Morgunblaðið - 21.12.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.12.2012, Blaðsíða 35
bankans orð um Garðar er við fréttum af mjög svo ótímabæru andláti hans. Allir bjuggust við því að hann ætti fjölmörg ár og ótal verk eftir óunnin, enda heilsuhraustur og þúsundþjala- smiður. Hann bjó yfir bestu eig- inleikum bóndans, íþróttamanns- ins, tónlistarmannsins, lögreglumannsins og banka- mannsins. Hann gekk til verka af eljusemi og þrautseigju, með ör- yggi og trúnað að leiðarljósi. Ekki sakaði að Garðar var söng- maður góður og naut seðla- bankafólk góðs af þeim hæfileik- um hans á ýmsum skemmtunum. Garðar Halldórsson lést að- faranótt sunnudags eftir tiltölu- lega stutt veikindi. Garðar starf- aði í Seðlabanka Íslands í þrjátíu ár. Hann hóf störf árið 1981 er bankinn var tuttugu ára og hann vann hér þar til hann fór á eft- irlaun er bankinn hafði náð fimmtugsafmælinu árið 2011. Garðar brúaði þannig visst bil á milli frumherjanna og hinna sem á eftir komu. Á þessum tíma var Garðar bifreiðastjóri fyrir bank- ann, en sinnti jafnframt ýmsum tengdum og tilfallandi störfum. Hann sinnti viðkvæmum flutn- ingum með verðmæti fyrir bank- ann í áratugi og ýmiss konar að- stoð við stjórnendur bankans í ótal verkefnum sem fáir gátu leyst eins fagmannlega og hann. Hann var einn af þeim sem alltaf var hægt að reiða sig á. Áður en Garðar kom til starfa í bankan- um hafði hann verið lögreglu- maður í 15 ár, en reynsla hans þar nýttist bankanum ákaflega vel við þau öryggismál sem bank- ar þurfa að viðhafa. Garðar var þannig ákaflega traustur sam- starfsmaður og úrræðagóður. Þannig starfsmenn vilja menn ekki missa. Þótt Garðar léti af störfum fyrir rúmu ári hélt hann góðum tengslum við starfsfélaga sem hittust á reglulegum kaffifund- um. Það var búist við mörgum fundum framundan enda hafði Garðari varla orðið misdægurt allan sinn starfstíma. En enginn veit sína ævina og áfallið dundi yfir fyrirvaralaust fyrir flesta. Starfsmenn í Seðlabankanum votta eftirlifandi eiginkonu og börnum samúð sína við fráfall Garðars. Jón Þ. Sigurgeirsson. Með Garðari er fallinn frá trúr og traustur vinur. Ég tel mig hafa verið lánsaman að starfa með Garðari í tæp þrjátíu ár hjá Seðlabanka Íslands. Við Garðar áttum ýmis áhugamál sameigin- leg, sem við ræddum oft og spjölluðum um, hann var bók- elskur og safnaði frímerkjum og mynt sem hvort tveggja voru svið sem við hjálpuðumst að með. Við Garðar áttum skap saman og upplifði ég létta hlið hans sem lúrði á mikilli kímni sem spratt fram í góðra manna hópi og hann var mikill prakkari inn við beinið. Hann var náttúruvinur mikill og -unnandi, en ætíð var skammt í búmanninn hjá Garðari, mikið ræddum við í Einholtinu á vinnu- stað okkar um ræktun og alls lags dýrahald og voru ekki allir alltaf sammála á þeim sviðum. Löng og góð hefð var fyrir því að veðja við kaffiborðið og við Garð- ar töpuðum oftast allra, veðmál- um lauk með kaupum á vínar- brauði en enginn annar greiðslumáti kom til greina. Ég kveð vin minn Garðar Halldórsson. Anton Holt. Í dag verður til moldar borinn Garðar Halldórsson, fyrrverandi lögregluþjónn og lengi bifreiða- stjóri hjá