Morgunblaðið - 21.12.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.12.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson eiga sér engar málsbætur vegna þeirra ofbeldisbrota sem þeir hafa framið, að mati fjölskipaðs Hér- aðsdóms Reykjaness sem sakfelldi þá í gær fyrir hættulegar líkams- árásir, frelsissviptingar, hótanir nauðung og fjárkúgun. Hlaut Annþór 7 ára fangels- isdóm en Börkur var dæmdur til 6 ára fangelsisvistar. Að auki voru þeir Smári Valgeirsson og Jón Ólafur Ró- bertsson dæmdir í tveggja ára fang- elsi fyrir aðild sína að málunum. Sex aðrir menn hlutu styttri dóma, frá 15 til 18 mánaða. Mikið gekk á meðan á meðferð málsins stóð fyrir dómi, enda sak- borningarnir margir og vitnin einnig auk þess sem fjöldi lögreglumanna hafði gætur á þeim Annþóri og Berki. Þegar dómurinn var kveðinn upp í gærmorgun var hins vegar aðeins einn sakborninganna viðstaddur, en Annþór og Börkur voru ekki fluttir af Litla-Hrauni af þessu tilefni. Þrjár líkamsárásir Málið snerist um þrjár sér- staklega hættulegar líkamsárásir og voru Annþór og Börkur sakfelldir í öllum ákæruliðum sem að þeim sneru. Fyrsta árásin átti sér stað í október 2011 þegar tveir ungir menn sem voru í skuld við Annþór voru leiddir á hans fund í sólbaðsstofu sem hann rak. Kom þar til átaka þar sem Annþór mun m.a. hafa slegið annan manninn ítrekað í andlitið og tekið hann kverkataki, en sparkað í hinn og staðið á höfði hans. Önnur líkamsárásin var gerð í desember 2011 af Berki og Annþóri báðum ásamt fleirum. Réðust þeir gegn tveimur mönnum í Grafarvogi og var annar þeirra m.a. laminn með spýtu en migið yfir hinn. Þriðja líkamsárásin var ákveðin og skipulögð sameiginlega af Berki og Annþóri í janúarbyrjun 2012. Réð- ust þeir þá ásamt sjö öðrum inn í íbúð í Mosfellsbæ, m.a. vopnaðir sleggju, kylfum og hafnaboltakylfu. Húsráðandi hlaut m.a. brotinn sköflung og 6 cm opinn skurð á leggnum, brot á hægri hnéskel og bólgur kringum hnéð auk fjölda áverka á fótleggjum, úlnliðum og handleggjum. Þrír aðrir menn sem staddir voru í íbúðinni fengu m.a. höggáverka á höfuð og skurði og mar á útlimi. Ótrúverðugur framburður Börkur og Annþór neituðu báðir sök þegar þeim var gert að taka af- stöðu til ákærunnar. Mikið ósam- ræmi var í framburði annarra sak- borninga hjá lögreglu annars vegar og fyrir dóminum hins vegar. Fram kom í máli eins lögreglu- manns fyrir dóminum í nóvember að vitnum, sakborningum og fjöl- skyldum þeirra hefði verið hótað of- beldi yrði framburði ekki breytt. M.a. hefði barnsmóður eins sakbornings verið hótað ofbeldi. Í niðurstöðu dómsins kemur hins vegar fram að dómarar telji framburð Barkar og Annþórs víða ótrúverðugan. Fullsannað þykir að þeir hafi sammælst um að skipu- leggja og framkvæma líkamsárás- irnar tvær sem þeir frömdu í samein- ingu ásamt öðrum mönnum. Enginn verjanda fór fram á áfrýjun í gær en tímenningarnir sem dóma hlutu hafa allir fjögurra vikna frest til ákvörðunar um áfrýjun. Annþór og Börkur hljóta þunga dóma Morgunblaðið/Styrmir Kári Dómsuppsaga Aðeins einn sakborninganna tíu var viðstaddur þegar dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykja- ness í gærmorgun. Fjögurra vikna frestur er gefinn til ákvörðunar um hvort dómunum verður áfrýjað. Við ákvörðun refsinganna yfir Berki og Annþóri var litið til langs brotafer- ils