Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 20

Morgunblaðið - 27.11.2012, Side 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Mohamed Morsi, forseti Egypta- lands, ræddi í gær við æðstu dóm- ara landsins og hermt var að hann hefði léð máls á því að takmarka völd sín vegna harðra viðbragða við tilskipun hans sem veitti honum stóraukin völd. Tilskipunin kveður meðal annars á um að dómstólarnir geti ekki ógilt tilskipanir og ákvarðanir forsetans eða leyst upp stjórnlagaþing sem á að semja nýja stjórnarskrá. Dóms- málaráðherra Egyptalands sagði fyrir viðræður forsetans við dómar- ana í gær að Morsi léði máls á því að takmarka þetta ákvæði við mál sem heyrðu beint undir þjóðhöfðingj- ann. Forsetinn kvaðst einnig vona að málamiðlunarsamkomulag næðist við andstæðinga Bræðralags músl- íma, samtaka forsetans, um stjórn- lagaþing sem á að semja nýja stjórnarskrá. Markmiðið með til- skipuninni væri að koma í veg fyrir að dómstólar græfu undan tilraun- um til að koma á lýðræði. Neita að semja Leiðtogar andstæðinga Bræðra- lags múslíma sögðu að ekki kæmi til greina að semja við Morsi. Einn þeirra, Mohamed ElBaradei, fyrr- verandi yfirmaður Alþjóðakjarn- orkumálastofnunarinnar, sagði að Morsi hefði „komið á einræði“ með tilskipuninni. Auk þess að banna dómstólunum að ógilda ákvarðanir forsetans tók hann sér vald til að grípa til hvers konar aðgerða sem hann teldi nauð- synlegar til að verja byltinguna og tryggja stöðugleika, einingu ríkis- ins og öryggi þjóðarinnar. Morsi leggur áherslu á að tilskip- unin gildi aðeins þangað til ný stjórnarskrá hefur verið sett og nýtt þing kosið. Eric Trager, banda- rískur sérfræðingur í málefnum Austurlanda nær, bendir á að lík- legt sé að Morsi og bandamenn hans í Bræðralagi múslíma hafi bæði tögl og hagldir í landinu eftir að ný stjórnarskrá tekur gildi. Íslamistar eru í meirihluta á stjórnlagaþingi, sem skipað var til að semja stjórn- arskrá, og fulltrúar annarra hópa hafa gengið úr því, sakað þingið um að vera ólýðræðislegt. Óttast íslamska stjórnarskrá Tager telur að með tilskipuninni hafi Morsi sameinað andstæðinga íslamista sem hafi áður verið mjög sundraðir, t.a.m. sósíalista, komm- únista, kristna Egypta og frjáls- lynda veraldlega stjórnmálaflokka. „Með því að taka sér framkvæmda- vald og losa sig við eftirlit dómstól- anna með svo ósvífnum hætti hefur Morsi gert þeim kleift að breiða yfir aðrar deilur þeirra,“ hefur frétta- vefnur CNN eftir Trager. Morsi hefur verið gagnrýndur fyr- ir að hafa ekki ráðfært sig við and- stæðinga sína áður en hann gaf til- skipunina út. Þeir segja að hann hafi tekið sér meiri völd en Hosni Mub- arak einræðisherra hafði áður en honum var steypt af stóli fyrir tæp- um tveimur árum og völd hans séu næstum án nokkurra takmarkana. Þótt Morsi segi að markmiðið með þessu einræðisvaldi hans sé að tryggja „frelsi og lýðræði“ óttast margir Egyptar að ætlun hans sé að auka völd forsetaembættisins og Bræðralags múslíma til frambúðar. Megintilgangurinn með tilskipun- inni sé að gera íslamistunum í stjórn- lagaráðinu kleift að semja íslamska stjórnarskrá. Tilskipunin sögð sameina andstæðinga íslamista AFP Ólga Mótmælendur kasta grjóti að lögreglumönnum í Kaíró. Stuðningsmenn og andstæðingar Bræðralags múslíma ætla að efna til fjöldafunda í dag vegna deilunnar um aukin völd forseta Egyptalands.  