Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 6

Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012 SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA SÉRSMIÐI innréttingar, borðplötur, sprautulökkun info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Björgun skipverjanna tveggja af fiskibátnum Jónínu Brynju ÍS úr fjörunni á Straumnesi gekk hratt og vel fyrir sig, að sögn Björns Brekk- an Björnssonar, flugstjóra á þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF. Vegna vindstrengs niður kletta Straumnesfjalls þurfti þyrlan þó á öllu sínu vélarafli að halda til að hanga yfir fjörunni á meðan skip- brotsmennirnir voru hífðir um borð. „Þetta gekk bara vel. Aðstæður voru þokkalegar,“ segir Björn Brekkan um björgunarleiðangur- inn. Björgunarþyrla Landhelgisgæsl- unnar, LÍF, flaug beint frá Reykja- vík á slysstað. Þetta var í fyrrakvöld og komið myrkur. „Við fórum í hæð og beint á staðinn, lækkuðum okkur niður yfir sjó út af Straumnesinu. Við sáum vitann strax í nætursjón- aukanum og bátinn í kjölfarið enda var hann ennþá upplýstur. Hann var um það bil sjómílu norðan við vit- ann, skorðaður á milli stórra steina í fjörunni og braut hressilega yfir hann og allt í kring,“ segir Björn. Komust ekki neitt Mennirnir tveir komust sjálfir í land og biðu björgunar í fjörunni sem er um tíu metra breið undir klettum Straumnesfjalls. Björn seg- ir að þeir hafi verið tiltölulega öruggir þar en ekki komist neitt þar sem ekki var hægt að komast að þeim frá sjó. Hann segir að vindstrengurinn sem kom niður klettastálið hafi truflað flugmennina aðeins. Hann hafi komið ofan á vélina og því verið erfitt að hanga yfir mönnunum á meðan þeim var bjargað. Sigmað- urinn seig niður og skipbrotsmenn- irnir voru hífðir upp í þyrluna. Björn segir að ekki hafi tekið nema sjö mínútur að ná þeim upp. „Um leið og mennirnir voru komnir um borð gerði snjóél. Að öðru leyti gekk þetta vel,“ segir Björn. „Það er alltaf viss áhætta að hanga undir klettum en ég met það ekki svo að við höfum verið í bráðri hættu,“ segir Björn um aðstæðurn- ar. Hann segir að þyrlan hafi staðið vel fyrir sínu. Erfitt hefði verið að standa í þessari björgun á minni vél og erfitt hefði verið að athafna sig án nætursjónauka, eins og alltaf í myrkri. Lukka að komast í land Mennirnir voru fluttir til Ísafjarð- ar þar sem þeir voru færðir á sjúkra- hús til aðhlynningar. Flugstjórinn segir að líkamlegt ástand skipbrotsmannanna hafi ver- ið gott, miðað við aðstæður. „Það var ofsalega gott að þeir skyldu sleppa óslasaðir í land. Það er alger lukka, en þeim var brugðið,“ segir Björn.́ Hann segir að erfitt hafi verið að átta sig á ástandi bátsins vegna myrkurs. Hann hafi kastast um á milli stórra steina í fjörunni þegar þeir fóru. Þurfti á öllu sínu afli að halda  Aðeins tók sjö mínútur að hífa skipverjana tvo af Jónínu Brynju úr fjörunni á Straumnesi um borð í TF-LIF  Erfitt að hanga yfir mönnunum vegna vindstrengs niður af Straumnesfjalli Mynd/Landhelgisgæslan Á strandstað Svona voru aðstæður þegar þyrlan kom, báturinn í flæðarmálinu og skipverjarnir biðu björgunar. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Áhöfnin Teitur Gunnarsson sigmaður, Hannes Petersen þyrlulæknir, Sverrir Andreassen spilmaður, Andri Jóhannesson flugmaður og Björn Brekkan Björnsson flugstjóri á Ísafjarðarflugvelli að björgun lokinni. TF-LIF er af gerðinni Aerospa- tiale Super Puma. Hún er í eigu Landhelgisgæslunnar og hefur þjónað sem aðalbjörgunarþyrla Gæslunnar frá 1995. Hún fór í stóra skoðun á síðasta ári. Hún er búin til leitar með nætursjón- auka. Landhelgisgæslan er með á leigu tvær aðrar björgunarþyrlur af sömu gerð. TF-GNA kom til landsins 2009. TF-SYN var tekin á leigu fyrr á þessu ári. Hún er ekki jafn vel búin til björgunar- starfa í myrkri. Leit og björg- un í 17 ár