þeirra beggja. Annþóri, sem er 36 ára, hefur fyrir utan þessi brot verið fjórum sinnum áður gerð refsing fyrir líkamsárásir, fimm sinnum fyrir þjófnað og nytjastuld og tvisvar fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot. Hann hefur auk þess þrisvar rofið skilorðsdóma og þrisvar rofið reynslulausn. Brotin sem Annþór var dæmdur fyrir í gærmorgun framdi hann einmitt á reynslulausn. Í dóminum segir að hann eigi sér engar málsbætur og að fyrri dómar virðist engin varnaðaráhrif hafa. Engin skilyrði eru að mati dómsins til að skilorðsbinda refsinguna sem hann er nú dæmdur til. Börkur, sem er 33 ára, hefur sjö sinnum hlotið refsidóma frá árinu 1997, en þá var hann dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir hótun og stór- fellda líkamsárás. Hann hefur síðan ítrekað verið dæmdur fyrir sér- staklega hættulegar líkamsárásir auk tilraunar til manndráps, en fyrir hana hlaut hann rúmlega sjö ára fangelsisdóm árið 2005. Dómurinn segir hann engar málsbætur eiga sér. una@mbl.is Ítrekaðar stórfelldar líkams- árásir á undanförnum árum EIGA LANGAN BROTAFERIL AÐ BAKI  Sex og sjö ára fangelsi  Eiga sér engar málsbætur Ný skipaskrá og sjómannaalmanak fyrir árið 2013 er komin út. Bókinni er dreift frítt til útgerða skipa og báta sem eru í rekstri, einnig til framkvæmda- og útgerðarstjóra stærri fyrirtækja auk fleiri aðila. Út- gefandi er fyrirtækið Árakló slf. og er þetta sjöunda útgáfa þess. Auglýs- ingar kosta bókina. Skipaskráin og sjómannaalmanakið er hefðbundin handbók sjómanna með upplýsingum um: sjávarföll, vita- og sjómerki, veður og sjólag, fjar- skipti, öryggismál og fleira. Skipaskrá ársins 2013 komin út Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt sem hlutfall af heildar- tekjum sjávarútvegsins jókst milli ára 2010 og 2011. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Í fiskveiðum og -vinnslu hækkaði þetta hlutfall (án milliviðskipta) úr 28,9% í 30%, lækkaði í fiskveiðum úr 26,6% árið 2010 í 26,4% af tekjum ár- ið 2011 og hækkaði í fiskvinnslu úr 16,1% í 19%. Hreinn hagnaður í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 22,6% árið 2011 en 19,8% árið áður. Sé miðað við hefðbundna uppgjörs- aðferð er niður- staðan 17,1% hagnaður 2011. Samkvæmt efnahagsreikn- ingi voru heildar- eignir sjávar- útvegs í árslok 2011 rúmir 547 milljarðar króna, heildar- skuldir rúmir 443 milljarðar og eigið fé 105 milljarðar. Verðmæti heildareigna hækkaði um 8,9% frá 2010 en skuldir lækk- uðu um 6,5%. Eiginfjárhlutfallið reyndist 19,1% en 10,5% í árslok 2010. Eiginfjárhlutfallið var nei- kvætt um tæplega 12% í árslok 2008 en árin þar á undan var eiginfjár- hlutfallið á bilinu 24-29%. Verðmæti birgða var 23.296 millj- ónir en var 20.019 millj. 2010. Horft til skattframtala Hagstofa Íslands tekur árlega saman yfirlit yfir rekstur helstu greina sjávarútvegs. Við gerð þess er bæði byggt á skattframtölum rekstraraðila og reikningum sem fyrirtæki í sjávarútvegi hafa sent Hagstofunni. Aukinn hagnaður í sjávarútvegi Á sjó Sjómenn að störfum. —við sýnum tilfinningar Þú færð tvo miða á Dýrin í Hálsaskógi ásamt glænýjum geisladiski með lögunum úr sýningunni og frásögn Lilla klifurmúsar á litlar 7.900 kr. Húrra, húrra, húrra! Br an de nb ur g Viðhaldsfríar hurðir Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.