Morgunblaðið - 29.10.2012, Qupperneq 23
hverfis- og samgöngunefnd frá
2011 og sat í Íslandsdeild Norð-
urlanda-
ráðs 2009-2011.
„Þetta land á ærinn auð, ef...“
Ásmundur, fórstu á þing til að
verja íslenskan landbúnað?
„Ég fór í pólitík sem málsvari
lands og þjóðar: til að vekja athygli
á þeim óendanlegu möguleikum
sem landið býr yfir, hvort heldur
sem er í hefðbundnum íslenskum
landbúnaði eða með annarri skyn-
samlegri landnýtingu.
Við verðum hvarvetna vör við
aukna eftirspurn eftir því sem land-
ið gefur af sér. Það er nú þegar auk-
in eftirspurn eftir íslenskum mjólk-
urafurðum og hún á einungis eftir að
aukast. Það er aukin eftirspurn eftir
lambakjöti, við erum farin að selja
íslenskt hey sem gæðafóður erlendis
og íslenskt korn er á hraðri leið með
að verða hágæða samkeppnisvara
og verðmæt til útflutnings, skóg-
rækt hefur aldrei verið meiri og
nytjaskógrækt er orðin að veruleika
auk þess sem miklir möguleikar eru
í vinnslu á þörungum og marg-
víslegum fiskitegundum.
Berðu bara saman brúna og nær-
ingarríka, íslenska gróðurmold og
ljósan leirinn í Evrópu sem hefur
verið mergsoginn af ræktun um
aldaraðir. Það er til nóg af góðum
fyrirtækjum til að markaðssetja
góða vöru, en það skortir land og
góð ræktunarskilyrði. Þessu búum
við yfir. Við Íslendingar erum á
hraðri leið með að verða hágæða-
matvælaframleiðendur og möguleik-
arnir eru óendanlegir.
En við verðum að nýta okkur
sóknarfærin. Við þurfum að setja
skynsamleg lög um kaup og sölu á
jörðum og landi – skipuleggja skyn-
samlega landnýtingu – verðum að
þora að standa á eigin fótum og
horfa á heiminn í heild, en forðast
það, um fram allt, að láta múra okk-
ur inni í tolla- tilskipunar- og reglu-
gerðarfargani ESB.“
Fjölskylda
Eiginkona Ásmundar er Sunna
Birna Helgadóttir, f. 17.10. 1978,
bóndi. Hún er dóttir Helga Torfa-
sonar, fyrrv. forstöðumanns Nátt-
úruminjasafns Íslands, og Ellu B.
Bjarnarson sjúkraþjálfara.
Dætur Ásmundar og Birnu eru
Aðalheiður Ella, f. 2006, og Júlía
Hlín, f. 2008.
Hálfsystkini Ásmundar, sam-
mæðra, eru Hulda Þórðardóttir, f.
18.5. 1977, nuddari, búsett í Hafn-
arfirði; Daníel Johan Mikaelsson, f.
4.11. 1997, nemi í Hafnarfirði.
Foreldrar Ásmundar eru Daði
Einarsson, f. 26.5. 1953, bóndi á
Lambeyrum, og Anna Sigríður Guð-
mundsdóttir, f. 26.2. 1960, húsfreyja.
Úr frændgarði Ásmundar Einars Daðasonar
Ásmundur
Einar Daðason
Anna Guðrún
Hallgrímsdóttir
frá Laxárdal í Hrútafirði
Jón Guðmundsson
gullsmiður og ljós-
myndari í Ljárskógum
Guðmundur Jónsson
b. í Ljárskógum
Ástríður Hansdóttir
húsfr.
