Morgunblaðið - 27.11.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Það er í sjálfu sér ekkert flók-ið að ganga á skíðum. Mað-ur bara rennir öðrum fæt-inum fram fyrir hinn og ýtir
sér með stöfunum. Eða hvað? Nei,
málið er ekki alveg svona einfalt. Það
þarf að finna rétta taktinn, spyrna á
réttum tíma, láta sig renna í skrefinu,
beita stöfunum rétt, vera mjúkur í
hnjám og mjöðmum og ekki gleyma
að hugsa um jafnvægið. Það þarf
meira að segja að læra að bremsa,
fara niður brattar brekkur og skipta
um spor. Gönguskíðafólk þarf þar að
auki að setja sig inn í eitt flóknasta
álitamál sem mannkynið stendur
frammi fyrir; á að velja riffluð eða
óriffluð gönguskíði? Og ef óriffluð
verða fyrir valinu, hvaða fatt-áburð á
þá að setja undir skíðin?
Það veitir því svo sannarlega
ekki af æfingabúðunum líkt og þeim
sem boðið var upp á á Ísafirði um
helgina.
Í búðunum var lögð mikil
áhersla á tækniæfingar og eftir að
þjálfararnir, þ.á m. tveir fyrrverandi
ólympíufarar, höfðu predikað yfir
lýðnum og sýnt hvernig á að fara að
þessu fylgdust þeir með og bentu
fólki á það sem betur mátti fara.
Það kom dálítið á óvart hversu
mikið þarf að taka á með magavöðv-
um, öxlum og handleggjum, einkum
þríhöfða vöðvunum, og eftir æfingar
töluðu margir um að þeim væri hrein-
lega orðið illt í maganum af áreynslu.
Mest mæðir samt á fótunum.
Telja upp að
þremur í skrefinu
Til að göngutakturinn verði góð-
ur þarf margt að smella saman.
Einna mikilvægast er að spyrnan í
göngunni sé rétt tímasett. Í sem
stystu máli sagt þá á að spyrna með
fremri fætinum um það bil þegar sá
aftari er kominn upp að hlið hans
(þeir sem eitthvað vita um göngu-
skíði, vita hvað átt er við).
Svona lagað er ekki hægt að
læra af bók (eða morgunblaði) heldur
er eina leiðin að reyna sjálfur og helst
að fá tilsögn.
En þó að bóklegt nám í göngu-
skíðatækni dugi skammt og dálítið
flókið að koma efninu til skila með
skriflegum hætti, sakar ekki að
benda á nokkur atriði sem þjálf-
ararnir bentu á um helgina.
Ekki má sveifla handleggjunum
of hátt og svo þarf að lyfta sér upp á
tærnar í sveiflunni og láta skíðin
renna en þegar hægt er að telja upp
að þremur á meðan þau renna í
hverri sveiflu er fólk á réttri leið.
Önnur aðferð til að koma sér
áfram á skíðunum felst í að ýta sér
áfram með báðum stöfum og spyrna
með öðrum fæti. Þegar þeirri aðferð
er beitt þarf að beita magavöðunum
og setja líkamsþungann ofan á stafina
og passa sig á að nota fæturna á víxl
við spyrnuna. Um leið og stöfunum er
stungið niður getur verið gott að láta
sem fólk sé að lyfta öðru hnénu til
móts við búkinn.
Í æfingabúðum til að
finna rétta taktinn
Fjallað var um flest mögulegt og ómögulegt sem viðkemur gönguskíðum í æf-
ingabúðum fyrir Fossavatnsgönguna sem haldnar voru í Seljalandsdal fyrir ofan
Ísafjörð frá fimmtudegi til sunnudags í samvinnu Skíðafélags Ísafjarðar, Hótels
Ísafjarðar og Ísafjarðarbæjar. Þjálfararnir pössuðu sig að hlæja ekki þegar að-
komumenn duttu á rassinn, þ.á m. blaðamaður Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Rúnar Pálmason
Sveifla Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði og gönguskíðakappi, sýnir
grunnstöðuna. Guðfinna dóttir hans hjálpar til við sýniskennsluna.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Nú eru þeir
kaldir hjá Eirvík
Bjóðum takmarkað magn af kæli- og frystiskápum frá Liebherr.