Seðlabanka Íslands. Látinn langt fyrir aldur fram, að- eins sjötíu og eins árs gamall. Dauði Garðars kom okkur öllum, sem þekktum hann, mjög á óvart. Hann virtist ávallt hraust- ur, hress og glaður. Þrátt fyrir að hann hefði nýlega látið af störf- um sakir aldurs var hann enn á fullri ferð í hestamennsku og hestaferðum. Hann var í eðli sínu náttúrubarn, þótt fæddur væri í borginni við sundin og hefði starfað þar mestan hluta ævinn- ar. Ungur hafði hann farið til sumardvalar í sveit á Hóli í Lundarreykjardal. Þar kynntist hann sveitalífi og sveitastörfum. Við Lundarreykjadalinn festi hann tryggð, byggði sér snotran sumarbústað og undi löngum stundum, þegar færi gafst í faðmi íslenskrar náttúru fjarri ys og þys borgarinnar. Hann lagði leið sína í bændaskólann á Hvanneyri og lauk þar námi í bú- vísindum. Það leiddi þó ekki til þess að hann gerði landbúnað að ævistarfi sínu, heldur lá leið hans í lögregluna og lögregluskólann. Garðar var einmitt af þeirri manngerð, sem maður vill helst sjá í hlutverki lögreglumannsins, traustur, æðrulaus, rólegur, rétt- sýnn, heiðarlegur og velviljaður, en fastur fyrir. Þótt lögreglan bæri ekki gæfu til að halda honum, nema nokkur ár, innan sinna raða, hafa börnin í fjölskyldunni skynjað að þar fór var hin sanna ímynd hins trausta varðar laga og réttar og kölluðu hann: „Gæja löggu“. Önnur stofnun, Seðlabanki Íslands, sem ekki síður þurfti á starfskröftum trausts manns og heiðarlegs að halda, naut svo krafta hans frá 1981 og það sem eftir var starfs- ævinnar. – Garðar kvæntist árið 1969 Ingu Jónsdóttur frá Her- ríðarhóli í Rangárvallasýslu og eignuðust þau tvö mannvænleg börn, Jón Kristin, blikksmið og búfræðing, og Þórunni Bjarn- eyju hjúkrunarfræðing. Þau Garðar og Inga voru alla tíð ein- staklega samrýnd og samhent. – Garðar átti ýmis áhugamál önnur en útivist og hestamennsku, sem veittu honum ánægju. Hæst ber þar sennilega sönglistina. Hann stundaði kórsöng bæði með Lög- reglukórnum og Karlakór Kjal- nesinga, auk þess sem hann var nýlega farinn að syngja í kvartett með félögum úr Kjalnesinga- kórnum. Vinir og ættingjar Garðars Halldórssonar eru slegnir sárum harmi sorgar og saknaðar nú er þeir sjá á bak traustum, góðum vini og kærum frænda, sem horf- inn er yfir móðuna miklu langt um aldur fram. Mestur er þó harmur kveðinn að Ingu konu hans og börnum þeirra Jóni og Þórunni svo og barnabörnunum er syrgja sinn góða og kæra afa. Megi blessun Guðs og kærleikur fylgja ykkur öllum og létta ykkur þungar byrgðar sorgarinnar. Auður, Jóhannes, börn og barnabörn. Kveðja frá Karlakór Kjalnesinga Undanfarnir mánuðir eru bún- ir að vera okkur félögum í Karla- kór Kjalnesinga erfiðir þar sem við höfum þurft að horfa á eftir þremur kærum félögum á góðum aldri yfir móðuna miklu. Garðar kom til liðs við okkur haustið 2005. Hann varð strax áberandi í kórnum, fyrst og fremst fyrir sína afburða bassa- rödd og einnig fyrir það að liggja ekki á skoðunum sínum ef honum fannst að eitthvað mætti betur fara í okkar röðum. Garðar var mjög agaður og nákvæmur mað- ur og lét okkur yngri mennina oft heyra það ef honum fannst við ekki standa undir væntingum í