ÍR, varð Íslands-
meistari 20–22 ára stúlkna í 60 m hlaupi,
200 m hlaupi og 400 m hlaupi. Guðlaug
Edda Hannesdóttir, Fjölni, varð Íslands-
meistari 20–22 ára stúlkna í 800 m hlaupi
og 1500 m hlaupi. Sveinbjörg Zophonías-
dóttir, FH, varð Íslandsmeistari 20–22 ára
stúlkna í 60 m grindahlaupi og hástökki.
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15–22 ára:
Góður áran gur og frábær þátttaka
Kolbeinn Höður Gunnarsson,
UFA, varð þrefaldur Íslands-
meistari í sínum aldursflokki
á MÍ 15–22 ára.