Morgunblaðið - 21.12.2012, Side 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessir tónleikar eru hápunkturinn á
miklu afmælisári Mótettukórsins, en
kórinn fagnaði 30 ára afmæli sínu á
þessu ári með fjölda spennandi við-
burða,“ segir Hörður Áskelsson sem
stjórna mun Mótettukórnum í flutn-
ingi á Jólaóratoríunni eftir J.S. Bach í
Eldborg Hörpu laugardaginn 29. des-
ember og sunnudaginn 30. desember
kl. 17 báða daga.
Með kórnum leikur Alþjóðlega
barokksveitin í Den Haag, en kons-
ertmeistari er Tuomo Suni. Ein-
söngvarar eru Herdís Anna Jón-
asdóttir sópran, Daniel Cabena
kontratenór, Benedikt Kristjánsson
tenór og Stephan MacLeod bassi.
„Þetta eru allt ungir söngvarar, þar á
meðal tvær ungar og upprennandi ís-
lenskar stjörnur,“ segir Hörður.
Að sögn Harðar hefur Mótettukór-
inn reglulega flutt Jólaóratóríu Bachs
á sl. árum. „En þetta er í fyrsta skipt-
ið sem kórinn flytur hana ásamt Al-
þjóðlegu barokksveitinni í Den Haag.
Samstarfið við þessa barokksérfræð-
inga hefur auðgað
okkar tónlistar-
reynslu mjög mik-
ið og fært hana á
annan stað,“ segir
Hörður og bendir
á að samstarfið sé
til komið fyrir
milligöngu Guð-
rúnar Hrundar,
dóttur Harðar,
sem nam við bar-
okkdeild Konunglega tónlistarhá-
skólans í Den Haag í Hollandi. „Eftir
að hún flutti heim hjálpaði hún okkur
að manna þessa barokksveit með
fyrrverandi skólafélögum sínum, sem
í dag búa og starfa víðsvegar um
heiminn.“
Að sögn Harðar hefur barokk-
sveitin margsinnis komið hingað til
lands á undanförnum árum og flutt
ýmis stórvirki barokktímans í upp-
runastíl með kórum Hallgrímskirkju,
þ.e. Mótettukórnum og Schola can-
torum. Þeirra á meðal eru Jóhann-
esarpassía, Matthíasarpassía og H-
moll messa Bachs og Messías eftir
Händel. Aðspurður segir Hörður að
sér finnist upprunastíllinn hæfa þess-
um tónverkum mjög vel. „Með því að
flytja verk í upprunastíl er verið að
nálgast tónlist liðinna alda út frá for-
sendum hennar sjálfrar. Útkoman
verður mýkri, léttleikinn í barokkinu
og sveiflan eðlilegri, auk þess sem
tónhæðin hentar söngvurunum bet-
ur,“ segir Hörður og fer ekki dult
með það að sér finnist skipta máli að
Íslendingar fái að kynnast uppruna-
stílnum. „Með því vonast ég líka til að
fleiri fái áhuga á að læra að spila í
þessum stíl. Það væri ótrúlega gaman
ef við eignuðumst smám saman
stærri hóp tónlistarmanna sem gæti
spilað barokktónlist.“
Á fyrri tónleikunum verða fluttar
kantötur I til IV, en á seinni tónleik-
unum kantötur I, II, V og VI. Spurð-
ur hvers vegna sá háttur sé hafður á
bendir Hörður á að yfirleitt þegar
Jólaóratorían sé flutt séu aðeins flutt-
ar fyrstu þrjár kantöturnar, en þar
með sé aðeins hálf sagan sögð. „Okk-
ur langaði því til að flytja þær allar,
en vildum jafnframt gefa öllum tón-
leikagestum færi á að heyra uppá-
haldskantöturnar sínar.“
Ljósmynd/Brynjar Gunnarsson
Kórinn „Með því að flytja verk í upprunastíl er verið að nálgast tónlist liðinna alda út frá forsendum hennar…“
„Upprennandi stjörnur“
Flutningur Mótettukórsins á Jólaóratoríunni eftir J.S.
Bach í Eldborg Hörpu er hápunkturinn á afmælisári kórsins
Hörður
Áskelsson
Að stökkva fram af svölum íbúðar
sinnar í Barselóna er Alexöndru
Flask ofarlega í huga. Hún hugsar
upp ýmsar útfærslur af stökkinu;
klukkan hvað
ætli sé best að
stökkva, hvernig
skyldi hún lenda,
hverjir skyldu
sjá stökkið?
