Skinfaxi - 01.03.2014, Síða 36
36 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
U
ngmennafélagið Ásinn, á Jökul-
dal, í Hróarstungu og í Jökulsárhlíð,
safnar nú fyrir hjartahnoðtæki.
Slíkt tæki veitir jafnt og stöðugt
hjartahnoð og getur aukið lífslíkur sjúklings
sem flytja þarf langar leiðir.
Það þótti kraftaverki líkast þegar sjúkra-
flutningamönnum og læknum tókst að
bjarga lífi ungrar erlendrar konu sem hneig
niður í Möðrudal á Fjöllum fyrir tveimur
árum. Hún var beitt hjartahnoði í meira en
klukkustund áður en hjarta hennar fór slá
að nýju. Fjallað var um tilfellið í Lækna-
blaðinu og fullyrt að lífslíkur aukist ef
hjartahnoð hefst strax, áður en hugað er
að öndunarvegi. Þá skiptir máli að hnoð-
að sé jafnt og stöðugt, hnoðað 30 sinnum
og blásið tvisvar til skiptis.
Sjúkraflutningamenn á landsbyggðinni
þurfa gjarna að beita hjartahnoði við erfið-
ar aðstæður sem geta bitnað á gæðum
hjartahnoðsins. Þeir flytja gjarnan sjúkl-
inga langa leið og tveir skiptast á að
hnoða. En til er hnoðtæki sem tryggir
Fylkir og Fjölnir mættust í úrslitaleik
karla í fútsal, innanhússknattspyrnu,
en leikurinn fór fram í íþróttahúsinu
á Álftanesi 12. janúar sl. Þess má
geta að Fjölnir vann þessa keppni
2011. Síðastliðið haust tryggði
Fjölnir sér sæti í Pepsi-deild karla á
næsta sumri þannig að Fjölnismenn
hafa ástæðu til að fagna góðum
árangri sem gefur fyrirheit um gott
komandi keppnistímabil.
Úrslitaleikurinn var bráðfjörugur
og sáust mörg skemmtileg tilþrif.
Fjölnir komst yfir, 4-1, og lét foryst-
una aldrei af hendi. Lokatölur urðu
6-8 fyrir Fjölni. Þórir Guðjónsson
skoraði þrjú mörk fyrir Fjölni í leikn-
um. Aron Sigurðsson og Viðar Ari
Jónsson skoruðu tvö hvor og
Gunnar Már Guðmundsson eitt.
jafnt og stöðugt hjartahnoð. Það spennist
utan um sjúklinginn og hnoðar hann með
tjakki sem gengur niður á brjóstið.
Tvær og hálf milljón
Eiríkur Þorri Einarsson er sjúkraflutninga-
maður á Egilsstöðum og formaður í Ung-
mennafélaginu Ásnum sem safnar nú fyrir
slíku tæki sem kostar hátt í tvær og hálfa
milljón. Allt er þetta gert til að sjúklingar
fái sem best hjartahnoð á erfiðum ferða-
lögum.
Það skiptir máli að hafa
góðan búnað
„Þessi ár sem maður er búinn að vera
sjúkraflutningamaður hér á svæðinu hefur
maður smám saman áttað sig á því hvað
það skiptir miklu máli að hafa góðan bún-
að. Með þessu tæki sem okkur vonandi
tekst að fá erum við í raun að fá tvo auka-
sjúkraflutningamenn sem við höfum ekki.
Þarna eru tveir menn sem geta séð um
hnoðið í þessu eina tæki. Í dag eru þessi
tæki í notkun á nokkrum stöðum á land-
inu og víða stendur til að fá slíkt tæki á
næstunni,“ sagði Eiríkur Þorri Einarsson í
spjalli við Skinfaxa.
Eiríkur Þorri sagði að söfnunin fyrir um-
ræddu tæki gengi ágætlega og vonandi
yrði fyrr en seinna hægt að ráðast í kaup á
tækinu.
„Það hafa komið upp tilfelli þar sem
þessi búnaður hefði komið að góðum
notum þegar fólk hefur farið í hjartastopp.
Þá skiptir miklu máli að halda endurlífgun
áfram þangað til að maður er kominn inn
í sjúkrabílinn í betri aðstæður. Nú er bara
að vona að við fáum tækið sem fyrst en
það á tvímælalaust eftir að skila sínu,“
sagði Eiríkur Þorri Einarsson.
Ungmennafélagið Ásinn
safnar fyrir hjartahnoðtæki
Eiríkur Þorri Einarsson,
sjúkraflutningamaður á
Egilsstöðum, og formaður í
Ungmennafélaginu Ásnum.
Fjölnir Íslandsmeistari í innanhússknattspyrnu