Morgunblaðið - 27.11.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.11.2012, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2012 Hópur Norðmanna hyggst bjarga þriggja mastra seglskipi, Maud, sem norski landkönnuðurinn Roald Amundsen sigldi, og flytja það til Nor- egs um mitt næsta ár. Ráðgert er að hafa skipið til sýnis á nýju safni í Nor- egi. Hópurinn er nú í Cambridge-flóa í Norður-Kanada, þar sem skipið sökk, til að taka myndir af því. Skrokkur skipsins er fastur í ís og sést að hluta. Norski listamaðurinn Jan Wang- gaard, sem fer fyrir hópnum, segir að íbúar á staðnum hafi hirt allt lauslegt úr skipinu og það hafi einnig látið á sjá vegna íssins. Ástand skipsins sé þó „ótrúlega gott“. „Eikin í Maud virðist í góðu ástandi,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Wanggaard. Amundsen varð fyrstur manna til að sigla Norðvesturleiðina árið 1906 til að leita að styttri siglingaleið milli Evrópu og Asíu. Fimm árum síðar varð hann fyrstur manna til að komast á suðurpólinn. Honum tókst þó ekki að komast á norðurpólinn. Maud var smíðuð í Noregi árið 1917 og Amundsen sigldi skipinu Norð- austurleiðina á árunum 1918-1920. Hann reyndi aftur að komast á norðurpólinn frá Bering-sundi á árun- um 1920-1921 en honum tókst það ekki. Maud var skírð eftir Maud Noregs- drottningu. Skipið var selt Hudson’s Bay Company, elsta verslunarfyrir- tæki Norður-Ameríku, árið 1925 og fékk þá nafnið Baymaud. Það var not- að sem vörugeymsla og útvarpsstöð áður en það sökk 1930. Sveitarfélagið Asker í Noregi keypti skipið á einn dollar árið 1990 og fékk heimild til að flytja það til Nor- egs. Ekkert varð þó úr því og heim- ildin rann út. Kanadísk yfirvöld heim- iluðu norska hópnum að flytja Maud til Noregs þótt íbúar Cambridge-flóa hefðu lagst gegn því. bogi@mbl.is Skip Amund- sens flutt heim  Norskur hópur hyggst bjarga könnunarskipi og flytja það til Noregs Norsk hreyfing hyggst bjarga könnunarskipi Roalds Amundsens og flytja það til Noregs. Sögufrægu skipi bjargað Heimild: Fram-safnið/Maudreturnshome.com Skipið sökk í Cambridge-flóa í Norður-Kanada árið 1930 KANADA Cambridge- flói Nunavut NOREGUR Maud Smíðað í Asker í Noregi árið 1917 Lengd: 32,5 m Stærð: 385 tonn Kjölurinn er úr eik Roald Amundsen sigldi skipinu á könnunar- leiðöngrum á norðurslóðum á árunum 1918-1920 Werner Beckmann, starfsmaður Náttúrusögusafnsins í Münster í Þýskalandi, stillir upp beinum búrhvals sem rak á land á þýsku eyjunni Pellworm fyrir ári. 550 kíló- gramma þung hauskúpa og bein hvalsins verða til sýnis í náttúrusögusafninu í eitt ár. Hvalurinn var um fimm- tán metra langur. AFP Beinum búrhvals púslað saman Nýbirtar niður- stöður rann- sóknar benda til þess að reykingar skaði heilann og dragi úr getu manna til að læra og hugsa rökrétt. Rannsóknin náði til 8.800 manna yfir fimmtugu og bendir til þess að hár blóðþrýstingur og ofþyngd skaði einnig heilann. Vísindamenn við King’s College í London önnuðust rannsóknina. Þeir sögðu hana sýna að fólk þyrfti að gera sér grein fyrir því að óheil- brigður lífsstíll gæti dregið úr and- legri færni og skaðaði ekki aðeins líkamann. Rannsóknin var birt í tímaritinu Age and Ageing. Reykingar skaða heilann Tóbakið er skað- legt heilanum. Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum. Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit. Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft ekki annað tæki en bizhub C35. Verð: 379.900 kr. Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.