Anna Sigríður
Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigrid Fivelsgal
í Noregi
Hans Fivelsgal
í Noregi
Valdís Sólveig Einarsdóttir
húsfr. í Rvík
Ólafur Jónsson
yfirþjónn í Rvík
Einar Ólafsson
b. og skipstj. á Lambeyrum
Sigríður Skúladóttir
húsfr. á Lambeyrum
Daði Einarsson
b. á Lambeyrum í
Laxárdal í Dölum
Jóhanna Lilja Kristjánsdóttir
húsfr. á Dönustöðum
Skúli Jóhannesson
b. á Dönustöðum í Laxárdal
Viktoría Skúladóttir
garðyrkjum. í Helguvík á Álftanesi
Gunnar Guðbjörnsson
óperusöngvari
Guðbjörn Guðbjörnsson
óperusöngvari
Jón frá Ljárskógum
skáld og söngvari í
MA-kvartettinum
Hilmar B. Jónsson
varaforseti Alheimssam-
taka matreiðslumeistara
Jófríður Jónsdóttir í
Kaldaðarnesi á Ströndum
Þorsteinn Jónsson
sóknarpr. á Mosfelli
Stórtækar vélar Dæturnar og
hundurinn hjálpa til við bústörfin.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
Gísli Sigurbjörnsson, forstjórielli- og hjúkrunarheimilisinsGrundar, fæddist í Reykja-
vík 29.10. 1907. Hann var sonur Sig-
urbjörns Ástvalds Gíslasonar, kenn-
ara, ritstjóra og prests á elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund, og k.h.,
Guðrúnar Lárusdóttur, rithöfundar
og alþm. Gísli missti móður sína og
tvær systur í mjög sviplegu slysi
sem frægt varð, er bifreið með þeim
mæðgum rann út í Tungufljót í
Biskupstungum 1938. Þetta var eitt
fyrsta alvarlega bílslysið hér á
landi.
Guðrún Lárusdóttir var önnur
konan sem kjörin var á Alþingi.
Auk þess dóu þrjú systkina Gísla í
barnæsku. Alls urðu systkinin tíu
en meðal þeirra voru Lárus, rithöf-
undur og minjavörður Reykjavík-
urborgar, sem var öðrum fremur
stofnandi Árbæjarsafns; Friðrik
stórkaupmaður og Lára kennari,
móðir Einars Þorsteins Ásgeirs-
sonar arkitekts sem vann með Ólafí
Elíassyni myndlistarmanni ytra
byrðið stórfenglega á Hörpunni.
Gísli stundaði nám við Verslunar-
skóla Íslands og lauk þaðan prófum
1927. Hann var um skeið frímerkja-
kaupmaður en stofnaði Elli- og
hjúkrunarheimilið Grund 1934, var
forstjóri þess og síðar jafnframt
forstjóri Áss í Hveragerði frá 1952.
Auk þess að vinna brautryðj-
andastarf í þágu aldraðra sinnti
Gísli mikið íþróttamálum, bindind-
ismálum og ferðamálum alla tíð.
Hann var einn af stofnendum
Krabbameinsfélags Íslands og for-
maður knattspyrnufélagsins Vík-
ings um skeið. Hann gegndi auk
þess fjölda trúnaðar- og ábyrgð-
arstarfa á ýmsum vettvangi.
Gísli kvæntist Helgu Björns-
dóttur húsfreyju og eignuðust þau
fjórar dætur, Nínu Kristínu, sem
hefur starfað lengi við Grund; Sig-
rúnu, sem lengi var kennari við FÁ;
Guðrúnu, forstjóra elli- og hjúkr-
unarheimilisins Grundar, en sonur
hennar er Gísli Páll Pálsson, for-
stjóri dvalarheimilisins Áss í Hvera-
gerði, og Helgu, sem nú er látin.
Gísli lést 7.1. 1994.
