Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 15
föður þíns sýna vel hvað hann var vel skrifandi og með fínan húmor. „Já, hann var það. Hann skrifaði fjölmargar bækur og var sískrifandi. Hans einkennishljóð var ritvél- arpikkið. Alls staðar þar sem hann tyllti sér niður mátti brátt heyra þetta hljóð sem tölvur hafa nú út- rýmt. Hann skrifaði mörg hundruð ritgerðir og greinar. Hann leit ekki á sig sem rithöfund hvað þá skáld en var einstaklega hagmæltur og hafði gaman af kveðskap og gerði mikið af því að kasta fram stökum en ætlaðist ekki til að sá skáld- skapur væri tekinn sérstaklega al- varlega. Hann var góður þýðandi og þýddi til dæmis mikinn bálk eftir norska skáldprestinn Petter Dass, Norðurlandstrómet, sem kom út ár- ið 1976 og svo þýddi hann Max og Móritz eftir Wilhelm Busch. Það er til þýðingarsyrpa eftir hann með kvæðum eftir hina og þessa og það getur vel verið að eitthvað af því eigi eftir að birtast.“ Hvernig fannst þetta handrit föð- ur þíns? „Handritið kom upp í hendurnar á okkur systkinunum eftir að móðir okkar flutti á ellistofnun og við pökkuðum saman búslóð hennar. Þegar við fórum að lesa dagbókina fannst okkur hún svo skemmtileg að við vildum deila henni með öðrum. Ekki löngu eftir þetta bárust fyr- irspurnir frá Noregi frá einum tveimur ævisagnariturum Helge Ingstads, um það hvort einhverjar ritaðar heimildir væru til um þátt- töku Íslendinga í þessum leiðangri til Nýfundnalands. Báðir þessir ein- staklingar, sem hafa mjög ólíka af- stöðu til Ingstads fengu afrit af dag- bókinni og vitna nokkuð til hennar í bókum sínum, þannig að hún kemur þar við sögu. Eftir það var ljóst að dagbókin ætti fullt erindi á prent. Ég tala nú ekki um þegar handrit- inu fylgdi orðsending, vangaveltur föður míns frá 1979 um að dagbókin gæti hugsanlega komið út árið 2012.“ Þér hlýtur að þykja vænt um þessa Vínlandsdagbók? „Já, vissulega. Að lesa hana er eins og að fara í tímavél. Önnu Cynthiu Leplar hefur líka tekist einstaklega vel upp með hönnun og umbrot. Það er falleg áferð á mynd- unum í henni sem margar hverjar eru 50 ára gamla slides-myndir. Það eru góðar lýsingar í bókinni á ferða- laginu sjálfu og því hversu erfitt var að komast á milli staða, ólíkt því sem nú tíðkast og einnig erfiðleikar við að láta vita af sér og senda skilaboð. Svo er líka mikill fengur að eftirmála Adolfs Friðrikssonar þar sem hann rekur meðal annars skrautlegar pælingar Vínlandsleit- enda fyrr og síðar.“ Lýsingar föður þíns á flugunum sem voru þarna allt í kring meðan hann var að vinna eru líka minn- isstæðar. Ýmsir sem hafa lesið bók- ina tala mikið um þessar lýsingar. „Já, flugur koma mikið við sögu. Þær tróðu sér meira að segja inn á bókarkápuna. Það var ekki fyrr en var búið að prenta kápumyndina sem þær komu í ljós skríðandi á peysu höfundar.“ Að lokum. Þú kemur að mörgu þetta árið. Ertu mjög iðinn og ger- irðu allt auðveldlega? „Það hittist svona á með upp- skeru úr ýmsu að þessu sinni. Ann- ars geri ég ekkert auðveldlega og held að ég sé ekkert mjög iðinn. Ég er latur en sakbitinn. Sumir kalla það að vera iðinn.“ Morgunblaðið/Kristinn 2.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Bláa kortið borgar sig Með Bláa kortinu færð þú afslátt hjá fjölda fyrirtækja um allt land. Kortið færir þér aðgang að Hringtorgi, öflugri upplýsingaveitu sem heldur utan um öll fríðindi Bláa kortsins. Korthöfum bjóðast betri kjör m.a. í bíó, á veitingastöðum, af flugferðum, heilsurækt, bensíni og ýmsum viðburðum. Sæktu um Bláa kortið á hringtorg.is. Þú getur sótt appið með því að skanna QR kóðann. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 2 -2 7 2 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.