Morgunblaðið - 21.12.2012, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna, stóð
fyrir litlu jólunum í Valhöll fyrr í
desember. Rann aðgangseyrir
óskiptur til Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur.
Illugi Gunnarsson, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokks, spilaði
jólalög á píanó þegar sungið var
og dansað í kringum jólatréð.
Fram kemur í tilkynningu, að
margt hafi verið um manninn og
það hafi vakið mikla gleði yngri
kynslóðarinnar þegar Hurðaskellir
mætti með óvæntan glaðning í
poka. Boðið var upp á heitt kakó
og léttar veitingar.
Þetta er annað árið í röð sem
Hvöt stendur fyrir jólaballi til
styrktar Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur en Hvöt er aðili að
mæðrastyrksnefndinni.
Gaman Hurðaskellir syngur fyrir börnin.
Safnað fyrir mæðra-
styrksnefnd
Læknavaktin á höfuðborgarsvæð-
inu sinnir að venju vaktþjónustu yf-
ir jólin. Opið er fyrir móttöku og
heimavitjanir og sólarhringsþjón-
usta er í faglegri símaráðgjöf alla
hátíðisdagana.
Opið er í húsnæði Læknavakt-
arinnar á Smáratorgi eins og hér
segir:
Aðfangadagur: Kl. 9-18 og svo aft-
ur kl. 20.30-23
Jóladagur: Kl. 9-23.30
Annar í jólum: Kl. 9-23.30
Gamlársdagur: Kl. 9-18 og svo aft-
ur kl. 20.30-23
Nýársdagur: Kl. 9-23.30
Vitjanaþjónusta Læknavaktarinnar
er alla hátíðisdagana frá klukkan 8
á morgnana til miðnættis en hægt
er að hringja í síma 1770. Þá er
símaráðgjafaþjónusta Læknavakt-
arinnar í síma 1770 opin allan sólar-
hringinn.
Læknavaktin opin
yfir hátíðirnar
Hið árlega Þorláksmessusund
Breiðabliks fer fram í Kópavogs-
lauginni þann 23. desember en það
er nú haldið í 22. skipti.
Sundið hefst klukkan 9. Skráðir
þátttakendur eru rúmlega 70 og er
uppselt í sundið. Þátttakendur
synda 1.500 metra og synda allir í
einu eins og tíðkast í þríþraut.
Þorláksmessusund
í Kópavogslaug
STUTT
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Litríkar, hagnýtar, fíngerðar,
óbrjótandi, fallegar,
spennandi, endingargóðar,
mjúkar, skemmtilegar...
Alls konar jólagjafir fyrir
þá sem þú þekkir.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Opin hugmyndasamkeppni var haldin á vegum
Umhverfisstofnunar í samvinnu við Arkitekta-
félag Íslands um umhverfi Gullfoss.
Fyrstu verðlaun hlaut tillagan Aldir renna.
Höfundar hennar eru Eyrún Margrét Stef-
ánsdóttir arkitekt og María Björk Gunn-
arsdóttir arkitekt og hlutu þær 1,5 milljónir í
verðlaunafé. Í tillögunni er gert ráð fyrir nýjum
útsýnisstöðum á svæðinu, efnisvalið er m.a.
unnið úr íslenskri steypu og hugmyndir viðr-
aðar um að leigja ferðamönnum hentugan fóta-
búnað eins og mannbrodda.
Tillagan ,Aldir renna, mun verða lögð til
grundvallar deiliskipulagsvinnu á svæðinu.
Ekki hafa verið gefnar út nákvæmar tímasetn-
ingar hvenær ráðist verður í að leggja göngu-
stíga og smíða útsýnispalla á þessum fjölsótta
ferðamannastað.
Markmið samkeppninnar var að fá fram
heildarsýn á allar samgöngur og móttökusvæði
innan svæðisins.
Mikill átroðningur ferðamanna
Kveikjuna að samkeppninni má m.a. rekja til
ársins 2010 þegar Umhverfisstofnun setti
ferðamannasvæðið við Gullfoss á svokallaðan
rauðan lista yfir svæði sem talin eru í hættu á
að missa verndargildi sitt, en Gullfoss var frið-
lýstur árið 1979. Þar af leiðandi varð ekki hjá
því komist að byggja upp stíga og útsýnispalla
fyrir alla þá gesti er koma að Gullfossi, bæði til
þess að hlífa umhverfinu og einnig til að
tryggja aðgengi allra að fossinum eins og kost-
ur er.
Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun stendur
að um það bil 80% þeirra sem sækja Ísland
heim komi að Gullfossi. Árið 2011 komu u.þ.b.
567.000 ferðamenn og er áætlað að þeim fjölgi
árið 2012. Til að undirbúa svæðið fyrir áfram-
haldandi fjölgun ferðamanna liggur fyrir að
svæðið umhverfis Gullfoss mun fara í deili-
skipulag. Þar sem það er friðlýst er bannað að
skerða gróður, trufla dýralíf eða raska jarð-
myndunum. Útbjóðandi telur því mikilvægt að
allar framkvæmdir á svæðinu verði aftur-
kræfar og því verði skilað jafngóðu eða í betra
ástandi til komandi kynslóða.
Í hugmyndasamkeppninni var m.a. lögð
áhersla á að fram kæmu áhugaverðar, frum-
legar og metnaðarfullar lausnir í anda sjálf-
bærrar þróunar. Að allar framkvæmdir yrðu
hannaðar með það fyrir augum að þær féllu vel
að umhverfinu á Gullfoss-svæðinu og spilltu
ekki þeirri náttúru sem þar er auk þess sem
fram kæmu spennandi nýjungar fyrir umhverfi
ferðamannastaða.
Nýir útsýnisstaðir kynntir
Í áliti dómnefndar um vinningstillöguna seg-
ir m.a.: „Keppendur sýna í tillögunni nákvæm-
an og blæbrigðaríkan skilning á umhverfinu
[…]Leiðir að nýjum útsýnisstöðum og nýjum
tengingum eru fjölbreyttar og spennandi og
benda á nægan efnivið til úrvinnslu í framtíð-
inni. Tillaga að nýjum útsýnisstað umhverfis
svonefndan Hvít er vel útfærð.“
Hallinn á göngubrautunum er mismikill og
kemur til með að veita gestum nýtt sjónarhorn.
Önnur verðlaun hlaut tillagan Hringferð um
Gullfoss. Höfundar hennar eru R21 arkitekter:
Bergur Thorsteinsson Briem arkitekt, Thomas
Thorsnes arkitekt, Martin Smedsrud arkitekt.
Þriðju verðlaun komu í hlut Birgis Þrastar Jó-
hannssonar, arkitekts FAÍ, Laurents Ney
verkfræðings, Vincents Disters verkfræðings
og Snæfríðar Þorsteins iðnhönnuðar.
Dómnefndina skipuðu Kristín S. Jónssdóttir,
Umhverfisstofnun, og jafnframt formaður
dómnefndar, Tryggvi Tryggvason, fulltrúi Fé-
lags íslenskra landslagsarkitekta, Svavar
Njarðarson, fulltrúi landeigenda, Pétur Ingi
Haraldsson, fulltrúi Bláskógabyggðar.
Aldir renna við Gullfoss
Vinningstillaga um umhverfi Gullfoss gerir ráð fyrir útsýnispöllum á nýjum stöðum Átroðn-
ingur ferðamanna verður úr sögunni þegar tillagan verður sett í deiliskipulag á þessu friðlýsta svæði
Tölvuteikning/Aldir renna
Útsýnispallur Litlir og stórir áningarstaðir á göngubrautinni mynda rými sem dreifir fólkinu
um svæðið. Þá mun lofta um jarðveginn undir göngubrautunum svo jörðin undir nái að jafna sig.
Morgunblaðið/Kristinn
Vinningshafar Arkitektarnir Eyrún Margrét Stefánsdóttir og María Björk Gunnarsdóttir. Til-
laga þeirra, Aldir renna, um umhverfi Gullfoss varð hlutskörpust í samkeppni Umhverfisstofu.
Kort Yfirlitsmynd af svæðinu þar sem gert er
ráð fyrir þjónustumiðstöð og breyttu aðgengi.
Tölvuteikning/Aldir renna