Morgunblaðið - 21.12.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012
Tri ehf.
Suðurlandsbraut 32
104 Reykjavík www.tri.is
Verslunin er opin:
Alla virka daga kl. 09:00-18:00
Laugardaga kl. 10:00-16:00
Flott CUBE AIM DISC 2013 árgerð á flottu verði
Verð: 109.990 kr.
Frí heimsending á
höfuðborgarsvæðinu
og á allar afgreiðslustöðvar
Flytjanda á landsbyggðinni.
Sigurður Hall-
dórsson, fyrrverandi
kaupmaður andaðist á
Droplaugarstöðum
15. desember sl. 95
ára að aldri. Sigurður
stofnaði og rak um
áratugaskeið versl-
unina Valborgu sem
var fyrsta barnafata-
verslunin á Íslandi.
Sigurður var fædd-
ur 26. júní 1917 og
ólst upp á Syðstufoss-
um í Borgarfirði.
Foreldrar hans voru
Sigríður Sigurð-
ardóttir húsmóðir og Halldór
Jónsson bóndi. Sigurður stundaði
nám við Héraðsskólann á Lauga-
vatni. Hann flutti til Reykjavíkur
1943 og vann fjölbreytt störf,
einkum verslunarstörfum, m.a.
sem rekstrarstjóri Skóbúðar
Reykjavíkur. Árið 1956 stofnaði
hann, ásamt eiginkonu sinni
Mattheu Þorleifsdóttur, versl-
unina Valborgu. Fram til þess
tíma saumuðu eða prjónuðu hús-
mæður nær öll föt á
sín börn. Í fyrstu var
verslunin til húsa í
Austurstræti 12 en
var síðan flutt að
Laugavegi 83. Sam-
tals rak Sigurður
verslunina í 30 ár.
Hann stofnaði einnig
Umboðssöluna en sú
verslun seldi ódýran
fatnað.
Sigurður var virk-
ur í Kaupmanna-
samtökum Íslands og
lét sér alla tíð annt
um velferð og vel-
gengni miðbæjarins sem versl-
unarkjarna. Hann sinnti ýmsum
félagsstörfum, var einn stofnenda
Oddfellow stúkunnar nr. 7, Þor-
kels Mána, sat um árabil í sókn-
arnefnd Grensáskirkju og kom
þar m.a. að uppbyggingu kirkj-
unnar og kapellunnar.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar
er Matthea Þorleifsdóttir. Þau
eignuðust þrjár dætur, sjö barna-
börn og átta barnabarnabörn.
Sigurður Halldórsson
Brynhildur Ólafs-
dóttir, skólastjóri
Háaleitisskóla, and-
aðist á líknardeild
Landspítalans þriðju-
daginn 18. desember
síðastliðinn, 56 ára að
aldri.
Brynhildur fæddist í
Reykjavík 23. janúar
1956, dóttir hjónanna
Áslaugar Þórólfs-
dóttur og Ólafs Ingv-
arssonar, fyrrverandi
kennara og skóla-
stjóra. Hún útskrif-
aðist með versl-
unarpróf frá Verslunarskóla
Íslands 1974, varð stúdent frá MH
1979 og útskrifaðist með B.Ed.-
próf frá Kennaraháskóla Íslands
1982. Hún var í diplómanámi í
stjórnun og forystu í skólaumhverfi
við HÍ 2005-2006 og í
framhaldsnámi með
áherslu á BSC við HR
2008-2009.
Að loknu verslunar-
prófi starfaði Bryn-
hildur hjá R. Sig-
mundssyni hf. í fullri
vinnu með skóla. Hún
var kennari í Fella-
skóla 1977-2002, að-
stoðarskólastjóri
Álftamýrarskóla 2002-
2005, skólastjóri skól-
ans í afleysingum
2005-2007 og skóla-
stjóri 2007-2011, en
síðan skólastjóri Háaleitisskóla
(sameinaðir Álftamýrarskóli og
Hvassaleitisskóli).
Eftirlifandi eiginmaður Bryn-
hildar er Þór Ottesen Pétursson og
eiga þau þrjú börn.
Andlát
Brynhildur Ólafsdóttir
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Stjórn Fjármálaeftirlitsins (FME)
hefur alls vikið þremur stjórnar-
mönnum eftirlitsskyldra aðila úr
stjórnum frá því í febrúar 2010.
Þá var tekið upp það verklag að
sjálfstæð ráðgjaf-
arnefnd kannaði
hæfi stjórnar-
manna félaga sem
heyra undir eftir-
lit stofnunarinnar.
Síðan þá hefur
nefndin rætt við
yfir hundrað
stjórnarmenn.
Í ráðgjafar-
nefndinni sitja
þrír fulltrúar, einn
frá FME og tveir óháðir. Að sögn
Jóns Sigurðssonar, formanns nefnd-
arinnar, fer hún yfir hæfi stjórnar-
manna þegar FME óskar eftir því.
Það sé svo stjórn FME sem taki hinar
eiginlegu bindandi ákvarðanir eins og
þær að víkja mönnum úr stjórn.
Matið fer þannig fram að stjórn-
armenn eru kallaðir í fjögurra
klukkustunda langt samtal við nefnd-
ina og segir Jón að yfirleitt fái fólk
rúman mánuð til að undirbúa sig fyrir
það.
Í samtalinu er svo farið yfir víðan
völl, allt frá almennum upplýsingum
um manneskjuna yfir í þekkingu
hennar á þeim lögum sem gilda um þá
fjármálastofnun sem hún situr í
stjórn fyrir og hina ýmsu þætti í
tengslum við ársreikninga hennar.
Þá er farið yfir reynslu stjórnar-
mannsins, sögu og tengsl, álit hans á
meðferð upplýsinga og mat hans á
þeim áhættum sem félag hans stend-
ur frammi fyrir í rekstri sínum.