Forseti Egyptalands reynir að semja við dómara um málamiðlunarlausn Ofmat hann styrk sinn? » Morsi tók mikla pólitíska áhættu þegar hann gaf út til- skipunina sem veitti honum aukin völd, að mati fréttaskýr- anda BBC, Jon Leyne. » Morsi gaf tilskipunina út skömmu eftir að honum hafði verið hælt í hástert fyrir að tryggja vopnahlé milli Ísraela og Hamas-samtakanna. Hann hugðist notfæra sér þennan sigur til að styrkja stöðu sína heima fyrir. » Leyne telur að Morsi kunni að hafa ofmetið styrk sinn. Norska lög- reglan bað í gær formlega afsök- unar á aðild sinni að því að hundr- uð gyðinga voru handtekin í Nor- egi og flutt úr landi í síðari heimsstyrjöld- inni. Stjórn Vid- kuns Quislings, sem var tekinn af lífi árið 1945, fyrirskipaði árið 1942 að gyðing- arnir skyldu fluttir í fangabúðir nasista. Um 2.100 gyðingar bjuggu í Noregi þegar stríðið hófst og 772 þeirra voru fluttir úr landi. Aðeins 34 lifðu af vistina í fangabúðunum, að sögn norskra sagnfræðinga. Biðst afsökunar á því að hafa flutt gyðinga úr landi Vidkun Quisling NOREGUR Mikil óvissa ríkir um hvort efnt verður til þjóðaratkvæðagreiðslu í Katalóníu um hvort sjálfstjórnar- héraðið eigi að lýsa yfir sjálfstæði frá Spáni. Flokkur Arturs Mas, for- sætisráðherra Katalóníu, missti tólf þingsæti í kosningum til þings hér- aðsins á sunnudag og fékk 50 sæti af 135. Katalónskur vinstriflokkur, sem er hlynntur sjálfstæði, fjölgaði hins vegar þingsætum sínum úr 10 í 21. Þótt þeir séu með meirihluta er ólíklegt að þeir myndi sam- steypustjórn eftir kosningarnar. Líklegra er að Mas myndi stjórn með Sósíalistaflokknum eða Þjóð- arflokknum sem eru báðir andvígir þjóðaratkvæðinu. Beið ósigur Artur Mas með eiginkonu sinni, Helenu Rakosnik. Mikil óvissa um þjóðaratkvæði AFP KATALÓNÍA Að minnsta kosti fjórtán manns fór- ust í eldsvoða á vinnustofu fyrir fatlaða í Þýskalandi í gær. Sex manns til viðbótar voru fluttir á sjúkrahús með alvarleg brunasár, að sögn lögreglunnar. Eldurinn kviknaði á verkstæði í bænum Titisee-Neustadt í Svarta- skógi í suðvesturhluta Þýskalands. Um 100 slökkviliðsmenn voru send- ir á staðinn og þeim tókst að slökkva eldinn nokkrum klukku- stundum eftir að hann kviknaði. Þyrlur voru notaðar við slökkvi- starfið. Eldsupptökin voru ókunn, að sögn slökkviliðsmanna á staðn- um. Fjölmennt lið lögreglu var einnig á staðnum. Sálfræðingar veittu ætt- ingjum þeirra sem fórust áfalla- hjálp, að sögn fréttaveitunnar AFP. Á verkstæðinu unnu um það bil 120 fatlaðir starfsmenn, meðal ann- ars við trésmíðar. Ekki kom fram hversu margir þeirra voru í vinnu- stofunni þegar eldurinn kviknaði eða hvort eldfim efni voru geymd í byggingunni. AFP Mannskæður bruni Slökkviliðsmenn að störfum við vinnustofu fatlaðra sem brann í bænum Titisee-Neustadt í Þýskalandi. Fjórtán brunnu inni á verkstæði fatlaðra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.