Skinfaxi - 01.03.2014, Qupperneq 42
42 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Á
ársþingi HSK sem fór fram á Borg í
Grímsnesi laugardaginn 8. mars sl.
var Umf. Heklu á Hellu afhentur
Unglingabikar HSK. Unglingabikar HSK er
afhentur því félagi sem hefur sýnt hvað
mestar framfarir síðustu ár.
Samfella í íþróttastarfi
Fyrir fimm árum var körfubolti það eina
sem var í gangi á vegum Umf. Heklu þar
sem íþróttakennarar við Grunnskólann
á Hellu sáu um þjálfunina. Vöxturinn í
starfi félagsins hefur verið jafn og stígandi
síðan. Félagið tók að sér, í samvinnu við
sveitarfélagið og Grunnskólann á Hellu,
að sjá um samfellu í íþróttastarfi þrjá virka
daga vikunnar, fjóra tíma í senn. Samfella
er fjölbreytt íþróttadagskrá sem hefst eftir
að skóla lýkur og stendur yfir í tvo tíma
fyrir 1.–4. bekk og í tvo tíma fyrir 5.–10.
bekk. Síðan hafa orðið breytingar á þessu
kerfi og sér félagið í dag um dagskrána
fyrir 5.–10. bekk tvisvar í viku.
Farin hefur verið sú leið að leita sam-
vinnu við önnur félög, s.s. íþróttafélögin
Öflugt unglingastarf
hjá Ungmennafélaginu Heklu
Dímon á Hvolsvelli og Garp og Umf.
Selfoss til þess að geta aukið flóruna á
íþróttum sem stundaðar eru.
Hærra hlutfall barna
stundar íþróttir
Á vegum félagsins eru í dag stundaðar
eftirfarandi greinar, sumar hverjar í sam-
vinnu við ofangreinda aðila: fimleikar,
blak, frjálsar íþróttir og hreysti (skóla-
hreysti), körfubolti, borðtennis, sund,
handbolti og taekwondo.
Íslandsmeistari í borðtennis
Félagið eignaðist fyrir skömmu sinn
fyrsta Íslandsmeistara í borðtennis þegar
Þorgils Gunnarsson varð Íslandsmeistari í
flokki 11 ára og yngri.
Síðustu ár hefur félagið staðið fyrir
íþrótta- og tómstundanámskeiði í þrjár
til fimm vikur á sumrin þar sem þátttaka
hefur verið allt að 60 krakkar og hefur
námskiðið gengið afar vel.
Öflugt skáklíf
Félagið hefur í samvinnu við Grunn-
skólann á Hellu staðið að mótahaldi í
skák. Skáklífið í skólanum er mjög öflugt
og m.a. varð Umf. Hekla héraðsmeistari
HSK í skák 16 ára og yngri í febrúar síðast-
Hressir krakkar úr
Ungmennafélaginu Heklu
með unglingabikar HSK.
Þorgils Gunnarsson, Íslandsmeistari í borðtennis í flokki 11 ára og yngri
ásamt Aroni Birki Guðmundssyni sem varð í 3.-4. sæti í sama flokki.