Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 37

Morgunblaðið - 21.12.2012, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2012 Raðauglýsingar 569 1100 Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is BÚÐU TIL ÞITT DAGATAL JÚLÍ 20 08 Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!!...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is BÚÐU TIL ÞITT MYNDA- ALBÚM BÚÐU TIL ÞÍN JÓLAKORT Gleðileg jól! Auðvelt, þægilegt, flott, Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði. www.prentlausnir.is Swarovski-kristall, -skartgripir Glæsilegar kristalsljósakrónur, veggljós, glös, postulín, styttur og Swarovski-skartgripir til sölu. Bohemia kristall, Glæsibæ, s . 571 2300. Kristalsljósakrónur til sölu Glæsilegar kristalsljósakrónur, vegg- ljós, matar- og kaffistell og skartgrip- ir til sölu. Nýtt, facebook: Bohemia ljós, lýsing, kristall. Bohemia kristall, Glæsibæ Glös, kertastjakkar og vasar í halastjörnunni og möttu rósinni. Einnig fleiri gerðir af handskornum kristalglösum, trévörum og gjafavöru í úrvali. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Ýmislegt Lífsorku hitabakstrarnir Heitar og góðar gjafir Betra líf, s. 581 1380, Kringlunni. Gigtarfélag Íslands, s. 530 3600. Kynningarstjóri Suðurlandi, Hellu. Sólveig, sími 863 7273. www.lifsorka.net TILBOÐ - TILBOÐ -TILBOÐ Vandaðir leðurskór, skinnfóðraðir, fyrir dömur. Stakar stærðir. TILBOÐSVERÐ: 3.500. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Hárbönd í úrvali margir litir. Verð kr. 2.900. Skarthúsið, Laugavegi 44, sími 562 2466. Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi NÝJAR VÖRUR Kjólar, leggings, bolir, skór. Góðar jólagjafir. Sími 588 8050. - vertu vinur Silki og ull Pasminu treflar úr silki og ull. Margir litir Verð kr. 2.990,- Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. 3 GÓÐIR Í PAKKANN Teg. 11152 - heldur frábærlega og fæst í D-, E-skálum á kr. 5.500, aðhaldsbuxur í stíl á kr. 2.995. Teg. 21323 - glæsilegur í C-, D- skálum á kr. 5.800,- buxur í stíl á kr. 1.995. Teg. 81103 saumlaus, léttfylltur með blúndu í B-, C-skálum á kr. 5.800, buxur í stíl á kr. 1.995. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-föst. 10-18, laugard. 22 des kl. 10-18. Þorláksmessa kl. 12 - 20 Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur . Herra inniskór, mjúkir og þægilegir, góður sóli. Stærðir: 40 - 48 Verð: 7.600.- Herra inniskór, mjúkir og þægilegir, góður sóli. Stærðir: 40 - 48 Verð: 7.600.- Dömuinniskór, mjúkir og þægilegir, góður sóli. Fleiri litir -Stærðir: 36 - 42 Verð: 6.750. Dömuinniskór, mjúkir og þægilegir, góður sóli. Stærðir: 36-42- litur grátt. Verð: 5.575.- Dömuinniskór, mjúkir og þægilegir, góður sóli. Fleiri litir -Stærðir: 36 - 42 Verð: 6.750. Dömuinniskór, mjúkir og þægilegir, góður sóli. Fleiri litir -Stærðir: 36 - 42 Verð: 6.750 Dömuinniskór, mjúkir og þægilegir, góður sóli. Fleiri litir -Stærðir: 36 - 42 Verð: 6.750. Dömuinniskór, mjúkir og þægilegir, góður sóli. Fleiri litir. Stærðir 36 - 42 Verð: 6.750.- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán. - föst. 10-18. laugard. 15/12 kl. 10-18. laugard. 22/12 kl. 10-18 Þorláksmessu 23/12 kl. 12-20 Aðfangadag 24/12 kl. 10-12 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Húsviðhald Tek að mér ýmis smærri verkefni. Sími 847 8704, manninn@hotmail.com Kristín vinkona mín er dáin. Skyndilega er maður óþægilega meðvitaður um hversu brothætt lífið getur verið. Og erf- itt reynist að svara þeim spurn- ingum sem á mann leita. Það sem eftir stendur er minningin um góða stúlku og traustan vin. Ég kynntist Kristínu þegar við sungum saman í kór Menntaskól- ans í Reykjavík. Sú minning sem ég á um hana þaðan er af bros- mildri og kátri stúlku í rauðum x-18-skóm. Hún var hógvær og hló ekki hátt en hún hafði smit- andi hlátur. Ég veit ekki hvað það var en einhverra hluta vegna ein- setti ég mér að kynnast þessari stúlku. Þess vegna tók ég upp á því að heilsa henni í tíma og ótíma. Í hvert einasta skipti þegar við mættumst á göngum skólans, sem gat verið allnokkrum sinnum yfir daginn, heilsaði ég henni kump- ánlega. Henni var alls ekkert um það gefið, svona til að byrja með, en smám saman tókst með okkur góð vinátta sem átti eftir að end- ast alla tíð. Þannig held ég að Kristín hafi verið. Lokuð og hlédræg við fyrstu kynni en þegar hún var bú- in að hleypa manni inn fyrir varð ekki aftur snúið. Og ég er óend- anlega þakklátur fyrir að hafa fengið að vera vinur hennar. Jóhannes. Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir, sem ung á morgni lífsins staðar nemur, og eilíflega, óháð því, sem kemur, í æsku sinnar tignu fegurð lifir? Kristín Baldursdóttir ✝ Kristín Bald-ursdóttir fæddist í Reykja- vík 22. janúar 1982. Hún lést í Reykjavík 3. des- ember 2012. Útför Kristínar fór fram frá Ás- kirkju 13. desem- ber 2012. Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu augnabliki – (Tómas Guðmundsson) Það var okkur bekkjarfélögum Kristínar úr 6.C mikið áfall að heyra af andláti hennar. Óhætt er að fullyrða að heimurinn er fá- tækari án Kristínar. Hún hafði að geyma mannkosti sem allir ættu að tileinka sér. Hún var gáfuð, vin- gjarnleg og einlæg. Kristín var traust og talaði alltaf vel um alla. Félagar hennar og vinir úr MR geta staðfest það. Hún var órjúf- anlegur hluti af bekkjarliðsheild- inni og við áttum margar góðar stundir saman. Í endurminning- unni var Kristín síbrosandi og glaðleg og virtist alltaf hafa nóg fyrir stafni. Hún söng í kór menntaskólans ásamt bekkjar- systrum sínum, var einstaklega samviskusamur nemandi og stóð sig vel í því sem hún tók sér fyrir hendur. Eftir útskrift hélt bekkurinn sambandi og hittist meðal annars í saumaklúbbum og á útskriftar- afmælum. Þannig fylgdumst við með lífi hvert annars og heyrðum frásagnir Kristínar af námi og störfum, hér á landi og erlendis. Missirinn er mikill og eftir situr stórt skarð í hjörtum okkar allra. Minning um einstaka manneskju lifir áfram um ókomna tíð. Við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast þessari söngelsku og hjartahlýju stúlku sem ljómi staf- aði af og sendum fjölskyldu henn- ar okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hulda, Guðbjört, Guðrún Birna, María Margrét, Elín, Þorsteina, Þórhildur, Sólrún, Þórunn, Sigrún Ásta, Hlíf, Alma, Lilja, Ágúst, Guð- laugur, Olga, Sólveig, Harpa, Haraldur Hrafn, Þórhallur og Benedetto. Jóhannes Kjarval arkitekt var skipulagsstjóri í Hafnar- firði á tímum mikillar og hraðr- ar uppbyggingar í bænum. Hann kom til starfa á Strand- götuna í lok níunda áratugar síðustu aldar og fljótlega var orðin til nett lítil skipulags- deild á loftinu á Strandgötu 6 en á húsið voru í snatri settir nokkrir kvistir vestantil, Strandgötumegin, svo að menn gætu staðið uppréttir yfir teikningunum. Á Jóhannesi hvíldi fagleg ábyrgð sem ekki var öllum ljós í dagsins önn en nýir hlutar Hafnarfjarðar risu og eldri fengu andlitslyftingu undir samstilltu átaki samhentra starfsmanna. Bærinn stækkaði og Jói Kjarval og bæjarskipu- lagið voru alltaf fyrst í röðinni þegar kom að þeirri röð at- hafna sem að lokum leiddu til nýs hverfis, nýrrar götu eða breyttrar ásýndar bæjarhluta. Jóhannes S. Kjarval ✝ Jóhannes S.Kjarval fæddist í Reykjavík 26. júní 1943. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 1. desember 2012. Útför Jóhann- esar fór fram frá Fossvogskirkju 12. desember 2012. Á þessum árum voru til stjórnmála- menn sem töldu að skipulag væri í besta falli „leið- beinandi“ og ætti ekki að þurfa að koma í veg fyrir þann sveigjanleika sem nauðsynlegur er til þess að byggja hús og nýta það skynsamlega, en Jóhannes hafði skaphöfn til þess að sigla í gegnum þessi daglegu viðfangsefni og smám saman jókst virðing fyrir skipu- lagsmálum bæjarins og vægi þeirra varð meira. Á kvistunum á Strandgötu 6 var oft glatt á hjalla og líka oft mikil umferð fólks með ýmsar skoðanir, miklar þarfir og oft stórar fyrirætlanir en Jóhannes tók öllum vel. Með bros á vör, kaffibolla og sígarettu að vopni leiðbeindi hann fólki skilmerki- lega og tók nýjum hugmyndum opnum örmum. Í samræðum um hugmyndir blómstraði lista- mannseðlið í fari hans. Sam- starfsmenn Jóhannesar Kjarval áttu í honum góðan, traustan og heiðarlegan vinnufélaga sem minnst verður lengi. Við send- um fjölskyldu hans okkar dýpstu samúðarkveðjur. Samstarfsmenn hjá Hafnarfjarðarbæ, Dagur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.