Morgunblaðið - 31.10.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
DAGSKRÁ
Lifandi tónlist
Frostrósir
Friðrik Ómar
Happdrætti
KYNNINGAR
Karl K. Karlsson
Hafliði súkkulaðimeistari
MARSEILLE sápur
Kaffitár
Búrið
ÓTRÚLEG TILBOÐ
30% af öllum
CHRISTMAS jólavörum,
MARSEILLE sápum,
kertum og púðum
KONUKVÖLD
FIMMTUDAGINN 1. NÓVEMBER
Frá 18:30-21:00
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Auður Sveinsdóttir
Laxness lést á mánu-
dag, 29. október, 94 ára
að aldri.
Auður fæddist á Eyr-
arbakka 30. júlí 1918.
Foreldrar hennar voru
Sveinn Guðmundsson
járnsmiður og Halldóra
Kristín Jónsdóttir hús-
móðir.
Fjölskylda Auðar
fluttist til Reykjavíkur
þegar hún var sjö ára
og bjó á Bárugötu.
Auður giftist Hall-
dóri Laxness rithöfundi í desember
1945. Þau kynntust á Laugarvatni og
í bókinni Á Gljúfrasteini rifjaði Auð-
ur fyrstu kynni þeirra upp: „Við
Halldór fórum út að ganga að kvöldi
til. Við gengum svolítinn spöl inn dal-
inn og settumst á þúfu við lítinn læk.
Stuttu síðar teygði
Halldór sig eftir blómi
yfir öxlina á mér, og
þar með voru forlögin
ráðin.“
Auður og Halldór
byggðu heimili sitt á
Gljúfrasteini í Mosfells-
dal þar sem þau bjuggu
ásamt dætrum sínum
Sigríði og Guðnýju.
Auður var handa-
vinnukennari að
mennt. Hún fékk
snemma áhuga á fé-
lagsmálum og kven-
réttindabaráttu, var meðal stofnenda
kvennablaðsins Melkorku árið 1944,
sat lengi í ritnefnd tímaritsins Hugur
og hönd og skrifaði greinar um vefn-
að, prjón og fornar íslenskar listir í
þessi rit. Auk þess vann hún að hann-
yrðum og hönnun, meðal annars á
flíkum úr íslenskri ull. Þekktustu
mynstur sem rutt hafa sér til rúms á
lopapeysum síðustu áratugi og marg-
ir telja ævaforn hannaði Auður fyrir
hálfri öld. Auður var manni sínum
mikil stoð og stytta en þegar frá leið
gegndi hún sífellt veigameira hlut-
verki í vinnuferli hans. Í viðtali við
Morgunblaðið í apríl árið 2002 sagð-
ist hún hafa orðið einskonar einkarit-
ari Halldórs með tímanum og hlustað
á bækur hans verða til. „Það gekk
þannig fyrir sig að hann sat í horninu
og „dikteraði“ mér. En svo þegar
hann var kominn í síðustu yfirferð þá
var ég að sjálfsögðu með allt á blöð-
um, enda þá búin að vélrita sömu
bókina margsinnis. Ég tók því þátt í
hverri einustu yfirferð,“ sagði Auður
í viðtalinu. „Þetta var mikil vinna.“
Auður dvaldi síðustu ár á dvalar-
heimilinu Grund í Reykjavík þar sem
hún lést á mánudag.
Andlát
Auður Sveinsdóttir Laxness
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Við erum ennþá rafmagnslaus. Það
gæti varað lengi, kannski sex til tíu
daga. Netið er komið aftur inn, það
datt út í einhvern tíma vegna þess að
grein brotnaði og lenti á rafmagns-
línu, en gert var við það fljótlega, sem
betur fer. Ísskápurinn er í gangi því
við erum sjálf með rafal. Einnig er
gasið ennþá á og við höfum vatn,“ seg-
ir Margrét Hannesdóttir, sem er bú-
sett í New Jersey og lærir söng við
Westminster Choir College. Hún seg-
ir að það væsi ekki um sig.
Ein búð opin í nágrenninu
„Ein búð er opin í hverfinu sem er í
dýrari kantinum. Hún hefur til um-
ráða stóran rafal. Búðin fór ekki vel út
úr síðasta fellibyl, Írenu, og er því
núna vel undirbúin. Fyrir utan búðina
bíður fólk í röðum til dæmis til að
hlaða símana sína.“
Margrét er sjálfri sér nóg um raf-
magn. Nágrannar hennar hafa leitað
á náðir hennar og fengið að hlaða
síma.
