Morgunblaðið - 29.10.2012, Side 14
14 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
Geymslu-
fiessar hillur geta allir sett saman
Skrúfufrítt og smellt saman
í bílskúrinn,
geymsluna,
heimili›
og fyrirtæki›
og dekkjahillur
viðbótare
ining kr. 1
1.357.-
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Það eru alltaf
þjálfarar þér
til aðstoðar
… Heilsurækt fyrir konur
Ég vinn á hjúkrunarheimili sem félagsliði.
Ég byrjaði að æfa í Curves fyrir ári síðan, af því
ég vildi léttast og styrkja mig. Ég hef æft ca.
3x í viku og líkar rosalega vel. Á þessum tíma
hef ég losnað við 10 kg og er miklu hressari
núna. Curves er frábær staður með frábæru
starfsfólki. Ég þarf ekki að panta tíma, kem að
æfa þegar það passar mér best.
Paula HolmPaula Holm, 40 ára
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur
Nýtt!
bjóðum
nú einnig
upp á tri
mform
Fjármálaráðherra Þýskalands,
Wolfgang Schäuble, segir ekki koma
til greina að fjárfestar taki á sig
lækkun á grískum skuldabréfum. Í
viðtali hjá Deutschlandfunk Radio
sagði hann allt tal um slíka lækkun,
eða „klippingu“ eins og það er kallað,
ekki eiga neitt skylt við veruleikann
hjá aðildarríkjum evrusvæðisins.
Hins vegar kann að vera í myndinni
að innleiða einhvers konar skulda-
kaupaáætlun þar sem Grikkland
myndi t.d. fá ný lán til að endur-
greiða eldri skuldir.
Reuters-fréttastofan greinir frá
að grísk stjórnvöld hafi verið að leita
leiða til að létta byrðarnar af björg-
unarlánum ríkisins með lækkun
vaxta og lengingu lánanna.
Þá hefur fréttastofa Bloomberg
eftir Mario Draghi, forseta Seðla-
banka Evrópu, að hann styðji hug-
myndir Schäubles um að koma á
embætti fulltrúa sem hefði vald yfir
fjárlögum aðildarþjóða Evrópusam-
bandsins. Draghi lýsti yfir stuðningi
sínum í viðtali við Der Spiegel. Þar
sagði hann að það væri viturlegt fyr-
ir ríkisstjórnir aðildarríkja að skoða
þessa hugmynd vandlega. Sagði
hann að til að endurvekja traust
markaða á evrusvæðinu þyrftu lönd-
in að færa hluta af fullveldi sínu yfir
til Evrópu. ai@mbl.is
Þýskaland útilokar
„klippingu“
grískra skulda
Hugmyndir um
yfirþjóðlega evrópska
fjárlagastjórn njóta
stuðnings Draghi
AFP
Útfærslur Schäuble vill ekki að fjár-
festar taki á sig skell vegn Grikkja.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Markaðsfræðingurinn Christian
Grönroos hélt á föstudag erindi
hér á landi í boði MBA-náms Há-
skóla Íslands. Koma Grönroos til
landsins þykir mikill hvalreki en
hann er í hópi þekktari markaðs-
fræðinga heims.
Erindi Grönroos bar yfirskrift-
ina „Eru markaðsfræðin bara ein
stór mistök?“ (e. Is marketing af-
ter all one big mistake?). Hann
segir margt benda til að markaðs-
fræðin sé lent í öngstræti. Rót
vandans felst í því að markaðs-
fræðin hefur í mörgum fyrir-
tækjum verið mörkuð af og ein-
angruð við tiltekna deild, frekar
en að vera innlimuð í dagleg störf
allra starfsmanna við allar deildir.
„Það hefur átt sér stað mjög af-
gerandi verkskipting þar sem
markaðsmálin eru einfaldlega sett
í hendur ákveðinna starfsmanna
innan fyrirtækisins, en aðrir
starfsmenn líta ekki á markaðs-
vinnuna sem hluta af sínu starfs-
sviði; þeirra verkefni er eingöngu
að framleiða, selja og afgreiða.“
Handelsbanken slær í gegn
Grönroos segir til mikils að
vinna að stemma stigu við þessari
stífu hlutverkaskiptingu og inn-
leiða markaðsfræðimiðaða hugsun
og vinnubrögð í öll þrep starfsem-
innar. Hann segir ekki hægt að af-
marka markaðsvinnuna við eina
deild því í raun komi allir starfs-
menn að markaðsstarfinu ef þeir
eiga beinan eða óbeinan þátt í að
hafa áhrif á val viðskiptavina og
upplifun þeirra af vörunni.
Hann nefnir sænska bankann
Handelsbanken sem gott dæmi
um rétta nálgun: „Handelsbanken
er í dag umsvifamikill alþjóðlegur
banki en borið saman við aðra
stóra banka á helstu viðskipta-
svæðum er Handelsbanken að
gera allt aðra hluti. Um var að
ræða langt ferli sem hófst árið
1970 með aðkomu Jans Walland-
ers sem tók óðara til við að gera
starfsemi bankans mun dreifstýrð-
ari. Til að gera langa sögu stutta
þá er útkoman í dag að ánægja
viðskiptavina bankans mælist
langtum meiri en hjá keppinaut-
um, bankinn ver mun minni fjár-
munum til auglýsingakaupa og
skilar ár eftir ár meiri hagnaði en
aðrir bankar.“
Grönroos segir breytingar í
þessa veru oft geta verið allt ann-
að en einfaldar í framkvæmd. Inn-
leiðing nýrrar markaðshugsunar
kann að færa bæði stjórnendur og
almenna starfsmenn út fyrir sitt
þægindasvið. „Það er líka mik-
ilvægt að skilja að það er ekki
nein töfralausn að láta starfsmenn
sitja nokkur námskeið í sölu- og
markaðsmálum. Raunin er að
byrðin hvílir mest á stjórnend-
unum, og að þeir skilji að um er
að ræða grundvallarbreytingu í
langtímastefnu og störfum fyr-
irtækisins.“
Eru markaðsmenn-
irnir í einangrun?
Verkaskipting afmarkar markaðsstarfið of mikið
Allir starfsmenn ættu að eiga þátt í markaðsstarfinu
Morgunblaðið/Ómar
Takmarkanir „Markaðsmálin eru einfaldlega sett í hendur ákveðinna
starfsmanna innan fyrirtækisins, en aðrir starfsmenn líta ekki á markaðs-
vinnuna sem hluta af sínu starfssviði,“ útskýrir Christian Grönroos.