Skinfaxi - 01.03.2014, Side 32
32 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Fimmtudaginn 13. mars sl. var 93.
ársþing UMSE haldið að Rimum í
Svarfaðardal, í umsjón Umf. Þorsteins
Svörfuðar. Alls mættu 44 fulltrúar frá
aðildarfélögum og stjórn, gestir og
starfsmenn þingsins. Fulltrúar frá 11
af 13 aðildarfélögum voru á þinginu
auk fulltrúa stjórnar og var mætingin
80% af mögulegum heildarfjölda full-
trúa sem er mikil aukning frá fyrri
árum. Var þetta í fyrsta sinn sem þingið
er haldið að kvöldi til á virkum degi
sem skýrir líklega að hluta til góða
þátttöku. Sammæltust viðstaddir um
að þessi tilhögun væri gæfuspor.
Haukur Valtýsson, varaformaður UMFÍ,
flutti ávarp á þinginu og kveðjur frá
hreyfingunni.
Þingið fór vel fram og voru umræður
bæði líflegar og málefnalegar. Alls voru
sextán tillögur samþykktar, sem munu eiga
þátt í að móta starf UMSE næsta árið.
Að þessu sinni var kosið um formann, rit-
ara og meðstjórnanda í stjórn UMSE. Nokkr-
ar breytingar urðu á stjórninni en Óskar Þór
Vilhjálmsson gaf ekki kost á sér til áframhald-
andi formennsku. Einnig lét Kristlaug María
Valdimarsdóttir af störfum sem ritari
sambandsins. Nýr formaður UMSE
var kjörin Bjarnveig Ingvadóttir frá
Umf. Svarfdæla en hún snýr nú aftur
til starfa innan íþróttahreyfingar-
Ársþing Ungmennasambands Eyjafjarðar:
Bjarnveig Ingvadóttir kosin nýr formaður
innar eftir nokkurra ára hlé. Ritari var kjörin
Guðrún Finnsdóttir, Umf. Smáranum. Þor-
gerður Guðmundsdóttir, Umf. Samherjum,
var endurkjörin sem meðstjórnandi. Í vara-
stjórn voru endurkjörin Guðrún Sigurðar-
dóttir, Umf. Svarfdæla, og Sigurður Eiríks-
son, Umf. Samherjum. Svanbjört Brynja
Bjarkadóttir gaf ekki kost á sér til áfram-
haldandi setu í varastjórn og í hennar stað
var kjörinn Gunnar Ingi Ómarsson, Umf.
Æskunni. Aðrir, sem sitja í stjórn UMSE, eru
Edda Kamilla Örnólfsdóttir,
varaformaður, frá Hestamanna-
félaginu Funa, og Einar Hafliða-
son, gjaldkeri, frá Umf. Þorsteini
Svörfuði.
Á þinginu var að venju veitt
ur félagsmálabikar UMSE.
Stjórn félagsins veitir bikarinn
því félagi sem talið er hafa stað-
ið sig hvað best í innra starfi,
bæði íþróttastarfi og almennu
félagsstarfi. Að þessu sinni hlaut
Umf. Smárinn bikarinn og tók
formaður félagsins, Jónína
Garðarsdóttir, við viðurkenn-
ingunni.
Mynd til hægri: Jónína Garðarsdóttir, for-
maður Umf. Smárans, tekur við félagsmála-
bikar UMSE frá Óskari Þór Vilhjálmssyni,
fráfarandi formanni UMSE.
Þing UMSB var haldið laugardaginn 8. mars
sl. í félagsheimilinu Brautartungu. Þingið var
vel sótt og komu góðir gestir frá UMFÍ, þau
Hrönn Jónsdóttir, meðstjórnandi, og Kristinn
Óskar Grétuson, varamaður í stjórn. Stjórn
UMSB var endurkjörin, voru það Sigurður
Guðmundsson, sambandsstjóri, Kristín
Gunnarsdóttir, gjaldkeri, og Ásgeir Ásgeirs-
son, varasambandsstjóri, sem voru kjörin að
þessu sinni auk varamanna þeirra en þar kom
ný inn Þórdís Þórisdóttir, formaður Ung-
menna- og íþróttafélags Hvalfjarðarsveitar.
Þingið var starfsamt og gekk vel. Auk hefð-
Ársþing Ungmennasambands Borgarfjarðar:
Samningur við KPMG undirritaður á þinginu
bundinna fundarstarfa var undirritaður samn-
ingur milli UMSB og KPMG. Samningurinn
fjallar um það að KPMG styrki sambandið
rausnarlega með því að sjá um færslu á bók-
haldi UMSB og gerð ársreikninga auk þess
sem KPMG býður aðildarfélögum sambands-
ins sambærilega samninga. Þá er einnig
kveðið á um að KPMG muni aðstoða UMSB
við að útbúa handbók gjaldkera íþrótta-
félaga. Handbókin mun væntanlega auð-
velda gjaldkerum aðildarfélaganna starf sitt
auk þess sem skil og færsla á bókhaldi verð-
ur sambærilegra á milli aðildarfélaga UMSB.
97. ársþing Ungmennasambands Austur-
Húnvetninga var haldið 9. mars sl. á
Blönduósi. Vel var mætt á þingið, rúm-
lega 30 fulltrúar komu frá aðildarfélög-
um sambandsins og var þingið mjög
starfsamt. Nokkrar tillögur komu fram á
þinginu um ýmis málefni sambandsins.
Kjósa þurfti formann og varaformann til
tveggja ára og voru þær Aðalbjörg Valdi-
marsdóttir, formaður, og Hafdís Vilhjálms-
Ársþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga:
Aðalbjörg Valdimarsdóttir endurkjörin formaður
dóttir, varaformaður, endurkjörnar í stjórn
auk þess sem Rannveig Lena Gísladóttir var
kjörin gjaldkeri til eins árs. Aðrir í stjórn eru
þær Guðrún Sigurjónsdóttir, meðstjórnandi,
og Sigrún Líndal, ritari.
Hestamannafélagið Neisti hlaut hvatn-
ingarverðlaun USAH fyrir góða starfsemi,
sérstaklega starf með börnum og ungling-
um í héraðinu.
Hestamannafélagið
Neisti hlaut hvatn-
ingarverðlaun USAH.
Aðalbjörg Valdimars-
dóttir, formaður
USAH (t.h.), og
Áslaug Finnsdóttir
(t.v.) sem tók við
verðlaununum fyrir
hönd hestamanna-
félagsins.