Þeir eru búnir nýjustu tækni, hannaðir af alúð og framleiddir af
þýskri nákvæmni. Einstök framtíðareign.
Quality, Design and Innovation
SÉRVERÐ
Nr. litur Hæð Stærð í ltr. Orkufl. Sérverð
CUsl 3503 grár 181,7 cm K 232 F 91 A+ 174.700,-
CPesf 3523 stál 181,7 cm K 230 F 91 A++ 199.995,-
CP 3523 hvítur 181,7 cm K 230 F 91 A++ 180.995,-
Ces 4023 stál 201,1 cm K 281 F 91 A+ 194.995,-
C 4023 hvítur 201,1 cm K 281 F 91 A+ 156.995,-
vil
bo
rg
a@
ce
nt
ru
m
.is
Carrie Lundell er skýrt dæmi um
konu sem virðist geta allt. Ætla
mætti að hún gæti stöðvað tímann til
að koma öllum sínum áhugamálum
fyrir. Hún er fjögurra barna móðir
sem vann áður við að hanna stúlkna-
föt fyrir Old Navy í New York. Nú
heldur hún úti heimasíðu þar sem
hún kemur hönnun sinni á framfæri.
Hitt áhugamálið, hreyfingin, virðist
stundum ætla að verða yfirsterkara.
Það er áhugavert og hvetjandi að
fylgjast með henni ráðast í og klára
hverja keppnina á fætur annarri á
milli þess sem hún saumar kjóla.
Vefsíðan www.thismamamakesstuff.com
Saumandi íþróttakona Carrie Lunden rétt ókomin í mark í þríþrautarkeppni.
Hleypur, hjólar og saumar
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Næsta Hleðsluhlaup á Ísafirði verður farið
fimmtudaginn 6. desember næstkomandi
og hefst klukkan 18. Hlaupið hefst við
hringtorg hjá Ísafjarðarkirkju og eru
hlaupnir 5 km á hlaupastígum. Leiðin er al-
veg flöt og góð til að ná hraða og er tíma-
taka.
Einnig er boðið uppá 2,5 km hlaup/
göngu og 11 km hjólreiðar eftir hraðbraut
frá Ísafirði. Umsjónarmenn eru Benni Sig
(bennisig@vikari.is) og Martha Ernstdóttir.
Endilega…
…sprettið í Hleðsluhlaupi
Hlauparar Tími til að skipta
yfir í vetrargallann.
Ekki er alltaf hægt að ganga á flat-
lendi og því voru brekku- og bremsu-
æfingar ekki umflúnar. Í sjálfu sér er
einfalt að renna sér niður, maður set-
ur sig bara í brunstellingu og lætur
sig gossa – en það erfiða er að halda
sig í sporinu og fljúga ekki út úr
brautinni. Þjálfararnir sögðu að aðal-
málið væri að vera mjúkur í hnjánum
en af fenginni reynslu blaðamanns
dugar það skammt ef trúin er ekki
fyrir hendi, þ.e. trúin á að maður
komist niður án þess að detta. Þegar
sú trú glatast er stutt í fallið.
Byrjendabremsan sem kennd var á
námskeiðinu er líka ósköp einföld og
kunnugleg; bara að lyfta öðru skíðinu
eða báðum upp úr sporinu og setja í
plóg. Þetta getur þó mistekist enda
eru gönguskíðin örmjó, hællinn er
laus og engir stálkantar. Nokkrir
hlutu því þokkalegustu byltur en aðr-
ir gátu staðið hverja einustu ferð en
það var bara fyrir einhverja algjöra
glópaheppni.
Brekkuæfingarnar komu sér vel því
brautin í Seljalandsdal er mishæðótt
og sumar brekkur allbrattar en um
leið feikilega skemmtilegar, jafnvel
þótt maður detti.
Mjúkur í hnjánum og fylgja sporinu
Brun Þessi datt ekki en það var svindl, hann er þaulvanur skíðamaður.
Trúin mikilvæg í brekkunum