söng, limaburði eða í almennri hegðun. Þessu var nú alltaf teflt fram með stríðnisglampa í aug- um og yfirleitt var mikið til í þessu hjá honum. Hestamennska og útivist spil- ar stórt hlutverk í Karlakór Kjal- nesinga og þar var Garðar á heimavelli. Tók hann þátt í mörg- um hestaferðum á vegum kórsins auk annarra viðburða. Gekk hann meðal annars með okkur á Esjuna vorið 2011. Virtist hann vera vel á sig kominn líkamlega fram á síðasta dag og fór hann meira að segja til rjúpna ekki löngu áður en hann veiktist. Karlakórinn hefur farið reglu- lega utan í söngferðir og létu Garðar og Inga sig ekki vanta í þær. Garðar hafði greinilega mjög gaman af söng og fljótlega eftir að hann byrjaði í kórnum stofn- aði hann kvartett sem fékk nafn- ið KK-kvartettinn. Tróðu þeir gjarnan upp á skemmtunun tengdum okkur en sungu jafn- framt við önnur tækifæri. Í haust réðust þeir svo í að halda sjálf- stæða tónleika í Lágafellskirkju sem tókust með ágætum. 28. nóvember söng hann með okkur í síðasta sinn á tónleikum í Hlégarði og fór þaðan glaður í sinni og stoltur af sínum mönn- um. Að leiðarlokum þakkar Karla- kór Kjalnesinga Garðari fyrir samfylgdina, sem varð styttri en við helst vildum. Ingu og öðrum ástvinum vottum við innlega samúð. F.h. kórsins, Andri Þór Gestsson. Garðar Halldórsson hefur kvatt þetta jarðlíf með aðeins ár yfir sjötugt, fyrirvaralaust ef svo má segja enda maðurinn ímynd hreystinnar. Af þeim mönnum sem ég hef kynnst á undanförn- um árum óvandabundnum er Garðar mér ákaflega kær og eft- irminnilegur persónuleiki. Í mín- um huga stendur hann fyrir hlý- leika, reglusemi, sterka réttlætiskennd, ákveðni, snyrti- mennsku og eftirbreytanlegan áhuga á því sem aðrir samferða- menn hans voru að gera og örlít- illi fínni stríðni. Kynni okkar Garðars hófust er hann kom í raðir okkar í Karlakór Kjalnesinga, góður fé- lagi í söng og starfi, sterk en þýð bassarödd Garðars naut sín vel í kórnum og eðlislæg samvisku- semi við að kunna það sem fyrir hann var lagt naut sín vel og var fyrirmynd annarra kórmanna. Það var hlý stund nú fyrir skömmu í Lágafellskirkju er fjórir félagar í kórnum ásamt ungu tónlistarfólki héldu tónleika með þátttöku Garðars sem var einnig kynnir dagskrár. Söngur þeirra og kynning laga var góð og kirkjan þéttsetin áheyrend- um. Þessi söngstund þar sem sungin voru jólalög og annað vandað efni var lokasöngur Garð- ars mánuði fyrir andlát hans og má segja söngkveðja hans til okkar. Það var Garðari eðlislægt að segja frá og því var honum fal- ið að lesa okkur jólasögur á ár- legu jólahlaðborði og fjölskyldu- samkomu kórsins. Þegar Garðar tók þetta að sér var það gert á rammíslenskan hátt, sögur úr okkar nágrenni um baráttu við óblíð náttúruöfl, gæfu og harm fyrri alda. Undirritaður átti því láni að fagna að umgangast Garðar við annað áhugamál hans, hesta- mennskuna en nágrenni okkar bauð upp á stutta reiðtúra úr hesthúsi hans og hingað upp í Varmadal, kaffisopi og rabb um daginn og veginn, ráðagerðir um mokstur og akstur á efni í gerði og úrgang á braut, allt gert af fyrirhyggjusemi, snyrti- mennsku, reglusemi að hans vanda. Jón Haraldsson, kór- félagi okkar