Skinfaxi - 01.03.2014, Blaðsíða 39
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 39
M
eistaraflokkur Einherja í knattspyrnu
hljóp föstudaginn 3. janúar sl. 132
km leið frá Mývatni og heim til
Vopnafjarðar. Hlaupið var til fjáröflunar
fyrir félagið sem keppir í þriðju deild karla
í sumar.
„Hugmyndin kom fram þegar við vorum
að velta fyrir okkur möguleikum í fjáröflun,“
sagði þjálfarinn, Víglundur Páll Einarsson,
um tildrög ferðarinnar. Hópurinn gekk í
fyrirtæki og hús á Vopnafirði auk þess að
nota Facebook til að ná til þeirra sem fjær
voru. Í kassann komu á milli sjö og átta
hundruð þúsund krónur.
„Stuðningur Vopnfirðinga, brottfluttra
Vopnfirðinga, stuðningsmanna og fjöl-
skyldu og vina hefur verið hreint út sagt
stórkostlegur og við erum afar þakklátir,“
sagði Víglundur.
Hlaupið hófst við Mývatn klukkan
ellefu og tók ferðin um sjö og hálfan tíma.
„Aðstæður voru erfiðar: mikill mótvindur,
rigning og fljúgandi hálka. Við vorum hins
vegar vel skóaðir og allir með hlaupa-
gorma eða brodda.“ Tólf leikmenn tóku
þátt í hlaupinu og skiptust þeir á að
hlaupa á 5 km fresti. Sú vegalengd styttist
hins vegar í lokin þegar menn voru teknir
að þreytast.
„Þessir drengir eru auðvitað alveg magn-
aðir. Ég hugsa að hver og einn hafi hlaup-
Meistaraflokkur Einherja á hlaupum
ið milli 10 og 20 km. Það skiptir engu máli
hvað þeir eru beðnir um að gera. Þeir gera
það þegjandi og hljóðalaust og vel.“
Einherji sigraði í fjórðu deild í sumar og
spilar í þriðju deild næsta sumar. Því fylgir
umtalsverður kostnaður við ferðir.
„Undirbúningur fyrir tímabilið hefur
gengið vel. Við höfum verið að spila leiki í
Lengjubikarnum og svo ætlum við að fara
í viku æfinga- og keppnisferð til Barcelona.
Þar munum við æfa við góðar aðstæður
Sími 470 8100 / Fax 4708101 / sth@sth.is / www.sth.is
og þjappa mannskapnum vel saman fyrir
átökin í sumar. Ég er annars bara bjartsýnn
á tímabilið en við byggjum liðið að mestu
upp á heimamönnum. Við höfum fengið
einn mann að láni frá Þór og allir þeir sem
voru með okkur í fyrra verða áfram með.
Við spilum heimaleiki okkar á nýja vellin-
um í sumar en sá völlur lítur vel út, enginn
klaki í honum, og aðstæður allt aðrar og
betri en áður,“ sagði Víglundur Páll Einars-
son, þjálfari Einherja, í samtali við Skinfaxa.