Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Austurbæjarskóli sigraði í hæfileikakeppninni
Skrekk, en úrslitin réðust í Borgarleikhúsinu í
gærkvöldi. Margir áhorfendur fylgdust með og
hvöttu lið sín til dáða, en í lokin voru það nem-
endur Austurbæjarskóla sem fögnuðu mest.
Átta skólar kepptu til úrslita, auk Austurbæj-
arskóla voru það Ölduselsskóli, Háteigsskóli,
Ingunnarskóli, Kelduskóli, Hlíðaskóli, Fellaskóli
og Breiðholtsskóli. Þetta er í þriðja skiptið sem
Austurbæjarskóli vinnur, en skólinn vann einnig
2005 og 2008. Í öðru sæti Skrekks varð Ingunn-
arskóli og Hlíðaskóli í því þriðja. skulih@mbl.is
Ákafir nemendur hvöttu sitt fólk til dáða á úrslitakvöldi í Borgarleikhúsinu
Morgunblaðið/Ómar
Austurbæjarskóli sigraði í hæfileikakeppninni Skrekk
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég var að keyra upp Gerðhamrana
og sá allt í einu kvikindi hlaupa niður
götuna. Það var of stórt til að vera
köttur og hljóp svolítið einkennilega.
Það kom í huga minn að þetta væri
ljótur hundur en svo áttaði ég mig á
að þetta var tófa. Ég hef séð refi á
Hornströndum og yrðlinga í Hóla-
skjóli og þetta minnti mig á þá,“
sagði kona, sem átti leið um Grafar-
voginn eftir hádegi sl. fimmtudag.
Hún lýsti dýrinu sem grámóskulegu
á lit með hvítum yrjum, með mjó-
slegið trýni, granna framfætur og
áberandi loðið skott.
„Ég var að tala við manninn minn
og mér brá svo að ég var næstum
búin að keyra út af. Ég sagði við
hann: Ég trúi þessu ekki, það er tófa
að hlaupa hérna,“ sagði konan. „Ég
bremsaði og horfði á eftir henni. Ég
sá vel á hliðina á henni, þetta mjóa
framstæða trýni og þetta úfna skott.
Þetta leit út eins og rebbi.“
Hún sagði að stutt væri niður í
fjöru þaðan sem hún sá dýrið og það
stefndi einbeitt niður götuna.
Er á ferðinni í byggð
„Hún er á ferðinni í byggð,“ sagði
Þráinn Ómar Svansson, mein-
dýraeyðir hjá Reykjavíkurborg, um
tófuna. Hann sagðist hafa heyrt af
tófum á ferð í Grafarvogi. Þær skytu
alltaf upp kollinum öðru hverju.
„Þetta berst ofan úr Mosfellsheiði.
Hún er í ætisleit, ræfillinn,“ sagði
Þráinn um kaupstaðarferðir tóf-
unnar.
Tófur í úthverfunum
Jónas Bjarnason, fyrrverandi lög-
reglufulltrúi og refaskytta, býr
neðst í Gerðhömrum. Hann stundaði
refaveiðar í ein fjörutíu ár á Reykja-
nesi, Mosfellsheiði og Hellisheiði.
Jónas sagði aðspurður að hann
hefði ekki orðið var við tófu á þess-
um slóðum en taldi alls ekki ólíklegt
að hún gæti hafa verið þarna á ferð.
Jónas sagði að stór svæði sunnan við
borgina væru í raun friðuð fyrir
tófuveiði, hið opinbera legði ekkert
til refaveiða og menn nenntu ekki að
eltast við hana í hraununum.
„Hún er farin að vera hér niðri í
úthverfunum, ég hef frétt af því,“
sagði Jónas. „Ég hef aldrei séð hana
hér en hún getur alveg hlaupið eftir
fjörunni.“
Jónas sagðist kannast við gráyr-
jóttar tófur og sagði að þær hefðu
sloppið úr búrum. „Ég skaut margar
svoleiðis á Reykjanessvæðinu, búr-
tófur,“ sagði Jónas. Hann sagði að
þessir refir hefðu verið stærri en
þeir íslensku.
Liturinn tortryggilegur
Guðna Þór Bjarnasyni, tófuskyttu
á Hraðastöðum III í Mosfellsdal,
þótti litur dýrsins tortryggilegur
þótt lýsingin passaði að öðru leyti
við tófu. Hann sagði að á Mosfells-
heiði væru aðallega hvítar og mó-
rauðar tófur. Guðni sá þar fyrstu
„Land Rover-brúnu“ tófuna á liðnu
sumri. Hvítu tófurnar eru orðnar al-
hvítar fyrir nokkru og þær mórauðu
eru orðnar enn dekkri en þær voru í
sumar. Guðni sagði að gráyrjóttu
búrdýrin hefðu verið talin útdauð, en
„maður skyldi aldrei segja aldrei“.
Guðni sagði að Mosfellsbær stæði
sig vel í því að halda lágfótunni í
skefjum.
Telur sig hafa séð tófu í Grafarvogi
Kona ein telur sig hafa séð tófu á ferli í götunni Gerðhömrum Meindýraeyðir segir tófur vera á
ferðinni í byggð í ætisleit Reynd tófuskytta telur ekki ólíklegt að tófa geti hafa verið þarna á ferð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Yrðlingar Þessir yrðlingar áttu
heima í Langadal í Þórsmörk.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Verulegur hluti sparifjár landsmanna er á inn-
lánsreikningum sem bera neikvæða raunvexti
vegna lágra innlánsvaxta og mikillar verðbólgu
og innlán heimilanna halda áfram að minnka.
