Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2012 Listamennirnir Yun og Rubin hafa dvalið í Hrísey að undanförnu í vinnustofum lista- manna í Gamla grunnskólanum, sem er á vegum listahópsins Norðanbáls. Pang Rui Yun frá Singapúr og Jonas Rubin frá Dan- mörku skoða í verkum sínum samspil manns og náttúru með því að nota þá orku sem býr í umhverfinu. Rýnt er í tengsl mannlegrar til- veru og náttúrunnar með því að blanda sam- an ýmsum hráefnum og því sem af gengur í daglegu lífi. Sýningin ber yfirskriftina „Hef- urðu séð bleika hvalinn?“ og var opnuð í gær en stendur yfir alla helgina. Hægt verður að skoða hana milli 12 og 16 og er sýningin í húsi Hákarla-Jörundar og Sæborg. SÝNING Í HRÍSEY BLEIKUR HVALUR Frá Hrísey. Listamennirnir Yun og Rubin skoða samspil manns og náttúru í sýningunni. Pétur Ben er lipur gítarleikari. Pétur Ben náði því takmarki í lok vikunnar að fjármagna til fulls nýja plötu sína God’s Lo- nely Man, sem er önnur sólóplata tónlistar- mannsins. Takmarkið náðist með hjálp Kar- olina Fund, sem er fyrsta hópfjármögnunar- síða landsins en þar geta einstaklingar lagt sitt af mörkum til fjármögnunar skapandi verkefna eða sprotafyrirtækja. Þegar fjórir dagar voru eftir var helmingur eftir en þá tóku aðdáendur hans við sér og peningarnir streymdu inn. „Takk fyrir stuðninginn og deilingar. Endalaust þakklátur ykkur því þetta er allt ykkur að kenna,“ skrifaði Pétur á Face- book-síðu sína. NÝ PLATA PÉTURS BEN ÞETTA TÓKST Hinn eini sanni jólaandi er jólasaga eftir leikarann Guðjón Davíð Karlsson, Góa, sem tekin verður til sýningar á litla sviði Borg- arleikhússins sunnudaginn 2. desember. Sýningin er hugsuð sem notaleg sögu- stund fyrir alla fjölskyld- una í flutningi Góa og Þrastar Leós Gunnars- sonar, kærkomið tækifæri til að kúpla sig út úr jóla- ösinni og eiga stund saman í leikhúsinu. Gói og Þröstur eru góðkunningjar barnanna og hafa áður heillað þau með Góa og Ævintýr- unum (Eldfærunum og Baunagrasinu en báð- ar hlutu tilnefningu á Grímunni sem barna- sýning ársins). Það ætti því enginn að láta þetta nýja jólaævintýri úr smiðju töframann- anna Góa og Þrastar framhjá sér fara, segir í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu. Sýningar all- ar helgar til jóla. JÓLASAGA Í BORGARLEIKHÚSI GÓI Í JÓLASKAPI Gói og Þröstur Leó leika í Hin- um eina sanna jólaanda. Vonarstrætisleikhúsið, leikhús Vigdísar Finnbogadóttur ogSveins Einarssonar, verður með leiklestur á Dauðadansinumeftir August Strindberg á mánudagskvöldið kl. 20 í Norræna húsinu. Tilefnið er 100 ára ártíð skáldsins en einnig verður dagskrá af þessu tilefni á sama stað viku síðar en þá verða flutt brot úr verkum Strindbergs. Sveinn leikstýrir Dauðadansinum en leikarar eru Arnar Jónsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir og Jakob Þór Einarsson. „Við höfum verið með uppákomur öðru hvoru undanfarin 2-3 ár. Við erum að þessu af menn- ingaráhuga og finnst þetta gaman. Við reynum alltaf að koma með eitthvað öðruvísi en við vor- um með síðast,“ segir Sveinn um starfsemi Von- arstrætisleikhússins. „Strindberg er annar af þessum tveimur risum í norrænni leik- ritun, ásamt Ibsen. Dauðadansinn er eitt hans frægasta verk,“ segir hann en verkið er dramatískt. „Við uppgötvuðum reyndar á æfingum að verkið er kómískt á köflum, ekki bara grátur, það er líka hlátur. Það er alltaf gaman að takast á við svona bitastætt verk, það fjallar um baráttu kynjanna,“ segir Sveinn og útskýrir að Strindberg sé mikill áhrifavaldur á leikskáld 20. aldar. Hálf öld frá fyrstu uppsetningu Sveins á Strindberg Sjálfur heldur Sveinn mikið uppá hann en hann lærði í heimalandi skáldsins, Svíþjóð. „Ég hef áður sett upp þrjú leikrit eftir hann. Fað- irinn var í Iðnó og Sá sterkari var í Sjónvarpinu. Fyrsta verkið sem ég gerði í útvarpi var Brunarústir, eftir Strindberg, ég þýddi það sjálfur og það var fyrir 50 árum, haustið 1962.