Skinfaxi - 01.03.2014, Page 43
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 43
Velkomin á 17. UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ
á Sauðárkróki verslunarmannahelgina
1.-3. ágúst 2014
Skagfirðingar bjóða ykkur velkomin á skemmtilegasta frjálsíþróttavöll landsins
þaðan sem aðeins er steinsnar í knattspyrnuvelli, íþróttahús, sundlaug,
golfvöll, reiðhöll og aðstöðu fyrir allar aðrar keppnisgreinar,
auk þess sem tjaldsvæði eru í stuttu göngufæri.
www.visitskagafjordur.is
Það verður kátt á Króknum
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
liðnum. Nægilega mikil þátttaka hefur
verið á öllum þessum æfingum í vetur
þannig að þeim er haldið gangandi og
hefur orðið alger bylting í því á síðustu
árum hversu miklu hærra hlutfall barna á
Hellu stundar íþróttir heldur en var fyrir
nokkrum árum.
Samvinna við önnur
íþróttafélög
Margt hefur hjálpast að við það að geta
verið með svona mikið úrval af íþróttum
hjá svona litlu félagi. M.a. hefur fólk með
íþróttalegan bakgrunn verið að flytja í
sveitarfélagið sem er tilbúið til að leið-
beina og halda utan um æfingar. Einnig
hefur félagið lagt aukna áherslu á að leita
eftir samvinnu við önnur íþróttafélög, þ.e.
Íþróttafélögin Dímon á Hvolsvelli og Garp
ásamt Umf. Selfoss. Hefur þetta starf skilað
félaginu mun fleiri iðkendum til æfinga
og keppni og er það verðmætasti árangur
félagsstarfsins. Samhliða þessu hefur félag-
ið kappkostað að vera með æfingagjöld
eins lág og kostur er og nýtir til þess styrk
frá sveitarfélaginu, lottóstyrk og fjáröflun
sem félagið stendur fyrir, s.s. dósasöfnun,
sem og ársgjald sem er 1.500 krónur.
Eldri flokkar
Meistaraflokkur Heklu í körfubolta karla
hefur keppt í 2. deild KKÍ síðustu ár. Meist-
araflokkur í blaki kvenna starfar í samvinnu
við Dímon á Hvolsvelli og urðu þær m.a.
HSK-meistarar í mars sl., í 1. og 2. deild.
Ný heimasíða
Umf. Hekla hefur unnið að því setja upp
og taka í notkun heimasíðu. Þar mun
félagið birta fréttir af því helsta sem er á
döfinni. Slóðin er www. umfhekla.is.
Kvennalið Heklu/
Dímonar sem urðu
HSK-meistarar í
blaki í 1. og 2. deild.