Morgunblaðið - 21.12.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.12.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. • 5. janúar í 10 nætur Verð frá 79.900,- til Kanarí Verð frá 79.900,- Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og eitt barn í búð á Roque Nublo. Verð m.v. 2 fullorðna í íbúð kr. 98.200. Sértilboð 5. janúar í 10 nætur. Sé rti lbo ð Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér sæti í sólina í byrjun janúar. Fleiri gistimöguleikar í boði á afar hagstæðu verði Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hvers vegna þykir það fréttnæmt þegar Óttar Felix Hauksson, tón- listarmaður og framkvæmdastjóri, fer í klippingu? Því var slegið upp á forsíðu Morgunblaðsins í gær að Óttar Felix hefði loksins sagt skil- ið við hártísku Bítlaæðisins eftir nærri 50 ára hárprýði. „Ætli síð- asta klippingin, þar sem hárið var svona stutt, hafi ekki verið um fermingu 1964,“ sagði Óttar Felix af því tilefni í samtali við Morg- unblaðið. Ástæða athyglinnar sem klipp- ingin vakti var að Óttar Felix varð ungur eins konar tákngervingur Bítlaæðisins – þótt hann héldi meira upp á Rolling Stones. Hann varð frægur á einni nóttu þegar viðtal birtist við hann í Morg- unblaðinu 9. október 1964, á af- mælisdegi Johns Lennons. Tilefni viðtalsins var að hinn 14 ára gamli Óttar Felix hefði farið 30 sinnum í Tónabíó til að horfa á Bítlakvikmyndina „A Hard Days Night“. Félagar hans tveir voru sagðir hafa farið nokkru sjaldnar á myndina, annar tíu sinnum og hinn tuttugu sinnum. Óttar Felix segir nú að viðtalið hafi að mestu verið skáldskapur í því skyni að vekja athygli á kvikmyndinni. At- hyglin varð óskipt og Óttari Felix til talsverðs ama á sínum tíma. Viðtalið sviðsett auglýsing „Blaðamaðurinn skáldaði tals- vert og færði í stílinn heldur fífla- legt viðtal,“ sagði Óttar Felix. „Ég leið svolítið fyrir þetta næstu ár- in.“ Óttar Felix sagðist hafa verið í sveit um sumarið og verið til- tölulega nýkominn til borgarinnar þegar hann féllst á það ásamt fé- lögum sínum að taka þátt í leikn- um. „Þetta var sviðsett auglýsing sem bíóið setti í gang. Það átti að búa til einhverja keppni á meðal unglinga því aðsóknin að myndinni var farin að dala,“ sagði Óttar Felix. „Þeir vildu fá einn sem hefði séð hana þrjátíu sinnum, annan sem hefði séð hana tuttugu sinnum og einn sem hefði séð hana tíu sinnum. Móðirin fékk að heyra það Þegar við komum þarna fé- lagarnir vorum við búnir að ráða okkar ráðum. Ég var sá sem hafði átti að hafa séð hana tíu sinnum og hinir oftar. Þegar ljósmynd- arinn og blaðamaðurinn mættu þá kom þeim saman um að skyn- samlegast væri að hafa mig í broddinum. Ég var nefnilega með bítlalegasta hárið! Þeir töluðu mig inn á það og ég lét mig hafa það.“ Óttar Felix segir að móðir sín heitin hafi verið afskaplega leið yfir þessu. Hún fékk að heyra það hvers lags þetta uppeldi það væri að láta 14 ára barnið hafa peninga til að sjá sömu kvikmyndina þrjá- tíu sinnum! „Þetta varð erfiðara og verra mál heldur en það sýndist,“ sagði Óttar Felix. Hann fékk líka að heyra glósur um það næstu árin að þarna færi „fíflið sem horfði á Bítlamyndina þrjátíu sinnum“. Þessu linnti þegar Óttar Felix hóf tónlistarferil sinn 16-17 ára í vin- sælum hljómsveitum þess tíma. Þá hafði Bítlamenningin einnig fest sig svo í sessi að það ríkti hálfgert stríð á milli kynslóðanna um hár- söfnun, eins og birtist berlega í sumum skólum landsins. „Ég var í Laugalækjarskóla á árunum 1964-65 og var kominn með þetta síða hár og gaf mig hvergi. Við vorum ekki margir með svona sítt hár þá. Svo síkkaði það bara,“ sagði Óttar Felix. Hann sagði að veturinn 1965 hefðu Rolling Stones tekið við af Bítl- unum sem leiðandi hljómsveit á meðal ákveðins kjarna unglinga. Hélt meira upp á Stones „Bítlarnir þóttu meira popp en Stones. Þá var vaxandi blues- og rythmabluesbylgja í London sem Stones leiddi. Við sem vildum Sto- nes söfnuðum enn meira hári,“ sagði Óttar Felix. „Ég hef haldið uppi merki Stones síðan. Við héld- um upp á 40 ára afmæli þeirra á Nasa en það er eftir að halda upp á 50 ára afmælið.