Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Golli
Tolli Að taka andlega afstöðu til lífsins er ákveðin pólitísk afstaða, sem felst í því að taka ábyrgð á eigin hamingju.
hafa hugrekki til að taka þessa af-
stöðu.“
Tolli sækir mikið út í náttúr-
una og hefur gaman af því að
ganga á fjöll, hjóla og sigla kajak.
„Þá tek ég inn öll áhrif náttúrunnar
og leita í þann brunn þegar ég
mála. Fjöllin í nýju verkunum eru
karakterar úr Fjallabaksleið norð-
an jökla þar sem gróandi er upp
um alla sanda. Ég hef verið að leika
mér með græna litinn í þessum
landslagsmyndum en þær hafa
þróast hægt og bítandi, bæði í
tækni og litum. Í minni myndunum
get ég líka leyft mér að vera ab-
strakt og spontant, sem ég næ ekki
í stóru myndunum. Ég nota ein-
falda pensilskrift sem fyllir upp í
rýmið í litlu myndunum. Þá kemur
kröftug bygging í myndina og önn-
ur tónlist.“
Í stærri myndunum er staka
yfirgefna húsið sem hefur gengið
eins og stef í gegnum myndir Tolla.
„Ég er heillaður af eyðibýlum. Þeg-
ar maður kemur að þeim þá finnur
maður fyrir lífsins hjóli. Allt þetta
smáa og persónulega er inni í rým-
inu, blöð og haframjölspakkar en
utan við eru kannski svakaleg fjöll,
opið haf og himinn. Þarna bjó fólk
og ól upp börnin sín. Eyðibýli í
mínum verkum stendur fyrir mann-
inn sem er umvafinn krafti náttúr-
unnar.“
Sjómennskan happadráttur
Tolli segist hafa álitið lista-
menn helvítis aumingja hér áður.
„Ég var stútfullur af hroka þegar
ég var á sjó og var að leita að ein-
hverri sjálfsmynd sem bit væri í.
En sjómennskan var mikill happa-
dráttur fyrir mig, ég lærði mikið af
því, kynntist landi og þjóð og höf-
uðskepnunum. Þar lærði ég vinnu-
aga sem kemur sér heldur betur
vel, því það krefst gríðarlegs aga að
starfa sem myndlistarmaður. Ef ég
skoða mitt karma þá hefur allt í lífi
mínu haft tilgang, bæði hið góða og
slæma. Erfiðleikarnir eru jarðveg-
urinn sem lótusblómið vex upp úr.
Maður rekur sig á og gerir mistök,
en enginn þroski verður án þess.
Ég er sáttur þegar ég lít um öxl.
En ég undrast oft hver hafi skrifað
þetta handrit sem líf mitt er.“
Mitt framlag til friðar
Tolli gafst upp fyrir alkóhól-
isma fyrir sautján árum og hann
segir þá uppgjöf hafa verið fyrsta
skref sitt inn í andlega tilveru. „Það
er gríðarlegur skóli að vinna með
tólf spora kerfið og í framhaldi af
því fann ég minn farveg í búddism-
anum. Þegar maður efast ekki
lengur, þá kemur friðurinn. Ég
mála þessar nýju myndir með tals-
verðri vissu og hef gaman af og vil
deila því með öðrum. Þetta er mitt
framlag til friðar, sem listamaður,
en ég sem manneskja leitast líka
við að hjálpa öðrum og er með ýmis
verkefni í gangi, sem er þáttur í því
að heila sjálfan sig og eiga gott líf.“Morgunblaðið/Golli
Fjall Einföld pensilskrift og kröftug bygging.
Á morgun fimmtudag kl. 20
opnar Tolli sýningu sína Friður
í Smiðjunni Listhúsi, Ármúla 36.
Sýningin stendur til 14. nóvember.
Morgunblaðið/Golli
Jarðlitir Tolli sækir efnivið út í íslenska náttúru.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012
Skoda Superb 2.0
TDi, Árg. 2011, dísel
Ekinn 44.000 km, sjálfsk.
Suzuki Swift 1300 GL
4WD, Árgerð 2011, bensín
Ekinn 40.000 km, beinsk.
Ásett verð:
4.390.000,-
Toyota Land Cruiser
150, Árgerð 2012, dísel
Ekinn 33.500 km, sjálfsk.
Nissan Pathfinder 2500
SE. Árgerð 2008, dísel
Ekinn 106.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
9.290.000,-
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
MM Pajero 3,2 Instyle
Árgerð 2012, dísel
Ekinn 21.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð:
9.390.000,-
GOTT ÚRVAL
AF NÝLEGUM
GÆÐABÍLUM
Ásett verð:
2.190.000,-
Ásett verð
4.200.000,-
Fuglavernd hvetur veiðimenn til að
sýna samstöðu um hófsama veiði. Í
tilkynningu frá félaginu segir:
Það er allra hagur að rjúpnaveið-
ar séu sjálfbærar til framtíðar.
Rjúpan er hænsnfugl og sá eini
sem lifir villtur á Íslandi. Rjúpan er
þýðingarmikill fugl í íslensku vist-
kerfi og m.a. forsenda fyrir tilvist
fálka hér á landi. Rjúpnastofninn
sveiflast reglulega og stofnstærð
virðist ná hámarki á um 10 ára
fresti og getur verið allt að tífaldur
munur á rjúpnamergð í lágmarki
og hámarki. Líklega eru það nokkr-
ir samverkandi þættir sem hafa
áhrif á sveiflurnar svo sem fæðan,
sníkjudýr og afrán. Uppi eru kenn-
ingar um að umferð veiðimanna
um búsvæði rjúpunnar auki
viðbótarafföll umfram það sem
veitt er.
Við hvetjum til hóflegra veiða og
að boð og bönn séu virt og minn-
um á að sá sem kaupir eða selur
rjúpu eða afurðir hennar er að
brjóta lög.
Fuglavernd
Ljósmynd/Daníel Bergmann
Hvatt til hóf-
samrar veiði
Morgunblaðið/Ómar