Skinfaxi - 01.03.2014, Page 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Aðalfundur UFA var haldinn þann 12.
mars sl. í Hamri, félagsheimili Þórsara á
Akureyri. Stjórnarskipti urðu á þessum
aðalfundi þegar meiri hluti gömlu
stjórnarinnar hætti eftir farsælt ár. Úr
stjórn gengu Gunnar Gíslason formað-
ur, Rannveig Oddsdóttir, Ólafur Sveinn
Traustason, Þröstur Már Pálmason og
Þórólfur Sveinsson en eftir urðu þær
Kolbrún Sveinsdóttir og Gyða Árna-
dóttir. Nýja stjórn ungmennafélags-
ins skipa Gyða Árnadóttir, Kolbrún
Sveinsdóttir, Birgitta Guðjónsdóttir,
Katrín Ásmundsdóttir, Sigurður Sig-
urðarson, Sigurbjörg Bergsdóttir og
einn fulltrúi frá meistararáði. Ekki hef-
ur verið ákveðið hver verður næsti
formaður UFA. Haukur Valtýsson, vara-
formaður UMFÍ, var gestur fundarins
og tók hann til máls og hrósaði UFA
fyrir frábæran árangur og meistaratitla sem
fremstu keppendurnir hafa hlotið í ýmsum
greinum. Sagði hann þetta afar góðan árang-
ur hjá þessum hópi.
Fyrsta mál á dagskrá var skýrsla stjórnar. Á
síðasta ári voru haldnir 14 stjórnarfundir og
fjölmargir fundir með ÍBA og öðrum hags-
Aðalfundur Ungmennafélags Akureyrar:
Síðasta ár var fjárhagslega gott
munaaðilum. Starf stjórnar er að
halda utan um mótahald, ungl-
ingaráð, meistararáð og ýmislegt
annað sem til fellur vegna frjáls-
íþrótta. Fjáröflun fyrir UFA er erfitt
starf; mestu munar um ágóða af
kosningablaði sem hefur verið
gefið út við hverjar kosningar.
Samherjastyrkurinn er ómetan-
legur og er hann notaður til að g
reiða niður rútuferðir yngri krakk-
anna. Gunnar Gíslason fór yfir
helstu mál UFA og mót sem haldin
voru og farið var á síðasta ári. Á síð-
asta ári voru 22 Íslandsmeistarar og
54 Íslandsmeistaratitlar innan raða
UFA. Hafdís Sigurðardóttir var kjörin
íþróttakona UFA og setti Hafdís fyrst
kvenna Íslandsmet kvenna innan
UFA. Næst var farið yfir ársreikninga
UFA. Árið 2013 var gott ár fjárhags-
lega og hallinn var ekki nema 72.058 kr. og
er það frábært miðað við að árið 2012 var
hallinn 2.373.622 kr.
Héraðsþing USVH var haldið að
Reykjum í Hrútafirði 13. mars sl.
Mæting var góð, rúmlega 30 full-
trúar mættu til þings sem haldið
var í boði Umf. Dagsbrúnar. Þingið
var starfsamt og fjöldi ályktana
samþykktur en veigamesta fundar-
efnið var heildarendurskoðun á
lögum sambandsins og tókst að
afgreiða fjölda lagabreytinga undir
styrkri stjórn þingforseta, Júlíusar
Guðna Antonssonar.
Ungmennafélagið Harpa, sem
áður var í HSS, gekk til liðs við USVH
á þinginu en sú breyting varð vegna
breyttra marka sveitarfélaga.
Fjárhagsstaða USVH er mjög góð.
Þingfulltrúar fögnuðu sérstaklega samstarfi
Umf. Kormáks og Sundfélagsins Húna við
íþróttaæfingar á sambandssvæðinu sem
hófst síðasta haust og hefur einfaldað skipu-
lag íþróttastarfsins auk þess að vera mun
ódýrara en fyrra fyrirkomulag. Mjög góður
starfsandi og samstaða ríkti á þinginu og
allar ályktanir voru samþykktar samhljóða.
Sæmundur Runólfsson, framkvæmda-
stjóri UMFÍ, var gestur fundarins og sæmdi
hann Önnu Maríu Elíasdóttur starfsmerki
UMFÍ fyrir ötult starf innan sambandsins en
hún hefur komið víða við innan ungmenna-
félagshreyfingarinnar mörg undanfarin ár.
Guðmundur Haukur Sigurðsson lét af for-
mennsku eftir sex ár á formannsstóli. Þakk-
aði þingið honum störfin með lófataki og
var honum færður blómvöndur og gjöf í
þakklætisskyni. Nýr formaður var kjörinn
Reimar Marteinsson, varaformaður Halldór
Sigfússon, gjaldkeri Elín Jóna Rósinberg og
ritari Hörður Gylfason. Fyrir í stjórn var Vigdís
Héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga:
Guðmundur Haukur lét af formennsku
Gunnarsdóttir. Varamenn í stjórn voru kjörin
Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Sara Ólafsdóttir
og Kristinn Víglundsson.
Skemmtilegur tími
„Á þessum tímamótum er mér þrennt
efst í huga: Í fyrsta lagi er Landsmót UMFÍ
50+ sem við héldum á Hvammstanga 2011.
Í öðru lagi endurnýjuðum við samning við
sveitarfélagið sem felur í sér stuðning við
íþróttastarfið á svæðinu. Í þriðja lagi er
samkomulag sem við gerðum við íþrótta-
félögin á svæðinu um sameiginlegt skipu-
lag íþróttaæfinga sem hefur orðið til þess
að gjaldskráin hefur lækkað og allt skipu-
lag er miklu hentugra af því að við búum
að stórum hluta í dreifbýli. Þegar maður lítur
til baka er þetta búinn að vera skemmtilegur
tími og gaman að vinna með ungu fólki. Ég
óska nýjum formanni og stjórn velfarnaðar í
starfi,“ sagði Guðmundur Haukur Sigurðsson,
fráfarandi formaður USVH.
Frá vinstri: Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, Anna María
Elíasdóttir, sem var sæmd starfsmerki UMFÍ, Guðmundur Haukur Sigurðsson,
fráfarandi formaður, og Gunnlaugur Júlíusson, stjórnarmaður í ÍSÍ.
Breiðdalur