Garðars, hafði boðið okkur Garðari og Birni kór- félaga okkar og mökum að skoða iðnfyrirtæki sitt Ístex ehf. á Ála- fossi, sjá ullina verða að fallegum iðnaðarvörum, en örlitlu munaði að það yrði að veruleika því mið- ur, að hika er sama og að tapa. Garðars Halldórssonar er nú saknað mjög héðan úr Varma- dalnum og einnig úr röðum Karlakórs Kalnesinga. Eigin- konu og fjölskyldu sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Jón Sverrir Jónsson. Kær vinur er fallinn frá í blóma lífsins. Garðari Halldórs- syni kynntist ég fyrst er ég hóf störf í lögreglunni í Reykjavík 1968. Garðar hafði þá verið í lög- reglunni allar götur frá árinu 1965. Okkar vinskapur hófst þó ekki fyrr en við fórum að að syngja saman í Lögreglukór Reykjavíkur og þar vorum við söngfélagar um áratugi og síðar í Karlakór Kjalnesinga. Út frá þessu söngstarfi hófst vinskapur með fjölskyldum okkar og fórum við í margar söngferðir saman heima og erlendis. Garðar var sterkur persónu- leiki og mjög tryggur félagi sem maður gat treyst. Hann var hjálpsamur og úrræðagóður og var oft kominn til hjálpar án þess að um væri beðið, þætti honum þörf á að létta undir. Hann var léttlyndur og kátur og sá gjarn- an björtu hliðarnar á lífinu. Ekki vorum við þó alltaf sammála en skildum jafnan sáttir. Voru þó báðir fastir á meiningunni. Garðar og Inga kona hans áttu sumarhús í Lundarreykja- dal sem þau nefndu Butralda. Þar áttum við margar ánægju- stundir með þeim og eins í sum- arhúsi okkar hjóna í Skorradal. Á tímum jarðganga minntumst við oft á að létta mætti þær heimsóknir til muna ef gerð yrðu göng gegnum hlíðina sem skildi dalina okkar að. Garðar og Inga áttu börnin Jón og Þórunni og í samtölum okkar var hann stoltur af sínu fólki og þá ekki síst barnabörn- unum sem hann talaði oft um. Þó var hann dulur um sjálfan sig og kom mér á óvart að hann hafði ekki minnst á slappleika upp á síðkastið, þó svo að við ræddum saman næstum því hvern dag en hlustaði hins vegar brosandi þeg- ar ég sjálfur var að kvarta. Við leiðarlok samhryggjumst við Ingu og fjölskyldunni innilega og biðjum Guð að blessa minningu góðs drengs. Björn Ágúst og Emilía (Emma). Garðar Halldórsson var traustur og vandaður heiðurs- maður. Með okkur tókst vinátta þau ár sem við áttum samleið í SÍ. Héldum við góðu sambandi síðan. Við í Fáfnisnesi höfðum geng- ið frá okkar jólaglaðningi til þeirra hjóna og með í pakkanum voru krukkur sem við höfðum fengið frá þeim fullar af dýrðleg- um sultum soðnum úr íslenskum aðalbláberjum. Þá barst okkur fréttin um fráfall Garðars. Mönn- um bregður jafnan við slík tíðindi og það jafnvel í þeim tilvikum sem slíkra frétta hefur verið vænst um nokkra hríð. En það átti ekki við um Garðar. Hann virtist ekki aðeins í fullu fjöri, en var að auki ímynd hreysti, snerpu, heilbrigðs atlætis og átti áhugamál sem hann naut að sinna. Því mátti ætla að Garðari myndu ætluð mörg ár til að njóta til fulls með sínu fólki að loknum venjulegum starfsdegi, sem ein- kennst hafði af trúmennsku og dugnaði. En þannig er þetta. Mennirnir ætla en annað ræður. Ég minnist margra góða sam- verustunda með Garðari, einkum í tengslum við