“ Þýðingin sem Sveinn notast við er eftir Helga Hálfdanarson. „Þýð- ingin var fyrir sýningu hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1974, sem Helgi Skúlason setti upp og var mjög góð sýning,“ segir Sveinn. Strindbergs-dagskráin er styrkt af sænska sendiráðinu, IKEA og Norræna húsinu. Miðaverð er 1200 krónur á annan viðburðinn en 2000 krónur á báða. www.nordice.is HUNDRAÐ ÁRA ÁRTÍÐ STRINDBERGS Grátur og hlátur Sveinn Einarsson og Arnar Jónsson saman komnir í Þjóðmenningarhúsinu við annað tækifæri en nú vinna þeir saman í Dauðadansinum. Morgunblaðið/Ómar August Strindberg. LEIKRIT AUGUSTS STRINDBERGS, DAUÐADANSINN, VERÐUR LEIKLESIÐ Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Menning Í fyrra héldu þeir Magnús & Jóhann upp á fjörutíu ára samstarfsafmæli en nú í haust eru hins vegar fjórir ára- tugir síðan fyrsta hljómplata félag- anna leit dagsins ljós. Á henni er meðal annars lagið „Mary Jane“, eitt margra klassískra sem þeir Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason hafa sam- ið á löngum og frjóum ferli. Þeir hafa af og til starfað saman gegnum árin, sem dúettinn Magnús & Jóhann, en einnig í hljómsveitum; fyrst léku þeir saman ungir Suðurnesjamenn í Nesmönnum og um miðjan átttunda ára- tuginn voru þeir saman í Change. Við hittumst eitt skammdegisdimmt síð- degið í vikunni í Hörpu, að ræða nýja plötu félaganna, sem þeir kalla Í tíma, og kemur út á þessum tímamótum þegar fjörutíu ár eru síðan sú fyrsta kom út. Þeir rifja upp ólíka vinnuna við fyrstu plötuna, sem var tekin upp á tveggja rása segulband sem ekki var hægt að taka mikið ofan í en „svo gerðist þetta allt hratt, á örskotsstundu“, segir Magnús um það þegar þeir urðu vin- sælir. Þá bjugguu þeir í Keflavík og tóku rútuna í bæinn í upptökurnar. „Fyrsta bifreiðin sem við eignuðumst var blái Morrisinn hans Magnúsar,“ segir Jó- hann. „Já, hann kostaði fimmþúsundkall,“ bætir Magnús við. „Ef maður drap á honum á ferð og svissaði aftur á, þá sprengdi hann með svaka hvelli. Það var mikið sport að keyra á honum niður Hafnargötuna í Kefla- vík og sprengja.“ Þeir hlæja að minningunni en svo segir Jóhann: „Það var samt ákveðin lýrík í þessum rútuferðum.“ Allir verða kassagítarleikarar Á nýja diskinum eru þrettán lög, sjö eftir Magnús Þór, við texta hans, og sex eftir Jó- hann. Hann á fjóra textanna en segist hafa verið kominn í smávegis tímaþröng með texta við tvö laganna og mátaði eitt við kvæðið „Vor hinsti dagur er hniginn“ eftir Halldór Laxness og annað við þýðingu Jón- asar Hallgrímssonar á „Kossavísu“ eftir Von Chamisso. Í báðum tilvikum smellpössuðu ljóðin. Með félögunum á diskinum leikur af- ar þétt hljómsveit, skipuð Kristni Snæ Agn- arssyni trommara, gítarleikaranum Stefáni Má Magnússyni, Eiði Arnarsyni bassaleikara og hlómborðsleikaranum og upptöku- stjóranum Jóni Ólafssyni, auk blásaranna Jóels Pálssonar og Samúels J. Sam- úelssonar. Þeir segja Jón Ólafsson hafa átt hug- myndina að diskinum og hann hafi viljað hafa hana í anda fyrstu plötunnar, frá 1972. „Ég gerði tilraun til að semja í þeim anda en það virkaði ekki. Maður verður að vera frjáls við að semja tónlist,“ segir Jóhann. Magnús var hins vegar strax mótfallinn slíku afturhvarfi. „Við erum ekki lengur sömu menn og fyrir fjörutíu árum. Þessi lækur sem var þá er löngu orðinn að sjó,“ segir hann. „En svo gerjaðist þetta. Ég átti talsvert af efni af ýmsu tagi, valdi það sem mér fannst henta og samdi tvö ný lög sér- staklega fyrir upptökuna.“ Jóhann segist hins vegar hafa átt eitt lag klárt frá 2009, með enskum texta sem hann sneri því allir textarnir á plötunni eru á ís- lensku. Hann þurfti því að leggjast í laga- smíðar. Félagarnir funduðu síðan með Jóni, völdu úr hugmyndum, þá var æft tvisvar og síðan haldið í Hljóðrita að taka upp undir stjórn Kidda í Hjálmum, sem jafnframt sá um hljóðblöndun með meiru. „Mig langaði að breyta um lit í tónlistinni og frekjaðist með hljómsveitina, að við myndum berja lögin inn og enginn væri að reyna neina fíngerða listræna hluti,“ segir Magnús og glottir. Jóhann var sammála honum um þá stefnu. „Við höfðum nú gert þetta áður, eins og með lagið „Yakety Yak“ á sínum tíma, bara strömmað þetta inn. En sem Magnús & Jóhann í gamla daga vorum við meira í pikkinu, kassargítarsamspili sem við lágum yfir og formuðum vel. Við sleppt- um því núna.“ Hljóðheimurinn á Í tíma er þéttur og jarðbundinn og söngur félaganna nýtur sín vel. Það hafði mikil áhrif á útkomuna að Magnús vildi að Kristinn Snær trommari sleppti því alveg að leika á sneril og hi-hat, lykiltól hins hefðbundna popp- og rokk- trommuleikara. „Þessi hvellu hljóð í snerli og hi-hati eru oft eins og leiðandi oddur í tónlist sem allir fylgja. Ef þau eru ekki með er eins og NÝR DISKUR Á FJÖRUTÍU ÁRA ÚTGÁFUAFMÆLI Erum ekki lengur sömu menn „VIÐ ERUM EINS OG GÖMUL HJÓN, SETJUMST BARA NIÐUR OG TENGJUM OKKUR SAMAN,“ SEGJA FÉLAGARNIR MAGNÚS OG JÓHANN. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Maður verður að vera frjáls við að semja tónlist,“ segja félagarnir Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.