Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2012
HEIMURINN
BANGLADESH
DHAKA Mannskæður eldsvoði í fata-
verksmiðju í Bangladesh hefur valdið
mikilli ólgu í landinu. 110 manns létust
í eldinum og rúmlega 100 slösuðust.
Öryggi var ábótavant í verksmiðjunni
og hafa þrír stjórnendur hennar verið
handteknir. Þúsundir manna lögðu
niður störf í verksmiðjum, mótmæltu
og kröfðust réttlætis fyrir hönd
fórnarlamba eldsvoðans.
EGYPTALAND
KAÍRÓ Mikil mótmæli hafa verið
í Egyptalandi eftir að Mohamed
Morsi, forseti landsins tók sér
víðtækari völd, en hann hafði áður
haft.Vinnubrögð stjórnlagaráðs,
sem virðist ætla að afgreiða nýja
stjórnarskrá með hraði og kristnir menn og
frjálslyndir hafa sniðgengið, hafa enn kynt undir
mótmælum.
BANDARÍKIN
NEW YORK Bandaríska
dagblaðið The NewYork
Times greindi frá því að
Dominique Strauss Kahn,
fyrrverandi yfirmaður
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
hefði gert samkomulag við
Nafissatou Diallou, sem
sakaði hann um að hafa
ráðist á sig kynferðislega á
hótelherbergi í NewYork.
Málið leiddi til falls Kahns,
sem hafði verið orðaður við
forsetastólinn í Frakklandi.
Mál Diallou verður þá látið
niður falla.
HOLLAND
HAAG Serbar eru æfir yfir því að stríðsglæpa-
dómstóllinn í Haag skyldi sýkna Ramush Haradinaj,
fyrrverandi forsætisráðherra Kosovo, af ásökunum um
stríðsglæpi. Fyrir tveimur vikum sýknaði dómstóllinn,
sem skipaður var til að fjalla um átökin á Balkanskaga
á tíunda áratug 20. aldar, tvo króatíska herforingja af ásökunum um
stríðsglæpi. Sakaði dómsmálaráðherra Serbíu dómstólinn um að
„hrækja í andlit“ serbneskra fórnarlamba átakanna.
Rannsókn Brians Levesons
dómara stóð í átta mánuði.
184 vitni komu fram og 42
skiluðu skriflegum vitnisburði.
Tilefni rannsóknarinnar var
víðtækar og skipulagðar hler-
anir News of the World, sem
tilheyrir News Corp, fjöl-
miðlaveldi Ruperts Murdochs.
Hún náði hins vegar til allra
prentmiðla, snerist einnig um
náið samband stjórnmála-
manna við fjölmiðla,
sérstaklega í eigu
Murdochs, og
samskipti lög-
reglu og blað-
anna.
Skýrsla
Levesons
er hátt í
2.000
blaðsíður.
Nánara eftirlit þarf með hin-um „svívirðilegu“ breskuprentmiðlum, að sögn Bri-
ans Levesons dómara, sem á
fimmtudag kynnti niðurstöður átta
mánaða rannsóknar á starfsháttum
breskra dagblaða. Rannsóknin fór
fram eftir símahlerunarhneyksli,
sem leiddi til þess að útgáfu blaðs-
ins News of the World, sem hluti
fjölmiðlaveldis Ruperts Murdochs,
var hætt. Náin tengsl stjórnmála-
manna við blöðin voru líka rann-
sökuð.
Í skýrslu rannsóknarnefndar
Levesons er hvatt til þess að sett
verði á sjálfstætt eftirlitsembætti,
skipulagt af blöðunum, en öflugra
en núverandi eftirlitsstofnun, PCC,
sem þykir tannlaus. Hið eflda emb-
ætti verði stutt lögum, með þeim
rökum að vítaverð hegðun breskra
blaða undanfarna áratugi hafi gert
að engu fullyrðingar um það að þau
ynnu í almannaþágu.
Þvert á eigin siðareglur
Í yfirlýsingu Levesons sagði að
breski blaðaiðnaðurinn hefði „rústað
lífi saklauss fólks“ og „látið eins og
eigin siðareglur, sem hann setti sér
sjálfur, væru ekki til“. Hegðun blað-
anna hefði stundum verið svívirðileg
og borið vitni „glannaskap þar sem
æsifréttir fengju forgang nánast án
tillits til tjónsins, sem þær gætu
valdið“.