BJÖRGUNARÞYRLAN LIF Egill Ólafsson Helgi Bjarnason „Þetta er eitthvað sem ég vildi aldrei lenda í og ég vona að ég eigi aldrei eftir að lenda í þessu aftur,“ sagði Einar Jón Snorrason, sjómaður í Bolungarvík, sem bjargaðist ásamt félaga sínum þegar Jónína Brynja ÍS-55 strandaði við Straumnes. Skipverjar voru á leiðinni heim að lokinni veiðiferð á sunnudagskvöld. Veðrið var sæmilegt, suðvestan kaldi. „Við fórum upp í Straumnes- fjöru. Það er alltaf mikið brim við Straumnesið enda miklir straumar sem mætast þarna,“ sagði Einar. Töldu á milli aldnanna Skipverjarnir sendu út neyðarkall eftir að báturinn strandaði. „Við drif- um okkur svo í land þegar við vorum búnir að fullvissa okkur um að það hefði komist til skila. Við þurftum reyndar smátíma til að mana okkur upp í að stökkva frá borði.“ Einar sagði að fjaran á þessum stað væri stórgrýtt. „Við þurftum að sæta lagi. Við vorum búnir að telja á milli aldnanna og náðum þannig að komast upp í fjöruna. Við þurftum bara að láta okkur vaða og slökuðum okkur niður á spotta.“ Skipverjarnir komust þannig upp í fjöru án þess að blotna. Ofan við fjör- una er þverhnípi. Einar sagði að ekki hefði væst um þá í fjörunni. Þeir hefðu verið þurrir í hlýjum göllum. „Manni fannst þetta bara vera enda- laus bið,“ sagði Einar en um klukku- tími leið þangað til þyrlan kom til þeirra. Þeir höfðu framan af ljós frá bátnum, en eftir að drapst á vélinni þurftu þeir að bíða í myrkri í fjör- unni. Lögreglan á Vestfjörðum fer með rannsókn málsins. Teknar voru skýrslur af skipverjunum tveimur í gær. Hlynur Snorrason rannsóknar- lögreglumaður segir að málið sé að verða nokkuð skýrt en kveðst ekki geta greint frá því efnislega á þess- ari stundu hver tildrög slyssins voru. Rannsóknarnefnd sjóslysa vinnur sjálfstæða rannsókn og er gagna- öflun hafin. Nefndin fær einnig gögn úr rannsókn lögreglunnar. Að rann- sókn lokinni gefur nefndin út skýrslu um slysið. Einar sagðist ekki vilja ræða um ástæður þess að báturinn strandaði. Þetta hefði verið óhapp sem orsak- aðist af mannlegum mistökum. Vilborg leysir af Einar sagði að báturinn hefði ver- ið talsvert skemmdur. Gat kom á botninn og hægt hefði verið að sjá inn í vélarrúmið. Bátur fór í gær á vegum tryggingafélagsins og út- gerðarinnar, Jakobs Valgeirs ehf., til að athuga ástand bátsins og hvort einhverju væri hægt að bjarga. Jónína Brynja leysti af hólmi afla- bátinn Guðmund Einarsson ÍS. Út- gerðin er að útbúa annan bát til veiða í stað Jónínu Brynju. Það er báturinn Vilborg ÍS sem notaður var þegar Guðmundur Einarsson ÍS bil- aði. Jakob Valgeir Flosason útgerð- armaður reiknar með að Vilborg fari á sjó í dag. Þá segir hann að athugað verði með aðra báta til að óhappið raski starfseminni sem minnst. „Við þurftum bara að láta okkur vaða“  Skipverjum á Jónínu Brynju fannst biðin í fjörunni löng Strandstaður á Straumnesi Loftmyndir ehf. Straumnesfjall Straumnes Straumnesdalur Skorar Straumnesviti Ratsjárstöð Siglingaleið Jónínu Brynju Strandstaður Fiskibáturinn Jónína Brynja ÍS-55 er af nýrri gerð, Cleopatra 40B, sem Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði smíðar. Bátur- inn var afhentur eigand- anum, útgerðarfélaginu Jakob Valgeir ehf. í Bol- ungarvík, í byrjun mán- aðarins. Hann var búinn til línuveiða. Báturinn mælist 15 brúttótonn. Hann var öfl- ugur og ýmsar nýjungar í honum frá eldri gerð. Með- al annars hefur gírinn innbyggð tvö gírhlutföll. Efra hlutfallið er notað þegar siglt er með léttan bát út á miðin en neðra hlutfallið þegar bátnum er siglt hlöðnum til hafnar. Báturinn kostaði um 130 millj- ónir króna með tækjabúnaði. Þá var hann með afla um borð enda á siglingu til Bolungarvíkur eftir að hafa vitjað um línuna. Nýr og dýr fiskibátur Nýr Jónína Brynja ÍS var glæsilegur bátur frá Trefjum í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.