Morgunblaðið - 21.12.2012, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 1. D E S E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 300. tölublað 100. árgangur
dagar til jóla
3
Gáttaþefur
kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
VONAR AÐ SKAUP-
IÐ VERÐI ÞAÐ
BESTA HINGAÐ TIL
ÓTTAR FELIX TÁKNMYND
BÍTLAAÐDÁENDA
BJÚGNAKRÆKJA,
KERTASNÍKJA OG
STEKKJARSTÖNG
AFDRIFARÍKT VIÐTAL SKÁLDSKAPUR 6 TVÍBURASYSTUR JÓLASVEINANNA 10FJÓRÐA SKAUP GUNNARS 49
Fagrir tónar hljómuðu í Kringlunni í gærkvöldi þegar lands-
þekktir listamenn héldu jólatónleika. Unglingar í kammerkór
Bústaðakirkju, undir stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur,
sungu jólalögin eins og sannkallaðir englar; klæddir hvítum
kyrtlum og með ljós í hendi. Kaupglatt fólk staldraði við og
hlýddi á hátíðlega jólatónleika í miðri jólaösinni.
Senn líður að jólum og eflaust munu margir nýta komandi
helgi sem er sú síðasta fyrir jól til að kaupa gjafir og fylla
skápa og kæla af kræsingum. Margir kaupmenn hafa búðir
opnar lengur þessa síðustu daga fyrir jól, vel flestar eru opn-
ar til kl. tíu. Á Þorláksmessu hefur tíðkast að verslunareig-
endur haldi búðum sínum opnum til kl. ellefu.
Hvítklæddir unglingar sungu jólalögin eins og englar
Morgunblaðið/Kristinn
Opin hugmyndasamkeppni var
haldin á vegum Umhverfisstofn-
unar í samvinnu við Arkitektafélag
Íslands um umhverfi Gullfoss.
Fyrstu verðlaun hlaut tillagan,
Aldir renna. Höfundar hennar eru
arkitektarnir Eyrún Margrét Stef-
ánsdóttir og María Björk Gunn-
arsdóttir.
Í tillögunni er gert ráð fyrir nýj-
um útsýnisstöðum á svæðinu og
efnisvalið er m.a. unnið úr íslenskri
steypu. Hún mun verða lögð til
grundvallar deiliskipulagsvinnu á
svæðinu.
Svæðið í kringum Gullfoss hefur
orðið fyrir miklum átroðningi und-
anfarin ár. Umhverfisstofnun telur
brýnt að byggja upp stíga og útsýn-
ispalla til að hlífa umhverfinu og
tryggja aðgengi allra að fossinum
eins og kostur er, en þar er vinsæll
áningarstaður ferðamanna. »20
Nýir út-
sýnispallar
Tillaga um Gullfoss
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gullfoss Gert er ráð fyrir útsýn-
ispöllum í vinningstillögu.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Meirihluti efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis leggur til að við
álagningu opinberra gjalda verði
sett nýtt gjald, vegagjald, á starf-
semi bílaleiga en gjaldið á að reikn-
ast út frá virðisaukaskattskyldri
veltu vegna starfsemi bílaleiga.
Breytingartillögu meirihlutans við
frumvarp til laga um ráðstafanir í
ríkisfjármálum, svokallaðan band-
orm, var útbýtt á Alþingi í gær-
kvöldi. Samkvæmt drögum að nefnd-
aráliti meirihlutans um frumvarpið
verður ekki tekið tillit til innskatts-
frádráttar við álagningu gjaldsins. Í
breytingartillögunni segir að álagn-
ingin skuli nema 1,% af virðisauka-
skattskyldri veltu rekstrarársins á
undan.
Að sögn Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks-
ins og fulltrúa í nefndinni, er vega-
gjaldið 1,5% en hann segir það í raun
vera nýtt 27% virðisaukaskattsþrep
fyrir bílaleigur. „Það er bara látið
heita vegagjald en það er í rauninni
27%, nema það er verra af því að
maður fær ekki að draga neinn inn-
skatt af því,“ segir Guðlaugur Þór.
Þá er gert ráð fyrir því í breyting-
artillögu meirihluta efnahags- og
viðskiptanefndar Alþingis að að-
gangseyrir að íslenskum kvikmynd-
um verði ekki lengur undanþeginn
virðisaukaskatti. Sú undanþága hef-
ur verið í gildi frá 1990.
Leggja til nýtt vega-
gjald á bílaleigur
Gjaldið mun nema 1,5% af virðisaukaskattskyldri veltu rekstr-
arársins á undan Í raun 27% skattþrep, segir þingmaður
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Fjárlög ríkisstjórnarinnar
voru samþykkt á Alþingi í gær.
MUmdeild fjárlög afgreidd »2
Century Aluminum, móðurfélag
Norðuráls, keypti í sumar for-
skautaverksmiðju hollenska álvers-
ins Zalco sem var lokað um síðustu
áramót. Kaupin voru gerð vegna
breytinga í álverinu á Grundar-
tanga en verksmiðjan mun einnig
sjá álverinu í Helguvík fyrir raf-
skautum, þegar þar að kemur. »26
Átta milljarða fjár-
festing í rafskautum
Meirihluti
efnahags-
og við-
skipta-
nefndar
leggur til þá
breytingu á
umdeildri
tillögu um
afnám af-
sláttar bílaleiga af vörugjaldi,
að þær sem njóti þess skuli
greiða leyfisgjald. Leyfisgjald
þeirra yrði þá rúmlega 1,7 millj-
ónir vegna innflutnings allt að
35 bíla, rúmar 3,7 millj. vegna
allt að 250 bíla og rúmar 6,7
millj. vegna fleiri ökutækja.
1,7-6,7 millj-
óna leyfisgjald
NJÓTA LÆGRA VÖRUGJALDS