Þau drógust saman um 4,5% á þriðja ársfjórð-
ungi ársins frá því sem var á sama tíma í fyrra,
fyrst og fremst á peningamarkaðsreikningum
og óbundnu sparifé, en á móti varð aukning í
öðru bundnu sparifé heimila.
Um seinustu mánaðamót áttu heimilin rúm-
lega 600 milljarða í innlánum. Þar af nam hlut-
ur verðtryggðra innlána, sem bera raunvexti,
rúmlega 222 milljörðum kr. Þar er meðtalinn
viðbótarlífeyrissparnaður, sem nam rúmum 88
milljörðum og innstæður á orlofsreikningum.
Ef lífeyrissparnaður og orlofsfé er ekki tekið
með í reikninginn er hlutur verðtryggðra inn-
lána aðeins um sjötti hluti af heildarinnlánum
heimilanna í landinu eða 21,4%.
Stærsti hlutinn óbundið sparifé
Önnur innlán heimila, sem eru samkvæmt
upplýsingum Seðlabankans flokkuð undir
óverðtryggð innlán heimila, voru um 388 millj-
arðar kr. um seinustu mánaðamót. Þar af voru
26,6 milljarðar á gjaldeyrisreikningum.
Stærsti hlutinn var óbundið sparifé, þ.e. pen-
ingar á innlánsreikningum sem eru alltaf lausir
til útborgunar. Heimilin áttu rúmlega 188
milljarða í óbundnu sparifé á reikningum inn-
lánsstofnana í lok október, höfðu innstæðurnar
þá dregist saman um 3,5 milljarða á einum
mánuði og alls um 14,5 milljarða frá sama mán-
uði í fyrra.
Íslensk heimili áttu rúmlega 32 milljarða á
peningamarkaðsreikn-
ingum um seinustu
mánaðamót en innlán á
þessum reikningum
hafa dregist umtalsvert
saman eða um 25,5
milljarða frá sama tíma
fyrir ári.
Annað bundið
sparifé heimilanna
þ.e.a.s. innstæður sem
eru annaðhvort með
umsömdum binditíma
eða innstæður sem eru
uppsegjanlegar eftir tilkynningu, var um 53
milljarðar um seinustu mánaðamót og hafði
aukist um rúman milljarð á einum mánuði.
Þó að ekki liggi fyrir nákvæmar upplýsingar
um hversu stór hluti þeirra peninga sem eru á
óverðtryggðum innlánsreikningum bankanna
bera neikvæða raunvexti er ljóst að það á við
um megnið af óbundnu sparifé í bönkunum
miðað við árshraða verðbólgunnar.
Lengd binditíma og fjárhæð
Almennir innlánsvextir á sparisjóðsbókum
eru í dag 0,9% og óbundnir og óverðtryggðir
reikningar bera yfirleitt innan við 2% vexti.
Þegar um lengri binditíma er að ræða og hærri
innistæður er algengast að innlánsvextir séu á
bilinu 3% og allt upp 4,9% eftir lengd binditíma
og fjárhæð. Ef um enn lengri binditíma er að
ræða og fasta vexti getur raunávöxtunin verið
jákvæð. Sé tekið mið af 5,3% verðbólgu á síð-
ustu 12 mánuðum má sjá að raunávöxtun spari-
fjár er t.d. neikvæð um 1,4% á reikningi sem
ber 3,8% nafnvexti. Hún er neikvæð um 0,4%
ef vextirnir eru 4,8%.
Aðeins 21% innlána verðtryggt
Heimilin áttu rúmlega 188 milljarða í óbundnu sparifé á reikningum innlánsstofnana í lok október
Háar fjárhæðir íslenskra heimila eru á innlánsreikningum sem bera neikvæða raunvexti
Brot 49 ökumanna voru mynduð á
Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í gær.
Fylgst var með ökutækjum sem var
ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt,
við Arnarneslæk. Á einni klukku-
stund, eftir hádegi, fór 951 ökutæki
þessa akstursleið og því ók lítill
hluti ökumanna, eða rúmlega 5%,
of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var 94
km/klst en þarna er 80 km há-
markshraði. Sá sem hraðast ók
mældist á 134. Vöktun lögregl-
unnar á Hafnarfjarðarvegi er liður
í umferðareftirliti hennar á höf-
uðborgarsvæðinu.
Aukið eftirlit á gatnamótum
Á næstunni mun lögregla halda
úti sérstöku auknu eftirliti á völd-
um ljósastýrðum gatnamótum á
höfuðborgarsvæðisins til 7. desem-
ber næstkomandi. Eftirlitið verður
á þeim gatnamótum þar sem slys
hafa orðið flest síðustu ár sam-
kvæmt tölum Umferðarstofu eða ef
sérstök ástæða önnur þykir til, svo
sem vegna hraðaksturs eða vegna
ábendinga til lögreglu um ógæti-
legan akstur.
Rúm 5% ökumanna
keyrðu of hratt
Morgunblaðið/Sigurgeir S.