Leveson leggur til að hið óháða
embætti geti sektað blöðin um allt
að eina milljón punda (rúmlega 200
milljónir króna). Blöðin setji sér
sjálf reglur, sem sæti endurskoðun
fyrir opnum tjöldum. Blöðum, sem
ekki fallist á þetta, megi refsa fyrir
hvaða dómstól sem er, til dæmis
með því að láta þau greiða máls-
kostnað þótt þau verði sýknuð.
„Ég legg til óháð eftirlit með
prentmiðlum, sem prentmiðlarnir
skipuleggi sjálfir jafnhliða lög-
bundnu ferli til að styðja frelsi
prentmiðla, veita stöðugleika og
tryggja gagnvart almenningi að
þetta nýja embætti verði óháð og
skilvirkt,“ sagði Leveson á blað-
mannafundinum þar sem hann
kynnti skýrsluna og bætti við að
ekki væri af neinni sanngirni hægt
að halda fram að hann legði til að
blöðunum yrði settur lagalegur
starfsrammi.
Þau orð gerðu lítið til að slá á fyr-
irvara Davids Camerons, forsætis-
ráðherra Bretlands, gagnvart því að
fara þessa leið. „Ég hef
alvarlegar áhyggjur og
efasemdir um þessar til-
lögur,“ sagði hann og
bætti við að hann teldi að
ekki yrði aftur snúið „ef
þættir regluverks um prentmiðla
yrðu settir í landslög“. Cameron
kvaðst mundu ræða við hina flokk-
ana á þingi hvort „aðrir kostir“
kæmu til greina til að knýja fram
þau grundvallaratriði, sem Leveson
telji að þurfi að vera til staðar.
Nicholas Clegg, varaforsætis-
ráðherra og leiðtogi Frjálsra demó-
krata, samstarfsflokks Íhaldsflokks-
ins í stjórninni, tók sérstaklega til
máls á þinginu um tillögur nefndar
Levesons og lýsti yfir stuðningi við
þær. Tók hann í sama streng og Ed
Miliband, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, sem er í stjórnarandstöðu.
Mál þetta gæti því leitt til titrings
innan bresku stjórnarinnar.
Gagnrýna Cameron
Rannsóknarnefnd Levesons var
skipuð þegar í ljós kom að blaðið
News of the World hafði stundað
víðtækar og kerfisbundnar hleranir.
Hleraði blaðið meðal annars farsíma
Milly Dowler, ungrar stúlku, sem
var saknað og síðar fannst myrt.
Talsmenn umbóta á regluramma
prentmiðla og ýmis fórnarlömb
þeirra – fólk sem var hlerað og
brotist var inn í tölvur hjá – lýsti
yfir miklum vonbrigðum með af-
stöðu Camerons og sakaði hann um
að „rífa hjartað og sálina“ úr rann-
sókn Levesons.
Í gærmorgun fékk Cameron hins
vegar stuðning bresku blaðanna,
sem hrósuðu skýrslu Levesons, en
kváðu tillögur hans myndu kæfa
blaðamennsku í landinu.
Bresk dagblöð hafa öfugt við ljós-
vakamiðla ekki lotið stjórn lögskip-
aðs embættis síðan leyfisskylda til
blaðaútgáfu var afnumin á Bretlandi
1695. Eftir seinna stríð hafa ítrekað
verið skipaðar nefndir, sem hafa
mælt með auknu eftirliti með prent-
miðlum án þess að ráðamenn færu
eftir því. Cameron verður undir
miklum þrýstingi á næstunni að
ganga lengra en forverar hans í að
hemja bresku pressuna.
Bresk blöð
sæti nánara
eftirliti
RANNSÓKNARNEFND LEGGUR TIL AÐ BRESK
DAGBLÖÐ LÚTI LÖGBUNDNU AÐHALDI. FORSÆTISRÁÐ-
HERRA TELUR AÐ ÞÁ YRÐI PRENTFRELSINU STEFNT
Í HÆTTU OG ER KOMINN UPP Á KANT VIÐ
SAMSTARFSFLOKKINN Í RÍKISSTJÓRN.
RANNSÓKNIN
Rupert
Murdoch
Brian Leveson lávarður kynnir niðurstöður rannsóknar sinnar á starfsháttum breskra blaða og tillögur um aukið
aðhald. Rannsóknin var gerð vegna hlerunarhneykslis, sem varð til að blaðið News of the World var lagt niður.
AFP
* „Við þurfum að hafa varann á okkur gagnvart allri lög-gjöf, sem gæti leitt til skerts málfrelsis og prentfrelsis.“David Cameron, forsætisráðherra Bretlands.AlþjóðamálKARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is