„Í öllu þessu erum við að tryggja að
stjórnarmaðurinn sé vel meðvitaður
um skyldur sínar og ekki síður rétt-
indi, til dæmis til að leita eftir upplýs-
ingum og ganga eftir að fá þær svo
hann geti borið þá ábyrgð sem honum
ber. Þetta er samtal, ekki yfirheyrsla,
og reynt að vinna það sem mest sem
samræðu aðila sem allir stefna að
sama marki,“ segir Jón.
Þeir sem ekki standa sig nægilega
vel í viðtalinu fá annað tækifæri til að
koma fyrir nefndina. Rúmlega tutt-
ugu prósent þeirra sem hafa komið í
viðtöl til nefndarinnar hafa verið köll-
uð aftur til fundar við hana. Dæmi eru
um að einstaklingar hafi sjálfir hætt í
stjórnum í kjölfar viðtala og einnig
áður en til þeirra kom.
Jón leggur mikla áherslu á að
stjórnarseta eigi ekki að vera ein-
skorðuð við háskólafólk enda sé það í
samræmi við lög. Í lögum um fjár-
málafyrirtæki sé gerð krafa um
menntun en á því megi gera undan-
þágu, en hjá lífeyrissjóðum sé ekki
gerð menntunarkrafa.
„Það eru mjög mörg dæmi um að
fólk sem er ekki skólagengið hafi
leyst þessi verkefni og staðið sig með
glæsibrag. Það er bókstaflega allur
gangur á því hvernig fólki gengur
með tilliti til skólagöngu þess.“
Hafa metið hæfi yfir
hundrað stjórnarmanna
Seta í stjórnum ekki aðeins ætluð háskólamenntuðum
Fjöldi viðtala ráðgjafarnefndar við stjórnar-
menn frá febrúar 2010-september 2012
Heimild: FME
4 bankar 42 32 10 7 7
3 eignarhöldfélög banka 11 9 2 2 1 1
4 vátryggingafélög 26 18 8 6 5 1
4 lífeyrissjóðir 21 10 11 7 6 1
1 verðbréfssjóður 4 4
Alls 103 72 31 22 19 3
Fj
öl
di
st
jó
rn
ar
m
an
na
Fu
lln
æ
gj
an
di
Ó
fu
lln
æ
gj
an
di
En
du
rt
ek
ið
m
at
á
hæ
fi
Fu
lln
æ
gj
an
di
ef
tir
en
du
rt
ek
ið
m
at
Ó
fu
lln
æ
gj
an
di
ef
tir
en
du
rt
ek
ið
m
at
Jón
Sigurðsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FME Hefur vikið mönnum úr stjórn.
Sömu kröfur eru gerðar til vara-
manna í stjórnum og stjórnar-
mannanna sjálfra. Þannig vék
stjórn Fjármálaeftirlitsins Sigurði
Jóhannessyni úr stjórn lífeyris-
sjóðsins Stapa nú í byrjun desem-
ber. Sigurður var ekki talinn upp-
fylla hæfisskilyrði og var þess því
farið á leit við hann að hann léti af
störfum sem varamaður í stjórn.
Hann varð ekki við þeirri kröfu og
því ákvað stjórn FME einhliða að
víkja honum frá.
Það voru Samtök atvinnulífsins
sem tilnefndu Sigurð í stjórn Stapa
og sendu þau frá sér yfirlýsingu í
gær þar sem alvarlegar at-
hugasemdir eru gerðar við brott-
vikningu hans. SA telja Sigurð full-
komlega hæfan til stjórnarsetu en
segja að þar sem hann hafi ekki
ætlað sér að sitja áfram í stjórn
hafi ekki verið ástæða til að hann
gengist undir hæfnismat.
Var ekki talinn nægilega hæfur
STJÓRNARMANNI LÍFEYRISSJÓÐSINS STAPA VIKIÐ FRÁ
Alls söfnuðust 1,2 milljónir króna í
söfnun til styrktar sauðfjárbændum
á Norðurlandi sem urðu fyrir mikl-
um búskaða vegna veðurofsa í sept-
ember. Bónus og Hagkaup í sam-
starfi við Kaupfélag Skagfirðinga
og Íslandslamb stóðu fyrir söfn-
uninni og afhentu Gunnar Ingi Sig-
urðsson og Guðmundur Marteins-
son, fulltrúar fyrirtækjanna, það fé
sem safnaðist. Guðni Ágústsson,
sem setið hefur í verkefnisstjórn
söfnunarinnar, veitti fénu viðtöku.
200 kr. af hverju seldu kílói af
vörum Íslandslambs runnu óskiptar
í söfnunarsjóðinn.
1,2 milljónir til
styrktar bændum
Ljósmynd/Sváfnir Sigurðarson
Glaðir Styrkur til sauðfjárbænda afhentur.
Nokkuð hefur borið á því að starfs-
fólk í fæðingarorlofi hafi ekki feng-
ið desemberuppbót. Sökum þessa
vekur Starfsgreinasambandið at-
hygli á að í flestum kjarasamn-
ingum sé kveðið á um að eftir eins
árs starf teljist fjarvistir vegna lög-
bundins fæðingarorlofs til starfs-
tíma við útreikning desember-
uppbóta. Þetta kemur fram á
vefsvæði Starfsgreinasambandsins.
Desemberuppbót skuli greiða ekki
síðar en 15. desember, miðað við
starfshlutfall og starfstíma, öllum
starfsmönnum sem verið hafa sam-
fellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12
vikur á síðustu 12 mánuðum eða
eru í starfi í fyrstu viku í desember.
Fengu ekki uppbót í fæðingarorlofi