Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.12. 2012 K ínverski kommúnistaflokkurinn kom saman til fundar fyrir skömmu og ákvað valdaskipti í landinu. Fundurinn stóð í nokkra daga og ríkti þar mikil og góð samstaða. Nokkrar lykilyfirlýs- ingar lifa eftir fundinn og eindrægni einkenndi þær líka eins og annað. Fundurinn var fylgjandi friði, sem var ágætt, og alræði fólksins, sem er ekki síðra. Hann stóð fast með framförum og skipaði sér allur á bak við réttlæti. Því má segja að hinir nýju leiðtogar fari vel nestaðir á vit framtíðarinnar. En það sem verður þeim ríkust huggun í önnum og ábyrgðarstörfum er að þar með er ljóst að næstu skref risaveldisins verða stigin í fullu umboði fundarins, en hann sat fólk frá gjörvöllu Kína. Ekki voru afrekin síðri hér Auðvitað gæti það virst mikið afrek að svo fjölmennur fundur geti komið sér saman um svo merkilegar nið- urstöður, eins og þarna gerðist. Friður hangir víða á blástrái, en þarna stóðu allir með honum. En þrátt fyrir „ríka réttlætiskennd“ margra, m.a. hinna allra stóryrtustu og dómhörðustu í bloggheimum, á rétt- lætið enn í vök að verjast á Íslandi. En þarna var sleg- in um það skjaldborg, rétt eins og gert var um kjör al- þýðunnar af fyrstu alvöru vinstristjórn Íslands. En þá er þess að geta að á fundinum mikla eystra sat þaulreynt fólk í fræðunum og það styrkti það auðvit- að í ofurmannlegu verki að geta byggt á gömlum og góðum ályktunum um sama efni. Íslenski þjóðfundurinn sem var fyrsta skrefið til að umbylta stjórnarskrá Íslands frá 17. júní 1944 var þó í raun miklu meira afrek en þetta. Þar var komið sam- an 14. nóvember 2009 og á þúsund manna fundi, sem stóð aðeins einn dag og tæplega það, náðist miklu meira fram en í Kína. 30.000 hugmyndir og tillögur Á heimasíðu fundarins segir að fram hafi komið „30 þúsund nýjar hugmyndir og tillögur“ eða yfir 50 á hverri mínútu, sem er mikið, og það jafnvel þótt allir fundarmenn hafi talað í einu, sem er fjarri því að vera víst. Í rauninni var þjóðfundurinn 100 fundir á tíu manna fundum í kringum borð og var kraftaverki líkast hversu samstiga borðin 100 voru í afstöðu sinni og breytir engu um afrekið þótt „skipuleggjendur“ hafi haft einn mann frá sér á hverju borði. Helstu niður- stöður samkvæmt samantekt sem birt er á síðu þjóð- fundarins voru Heiðarleiki, svo Jafnrétti, Virðing og Réttlæti. Í næstu sætum komu Kærleikur, Ábyrgð og Frelsi. Nú er ekki augljóst hvaða áhrif það hefði haft ef Kærleikur hefði komist upp fyrir Réttlæti, svo ekki sé talað um ef Ábyrgð hefði skákað Heiðarleika úr efsta sætinu. En auðvitað er það umhugsunarefni. Traust fékk hins vegar frekar slakt fylgi og er ekki heldur vitað hvaða þýðingu það hafði fyrir vinnu við nýja stjórnarskrá, sem að sögn er byggð á „niður- stöðum“ þjóðfundarins. En á heimasíðunni kemur einnig fram að: „Á fund- inum varð til framtíðarsýn á hverju borði.“ Og í sam- ræmi við gagnsæi fundarins er hver og ein framtíð- arsýn birt. Hundraðföld framtíðarsýn var til viðbótar 30.000 tillögum. Ekki verður séð að hinn mikilvægi fundur Kínverska kommúnistaflokksins geti státað af slíku, og óljóst hvaða þýðingu skortur á fjölbreyttri framtíðarsýn muni hafa fyrir framtíð hins mikla veld- is. En á vef þjóðfundarins geta menn enn lesið hinar eitt hundrað framtíðarsýnir sem „urðu til“ á hverju hinna 100 borða í Laugardalshöll og verður ekki öðru trúað en að fáir hafi látið slíkt fram hjá sér fara. Í ferli á fjórða ár Nú hefur undirbúningur að breytingu á lýðveldis- stjórnarskránni staðið í á fjórða ár. Og enn hefur hinn raunverulegi stjórnarskrárgjafi, Alþingi sjálft, ekki tekið einstakar greinar byltingarskrárinnar til efnis- legrar umfjöllunar, sem sýnir hve grasrótin hefur mikla forystu í málinu. Ef ummæli formanns Eft- irlits- og stjórnskipunarnefndar Alþingis eru skilin rétt, sem er fjarri því að vera öruggt, þá hefur ekki enn gefist tími til slíkrar umfjöllunar af þingsins hálfu og óvíst að hann gefist þar sem afgreiða þarf málið fyrir kosningar. Nú er vitað með vissu og eykur traust á málinu að forsætisráðherra landsins hefur enn ekki lesið tillög- urnar frekari en samninginn um Icesave og varla geta óbreyttir þingmenn gert kröfu um rýmri aðgang fyrir þá sjálfa. Enginn má hafa hærri laun en for- sætisráðherra og enginn lesa meira en hann. Það eru ekki góð tíðindi fyrir bókamarkaðinn, en við því er ekkert að gera. Enda virðast almennir þingmenn ætla að forðast að fara efnislega yfir einstakar grein- ar og málið í heild eins og forsætisráðherrann hefur sjálfur þegar uppfyllt af sinni hálfu. Það er í fullu samræmi við „Jafnrétti“ sem var í öðru sæti á sjálfum Hverjir slá skjaldborg um skafrenning? * Enginn má hafa hærri launen forsætisráðherra og enginnlesa meira en hann. Það eru ekki góð tíðindi fyrir bókamarkaðinn, en við því er ekkert að gera. Reykjavíkurbréf 30.11.12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.