“ Óttar Felix sagði að hljóm- sveitin Gullkistan mundi eflaust taka einhver Stones-lög á jóla- dansleikjum á Kringlukránni 28. og 29. desember og eins á Þrett- ándagleði þar 4. og 5. janúar. Þar verða Bítlaárunum gerð góð skil og „sixtís“ stemningin allsráðandi. Gullkistuna skipa sjóaðir tónlist- armenn. Auk Óttars Felix, sem var í Pops, eru þar innanborðs þeir Gunnar Þórðarson úr Hljóm- um, Ásgeir Óskarsson Stuðmaður og Jón Ólafsson úr Pelican. Tákngervingur Bítlaæðisins  Óttar Felix Hauksson varð táknmynd Bítlaaðdáenda  Afdrifaríkt viðtal byggt á ósannindum, að hans sögn  Stríð milli kynslóða um síða hárið Morgunblaðið/SÞ Bítlaunnendur Þessi mynd, sem tekin var utan við Tónabíó, birtist með viðtalinu fræga í október 1964. Bekkjar- félagarnir úr Laugalækjarskóla. F.v.: Guðmann Ingjaldsson, Óttar Felix Hauksson og Einar Pálmi Jóhannesson. „Ég var með tvo lærlinga á Bítla- árunum þegar aðrir hárskerar drógu saman seglin,“ sagði Guðjón Jónasson hárskerameistari sem um árabil var með rakarastofu í Veltusundi 1 í Reykjavík. Lær- lingarnir voru Garðar Sig- urgeirsson og Hinrik Þor- steinsson. Guðjón sagði að vinna hjá hár- skerum hefði dregist saman um meira en helming þegar Bítlaæðið stóð sem hæst. Flestir hárskerar voru einyrkjar og heyrði til tíð- inda ef einhver þeirra tók lærling á þessum tíma. „Ég var með þessa tvo lærlinga og það þótti afrek að ég skyldi halda þeim,“ sagði Guðjón. „Ég lagði áherslu á að láta við- skiptavinina algjörlega um það hvernig þeir vildu hafa hárið. Ég reyndi aldrei að stjórna því neitt og hafði heilmikið að gera á þess- um árum. Ég klippti menn eins og þeir vildu.“ Guðjón sagði að sumir eldri hár- skerar hefðu viljað taka ráðin af mönnum um hvernig þeir væru klipptir. Svo vildu foreldrar ráða klippingu sona sinna, þótt þeir væru komnir á unglingsár. Guðjón rifjaði upp sögu af því þegar faðir einn kom með son sinn í klipp- ingu. Feðgarnir voru ósammála um hvernig skyldi klippa og tók Guðjón svari stráksins. Karlinn vildi láta klippa meira og þá rauk strákurinn upp úr stólnum, reif af sér svuntuna og hljóp á dyr. Leyfði kúnn- unum að ráða Morgunblaðið/Ól.K.M. Rakarinn Guðjón Jónasson, hár- skerameistari á rakarastofunni í Veltusundi 1. Þegar bítlaæðið rann á æsku lands- ins reyndu sumir skólastjórnendur að hamla á móti síkkandi hártísku skólasveina. Oddur Sveinsson, fréttaritari á Akranesi, skrifaði frétt í gaman- sömum tóni sem birtist í Morgun- blaðinu 2. júní 1965 undir fyrirsögn- inni „Gáfnaljós með hrísbagga“. Þar segir af Rúnari sem kallaður var bítill, fullu nafni Rúnar Jóhann- es Garðarsson. Hann fékk ágæt- iseinkunn, 9,29, á barnaprófi frá Barnaskóla Akraness. Skólastjórinn tilkynnti honum að hann ætti von á tvennum bókarverðlaunum við skólaslit í kirkjunni – en hann yrði að láta klippa sig fyrir afhend- inguna. Rúnar man vel eftir klipp- ingunni vorið 1965. „Mér var heilmikið sárt um hárið. Þessi tíska var að byrja þá,“ sagði Rúnar. „Ég var einn af þeim fyrstu á Akranesi til að hafa sítt hár og var ekki vel við að láta klippa mig. En mér var ekki gefinn neinn annar kostur.“ Rúnar safnaði aftur hári og var síðhærður öll unglingsárin og fram á miðjan þrítugsaldur. Hann var í Verzlunarskólanum í fjögur ár og síðhærður og skeggjaður allan tím- ann. Eftir það vann hann í tísku- versluninni Karnabæ í nokkur ár og sat þá stundum fyrir í auglýsingum. Hann flutti síðan til Danmerkur og lét klippa sig þar. Rúnar hefur starfað sem flug- maður og flugrekstrarstjóri í Banda- ríkjunum síðustu 32 árin og býr nú í Seattle í Washington. Varð að fara í klippingu „Fyrrverandi bítill“ skrifaði í Vel- vakanda 28. nóvember 1965 og sagði farir sínar ekki sléttar. Þegar skólar byrjuðu um haustið fékk hann ekki að mæta fyrr en hann lét klippa sig. Samt þvoði hann sér um höfuðið annan hvern dag! „Hins vegar eru kennararnir ekki með vel hirt hár, þótt þeir láti sér ekki vaxa bítlahár. Þeir eru allir með flösu – nema einn. Hann er sköll- óttur,“ skrifaði bítillinn fyrrverandi. Voru skikkaðir í klippingu Morgunblaðið/Oddur Herraklipping Geirlaugur Árnason hárskeri á Akranesi klippti Rúnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.