Merkir Íslendingar
Gísli Sigur-
björnsson
95 ára
Ingveldur Jónasdóttir
90 ára
Benjamín Jóhannesson
Guðmunda Kristjana
Jónsdóttir
Gústaf Símonarson
85 ára
Ásgeir Björgvinsson
Ingibjörg Sigurðardóttir
Marý Valdís Jónsdóttir
80 ára
Almar Gestsson
Halldór Marteinsson
75 ára
Guðgeir Sumarliðason
Hugrún Gunnarsdóttir
Þóra G. Helgadóttir
70 ára
Garðar Gíslason
Guðjón Guðmundsson
Hafsteinn Sigurðsson
Helga Óskarsdóttir
Herdís Kristín Björnsdóttir
Jóhann Ágústsson
Ólafur Karlsson
Rannveig Pálsdóttir
60 ára
Fríða Margrét Jónsdóttir
Magnús Guðmundsson
Marey Allyson Macdonald
Steinunn Jóna Geirsdóttir
50 ára
Áskell Örn Ólafsson
Chanpen Hanlue
Einar Axel Schiöth
Einar Örn Benediktsson
Halldóra Pétursdóttir
Jóhanna Margrét
Jóhannesdóttir
Lúðvík Magnús Ólason
Svavar Bergsteinn
Björnsson
40 ára
Berglind Salvör
Heiðarsdóttir
Bjarni Þór Gylfason
Elías Samúelsson
Erika Martins Carneiro
Guðlaug Friðgeirsdóttir
Haraldur Þór Egilsson
Ingimar Örn Gylfason
Ingólfur Hartvigsson
Karl Pálmason
Rakel Björg Jónsdóttir
Sigurjón Ólafsson
Þórdís Arnardóttir
30 ára
Andy Victor Nilsson
Baldvin Ósmann
Brynjólfsson
Birna Rún Sævarsdóttir
Egill Fannar Rúnarsson
Elísabet Tania Smáradóttir
Haukur Hilmarsson
Kristinn Már Brynjólfsson
Rakel Björk Benediktsdóttir
Rósa Margrét Húnadóttir
Sarah Jane Dearne
Þórður Ingi Guðmundsson
Til hamingju með daginn
30 ára Egill lauk BA-prófi
í félagsfræði frá HÍ, starf-
ar við sölu- og þjónustu-
deild ÁTVR og er vínsérfr.
við Vínbúðina, Dalvegi.
Maki: Jóhanna Pálsdóttir,
f. 1987, þroskaþjálfi.
Dóttir: Rakel Ásta, f.
2010.
Foreldrar: Fríða Böðv-
arsdóttir, f. 1953, mat-
reiðslumaður og rithöf-
undur, og Jónas Ingi
Ottósson, f. 1952, flug-
vallastarfsmaður.
Egill
Jónasson
40 ára Högni er vél-
smiður en rekur Italiano
Pizzeria í Kópavogi og
bílasöluna Bifreiðar.is.
Maki: Marta Halldórs-
dóttir, f. 1975, húsfreyja.
Börn: Rakel Ýr, f. 1996;
Andri Jökull, f. 2000;
María Rán, f. 2001, og
Viktor Jökull, f. 2008.
Foreldrar: Gunnar Jökull
Hákonarson, f. 1949, d.
2001, trommari, og Mar-
grét Kolbeins, f. 1951,
starfar á Morgunblaðinu.
Högni Jökull
Gunnarsson
50 ára Aðalsteinn lauk
prófum í netagerð frá Iðn-
skólanum í Reykjavík og
er netagerðarmeistari.
Maki: Elsa Sigurbjörg
Bergmundsdóttir, f. 1963,
útibússtj. ÁTVR í Ólafsvík.
Synir: Snæbjörn, f. 1987,
og Hólmkell Leó, f. 1991.
Foreldrar: Snæbjörn
Aðalsteinsson, f. 1940,
fyrrv. lögreglumaður, og
Kristín Lárusdóttir, f.
1942, fyrrv. versl-
unarmaður og húsfr.
Aðalsteinn
Snæbjörnsson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
KULDAGALLA
R
Á ALLA
FJÖLSKYLDU
NA