Morgunblaðið - 21.12.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012
Steingrímur J. Sigfússon upplýstií gær að spurningin um afstöðu
hans til þess hvernig fara eigi með
umsókn Íslands að ESB og fram-
hald viðræðna þar um sé stærri en
svo að rúmist í þing-
sal Alþingis. Hann
fann beinlínis að því
við Einar K. Guð-
finnsson að hann
skyldi spyrja út í svo
stórt mál.
Málið er svostórt, að sögn
Steingríms, að það
þarfnast umræðu í
þingflokki VG og
samtals við Sam-
fylkinguna.
Ekki verður umþað deilt að málið er stórt, en
það er ekki nýtt og nægur tími hef-
ur gefist til að taka afstöðu til þess.
Steingrímur segir nýafstaðnaríkjaráðstefnu gefa tilefni til
að skoða málið en vill greinilega
taka langan tíma í skoðunina. Allir
sjá hins vegar að hann er aðeins að
tefja málið og vandræðast með það.
Ekkert gerðist á ríkjaráðstefn-unni sem nokkru breytir og
nú eru liðnir fjórir mánuðir frá því
að þingmenn VG sögðu málið
þarfnast endurskoðunar og nær
fjögur ár frá því að Steingrímur
sveik kjósendur sína vegna málsins.
Hvers vegna þarf hann lengritíma nú til að svara því hvaða
afstöðu hann hefur til framhalds
aðlögunarviðræðnanna?
Sennilega er tafsamt að finna leiðtil að láta líta út fyrir að af-
staðan hafi breyst en halda um leið
opnum möguleikanum á áfram-
haldandi svikum eftir kosningar.
Steingrímur J.
Sigfússon
Flókið að finna
nýja svikaleið
STAKSTEINAR
Einar K.
Guðfinnsson
Veður víða um heim 20.12., kl. 18.00
Reykjavík 6 skúrir
Bolungarvík 4 alskýjað
Akureyri 4 skýjað
Kirkjubæjarkl. 4 alskýjað
Vestmannaeyjar 7 rigning
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló -10 skýjað
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur -2 frostrigning
Helsinki -10 snjóél
Lúxemborg 1 skúrir
Brussel 3 léttskýjað
Dublin 7 skýjað
Glasgow 5 skúrir
London 8 skúrir
París 10 skýjað
Amsterdam 2 skúrir
Hamborg 2 alskýjað
Berlín 1 skýjað
Vín 0 léttskýjað
Moskva -18 heiðskírt
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 7 skýjað
Aþena 7 léttskýjað
Winnipeg -12 snjókoma
Montreal -1 snjókoma
New York 5 heiðskírt
Chicago 8 alskýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
21. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:34
DJÚPIVOGUR 11:02 14:50
Ólík viðhorf og skoðanir á væntan-
legu kvótafrumvarpi innan stjórn-
arflokkanna gætu tafið það að frum-
varpið verði lagt fram. Jón Bjarna-
son, þingmaður Vinstri grænna og
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra,
segir fyrirvara við frumvarpið innan
þingflokks Vinstri grænna. „Það eru
mismunandi sjónarmið í okkar flokki
að sjálfsögðu en hvort málið megi
fara til þingsins er annað mál,“ sagði
Jón sem vildi ekki tjá sig frekar um
málið að svo stöddu.
Nokkrir þingmenn Samfylking-
arinnar hafa slegið varnagla við
kvótafrumvarpið en Morgunblaðið
hefur heimildir fyrir því að ólíkar
skoðanir innan Samfylkingarinnar
um málið gætu tafið það enn frekar.
Oddný G. Harðardóttir, þingflokks-
formaður Samfylkingarinnar, segir
ekki búið að ganga frá málinu innan
þingflokks Samfylkingarinnar. „Ég
mun boða fljótlega til fundar um
málið og þá verður farið yfir fyrir-
varana og hvað þarf til að málið
komist inn í þingið,“ segir Oddný en
Mörður Árnason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær ekki ætla að
falla frá sínum fyrirvörum um frum-
varpið. Í sjónvarpsfréttum ríkissjón-
varpsins á þriðjudaginn sagðist
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vegaráðherra ekki ætla að leggja
fram frumvarpið nema hann fengi
svar frá einstaka þingmönnum Sam-
fylkingarinnar um hvort þeir muni
falla frá fyrirvörum sínum.
vilhjalmur@mlb.is
Kvóta-
málið
strand?
Jón
Bjarnason
Oddný G.
Harðardóttir