Einn fárra sem komust til vinnu
Brynjólfur Stefánsson býr í Upper
West Side í New York ásamt fjöl-
skyldu sinni. Hann vinnur á hrávöru-
markaði og verslar með olíu. Hann er
einn fárra sem komust til vinnu í gær.
„Við erum mjög fá í vinnunni í dag.
Neðanjarðarkerfið er í lamasessi. Það
lítur út fyrir að það taki langan tíma
að koma því aftur í gagnið, talað er
um að það taki allt frá fjórtán tímum
til tveggja vikna. Það kom gríðarlega
mikið saltvatn niður í öll göng. Það er
einstaklega slæmt fyrir þessi kerfi því
þeim er stýrt með rafmagnsbúnaði
sem fer illa í saltvatni, þá myndast
ákveðin filma í kringum öll tengi. Áð-
ur en fólki er hleypt niður er gengið
úr skugga um að allt sé öruggt.“
Hann segir að eyðileggingin sé
meiri en fólk gerði ráð fyrir.
„Ég vaknaði um miðja nótt þegar
sprengingin varð í Consolidated Edis-
on-raforkuverinu í austurhluta Man-
hattan. Himinninn lýstist allur upp og
varð alveg blár. Annars hef ég lítið
um Sandy að segja. Ég vaknaði alveg
við veðrið en ég bý á svæði sem slapp
ótrúlega vel, sem betur fer,“ segir
Hildur Haraldsdóttir, nemi í upp-
tökufræðum, búsett í Midtown Man-
hattan .
Himinninn lýstist upp við sprenginguna
Eyðileggingin töluverð en þó væsir
ekki um Íslendingana á svæðinu
AFP
Flóð Götur New Jersey eru víða á floti eftir fellibylinn Sandy. Fólk hefur
þurft að flytja brott af heimilum sínum sökum flóðs og rafmagnsleysis.
Bændur á norðanverðu landinu hafa undanfarið
búið sig undir illviðrið sem er í veðurkortunum
og hugað að búpeningi sínum. Verið var að
smala þessu stóði í skjól skammt frá Hofsósi í
gær. Þá var verður byrjað að versna.
Búist er við stormi, þ.e. meðalvindhraða frá 20
metrum á sekúndu og upp úr, á Norðvesturlandi
í dag en víða um landið seint í kvöld, að því er
greint er frá á vefsíðu Veðurstofunnar.
Spáð er norðan- og norðaustanvindi, 8-15 m/s,
á höfuðborgarsvæðinu í dag en 10-18 m/s undir
kvöld. Þá er spáð norðan 13-20 m/s ásamt snjó-
komu norðan til á landinu og norðaustan 18-23
m/s á Vestfjörðum en 10-18 m/s annars staðar.
skulih@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Veðurstofan býst við stormi víða um land í kvöld
Um fjörutíu Íslendingar ætla á
vegum Hlaupaferða í New
York-maraþonið sem á að
halda á sunnudag. Hlaupinu
hefur ekki verið aflýst.
„Inni á heimasíðu New York-
maraþonsins segir að þeir séu
að fylgjast með. Þeir hafa sent
póst og sagst vera í viðbragðs-
stöðu en ég bendi þó á að þeir
héldu New York-maraþonið
eftir 11. september, þannig að
við verðum að trúa því að þeir
verði snöggir að laga þetta
núna,“ segir Matthildur
Hermannsdóttir, eigandi
Hlaupaferða.
Verði snöggir
að laga þetta
HLAUPARAR BÍÐA OG VONA
„Við erum svona að byrja á því að
reyna að virkja þetta betur. Þetta var
náttúrlega notað á Skáldabúðaheið-
inni, þá voru heimamenn ríðandi og
það kom mjög vel út,“ segir Jóhann
Pjetur Jónsson, formaður Björg-
unarhesta, aðspurður út í námskeið
sem Björgunarskóli Landsbjargar
hélt nýlega en námskeiðið fjallaði um
notkun hesta við leit og björgun.
„Það er ekki alls staðar hægt að
koma fjórhjólum eða sleðum að og þá
er þetta gott. Kosturinn við þetta er
að hesturinn sér um að fóta sig og þá
hefur knapinn augun á landinu í
kringum sig en ef þú ert á fjórhjóli
eða gangandi horfirðu meira niður
fyrir þig,“ segir Jóhann en hann á von
á því að notkun hesta við björgun
muni aukast á næstu árum.
Ljósmynd/Jóhann Pjetur Jónsson
Leit Hestar fóta sig, menn leita.
Nota hesta
við leit og
björgun