vinnustaðinn. Það var óneitanlega minnisverður tími þegar hin ótrúlega og vel skipulagða atlaga var gerð að sjálfstæði SÍ og fólk var flutt og sent til barsmíða við hús bankans og til að leitast við að gera starfs- mönnum óbærilegt að sinna störfum sínum. Sú atlaga stóð vikum saman. En innan húss voru fáir sem kvörtuðu. Þegar starfsmenn bankans héldu sína árshátíð, eina kvöldstund í hót- elsal, beindu „skipuleggjendur,“ eins og Ríkisútvarpið kallaði þá, um leið og það sá um að koma boðum þeirra áleiðis, hópum með barefli að hótelinu. Þar var sal- urinn barinn að utan og gestir sáu hvernig hurðir svignuðu þeg- ar lýðurinn reyndi að brjóta sér leið inn. Auðvelt er að ímynda sér hvað hefði gerst hefði ör- þreyttu lögregluliðinu og dyra- vörðum hótelsins ekki tekist að verjast áhlaupinu þótt litlu hafi munað. Lögreglan ráðlagði okk- ur hjónum í lok samkomunnar að fara út úr hótelinu á annarri hæð sunnan megin. Þar beið Garðar með bílinn. Einhver hafði komið skilaboðum til múgsins sem kom hlaupandi fyrir hornið, öskrandi, með bareflin á lofti. Munaði fáum metrum að honum tækist að láta höggin dynja á bílnum. Garðar var sjálfum sér líkur eins og ekk- ert sérstakt hefði borið til tíð- inda. Ég rakst á eitthvað á milli okkar í sætunum og spurði hvað það væri. „Jú,“ sagði Garðar, „þegar ég fór að heiman í kvöld sá ég að gömlu lögreglukylfuna mína langaði með og ég leyfði henni það“. Við Ástríður sendum fólkinu hans Garðars hlýjar samúðar- kveðjur. Davíð Oddsson MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 �irðin��eynsla � Þ�ónusta �l�an �ólarhrin�inn www.kvedja.is 571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann N�út�ararsto�a�yggð á traustum �runni´ ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför BIRGIS ÞÓRS ÁSGEIRSSONAR, Fossvöllum, Jökulsárhlíð. Megi góður guð gefa ykkur gleðileg jól. Ragnheiður Ragnarsdóttir og fjölskylda. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU MARGRÉTAR FRIÐRIKSDÓTTUR, fyrrverandi formanns Verkakvennafélagsins Snótar. Sigurður Sigurðsson, Atli Sigurðsson, Harpa Njálsdóttir, Bjartey Sigurðardóttir, Gunnar Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Erlingsdóttir, Arnar Sigurðsson, Anna Elísabet Sæmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞORSTEINU SIGURBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR, Hraunbúðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir góða umönnun. Gunnar Ólafsson, Erla Sigurðardóttir, Sigurbjörg Ólafsdóttir, Birgir Pálsson, Sigurður Ólafsson, Birna Jóhannesdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Eiríkur Bogason, Sesselja Ólafsdóttir, Gunnar Berg Sigurjónsson, Ólöf Erla Ólafsdóttir, Stig Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar eiginkonu, dóttur og systur, VIGDÍSAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR iðnhönnuðar, Fitjasmára 4, Kópavogi, sem lést 14. október og var jarðsett frá Digraneskirkju 25. október. Guðmundur Jens Bjarnason, Katrín Kristjana Karlsdóttir, Sigurbjörn Víðir Eggertsson, Karl Georg Sigurbjörnsson, Ágústa Amalía Sigurbjörnsdóttir, Óli Freyr Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.