Aftan á bók-
arkápu stendur
að maður vonist
hálfpartinn til
þess að stelpug-
armurinn stökkvi. Það er ekki laust
við að það örli á þeirri tilfinningu
við lesturinn; það er óttalegt vesen
á Alexöndru svo maður segi það
hreint út. Með endemum sjálflæg
þvælist hún um Barselóna, veltandi
sér upp úr hinum ýmsu krísum lífs
síns.
En þegar Alexandra fellur fyrir
slysni niður af svölunum, missir
minnið og þarf að takast á við lífið
á nýjan leik verða ákveðin þáttaskil
í bókinni. Hún þarf að tjasla sjálfri
sér saman, bæði andlega og lík-
amlega, og öðlast við það nýja vídd
í augum lesandans.
Alexandra er íslensk-ensk, með
rætur í tveimur löndum og býr í
því þriðja. Hún spilar hlutverk
hinnar sjálfstæðu konu sem stend-
ur á eigin fótum í ókunnugu landi
og forðast öll sambönd sem gætu
tjóðrað hana niður, en þetta er
bara yfirskin. Undir niðri er Alex-
andra brothætt og síður en svo
harðsnúinn töffari.
Mikil sektarkennd setur mikinn
svip á alla hegðun hennar, að því
er virðist vegna ástarsambands.
Hún virðist ekki taka sérlega virk-
an þátt í lífinu í Barselóna, um-
gengst fáa og starfar á erótískri
nuddstofu til að hafa í sig og á, en
aðalstarf hennar er að vinna að
rannsókn sinni á nunnum. Lifandi
lýsingar á fjölbreytilegu mannlífi
Barselónaborgar eru látnar undir-
strika einstæðingsskap Alexöndru
ásamt yfirborðskenndum sam-
skiptum hennar við nána ættingja
og þetta er býsna vel gert hjá Sig-
urbjörgu.
Það fer ekki mikið fyrir eigin-
legum söguþræði í Stekk. Engu að
síður er þetta margslungin bók um
tilfinningar og innra líf Alexöndru,
um leit hennar að sjálfri sér og
ýmsar hugmyndir kvikna við lest-
urinn og það er alltaf gefandi að
lesa slíkar bækur. Eins og t.d.
hvort það sé merki um hugrekki
eða heigulsskap að stökkva fram af
svölum þegar lífið verður manni of-
viða. Og sú árátta fólks að þurfa sí-
fellt að fara á nýja og nýja staði; er
það merki um sjálfstæði og styrk,
eða er verið að flýja? Ýmsar hug-
renningar um tengsl líkama og
þess andlega eru líka fyrirferð-
armiklar; er þetta sitthvort fyr-
irbærið og hvernig er það þá að-
skilið?
Sigurbjörgu tekst hér margt vel,
textinn feikiflottur, bókin stundum
helst til langdregin en allt er ákaf-
lega vel gert. Svo er kápan líka af-
skaplega fallega hönnuð.
Margslungin bók
um tilfinningar
Skáldsaga
Stekk mn
Eftir: Sigurbjörgu Þrastardóttur, JPV,
2012, 331 blaðsíða.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Nokkrar af vinsælustu hljómsveitum landsins og tónlistarmönnum tróðu
upp í fyrrakvöld í Laugardalshöll á tónleikunum Hátt í Höllinni. Þar léku
Hjálmar, Ásgeir Trausti, Valdimar, Moses Hightower, Kiriyama Family og
Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar. Ljósmyndari Morgunblaðs-
ins fór á tónleikana og skrásetti í myndum. Fleiri myndir af tónleikunum
má finna á vef Morgunblaðsins, mbl.is.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Gulldrengurinn Ásgeir Trausti varð í síðustu viku fyrstur tónlistarmanna
til að ná því að selja yfir 1.000 eintök af plötu sinni á vefnum Tónlist.is.
Kátt á Hátt í Höllinni
Valdimar Valdimar er tilnefnd til þriggja verðlauna Íslensku tónlistarverð-
launanna sem afhent verða á næsta ári, fyrir plötuna Um stund.
Gjafir sem gleðja
Verð 17.000 kr.
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660