Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Page 15
föður þíns sýna vel hvað hann var
vel skrifandi og með fínan húmor.
„Já, hann var það. Hann skrifaði
fjölmargar bækur og var sískrifandi.
Hans einkennishljóð var ritvél-
arpikkið. Alls staðar þar sem hann
tyllti sér niður mátti brátt heyra
þetta hljóð sem tölvur hafa nú út-
rýmt. Hann skrifaði mörg hundruð
ritgerðir og greinar. Hann leit ekki
á sig sem rithöfund hvað þá skáld
en var einstaklega hagmæltur og
hafði gaman af kveðskap og gerði
mikið af því að kasta fram stökum
en ætlaðist ekki til að sá skáld-
skapur væri tekinn sérstaklega al-
varlega. Hann var góður þýðandi og
þýddi til dæmis mikinn bálk eftir
norska skáldprestinn Petter Dass,
Norðurlandstrómet, sem kom út ár-
ið 1976 og svo þýddi hann Max og
Móritz eftir Wilhelm Busch. Það er
til þýðingarsyrpa eftir hann með
kvæðum eftir hina og þessa og það
getur vel verið að eitthvað af því
eigi eftir að birtast.“
Hvernig fannst þetta handrit föð-
ur þíns?
„Handritið kom upp í hendurnar
á okkur systkinunum eftir að móðir
okkar flutti á ellistofnun og við
pökkuðum saman búslóð hennar.
Þegar við fórum að lesa dagbókina
fannst okkur hún svo skemmtileg að
við vildum deila henni með öðrum.
Ekki löngu eftir þetta bárust fyr-
irspurnir frá Noregi frá einum
tveimur ævisagnariturum Helge
Ingstads, um það hvort einhverjar
ritaðar heimildir væru til um þátt-
töku Íslendinga í þessum leiðangri
til Nýfundnalands. Báðir þessir ein-
staklingar, sem hafa mjög ólíka af-
stöðu til Ingstads fengu afrit af dag-
bókinni og vitna nokkuð til hennar í
bókum sínum, þannig að hún kemur
þar við sögu. Eftir það var ljóst að
dagbókin ætti fullt erindi á prent.
Ég tala nú ekki um þegar handrit-
inu fylgdi orðsending, vangaveltur
föður míns frá 1979 um að dagbókin
gæti hugsanlega komið út árið
2012.“
Þér hlýtur að þykja vænt um
þessa Vínlandsdagbók?
„Já, vissulega. Að lesa hana er
eins og að fara í tímavél. Önnu
Cynthiu Leplar hefur líka tekist
einstaklega vel upp með hönnun og
umbrot. Það er falleg áferð á mynd-
unum í henni sem margar hverjar
eru 50 ára gamla slides-myndir. Það
eru góðar lýsingar í bókinni á ferða-
laginu sjálfu og því hversu erfitt var
að komast á milli staða, ólíkt því
sem nú tíðkast og einnig erfiðleikar
við að láta vita af sér og senda
skilaboð. Svo er líka mikill fengur
að eftirmála Adolfs Friðrikssonar
þar sem hann rekur meðal annars
skrautlegar pælingar Vínlandsleit-
enda fyrr og síðar.“
Lýsingar föður þíns á flugunum
sem voru þarna allt í kring meðan
hann var að vinna eru líka minn-
isstæðar. Ýmsir sem hafa lesið bók-
ina tala mikið um þessar lýsingar.
„Já, flugur koma mikið við sögu.
Þær tróðu sér meira að segja inn á
bókarkápuna. Það var ekki fyrr en
var búið að prenta kápumyndina
sem þær komu í ljós skríðandi á
peysu höfundar.“
Að lokum. Þú kemur að mörgu
þetta árið. Ertu mjög iðinn og ger-
irðu allt auðveldlega?
„Það hittist svona á með upp-
skeru úr ýmsu að þessu sinni. Ann-
ars geri ég ekkert auðveldlega og
held að ég sé ekkert mjög iðinn. Ég
er latur en sakbitinn. Sumir kalla
það að vera iðinn.“
Morgunblaðið/Kristinn
2.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Bláa kortið borgar sig
Með Bláa kortinu færð þú afslátt hjá fjölda
fyrirtækja um allt land. Kortið færir þér
aðgang að Hringtorgi, öflugri upplýsingaveitu
sem heldur utan um öll fríðindi Bláa kortsins.
Korthöfum bjóðast betri kjör m.a. í bíó,
á veitingastöðum, af flugferðum, heilsurækt,
bensíni og ýmsum viðburðum.
Sæktu um Bláa kortið á hringtorg.is.
Þú getur sótt appið með
því að skanna QR kóðann.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-2
7
2
2