Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.12.2012, Blaðsíða 37
Opnunartímar:
Smáralind
Virka daga 11-19 | Fimmtudaga 11 - 21 | Laugardaga 11 - 18
Sunnudaga 13 - 18 | Sími 512 1330
Laugavegi 182
Virka daga 10-18 | Laugardaga 11 - 16 | Sími 512 1300
Tvöfalt hraðari
og
ótrúlega skarpur
iPad 4
með Retina skjá
Fyrir leikjaspilarann
Wii U
Það má búast við nýjasta leikjatölvan frá Nintendo, Wii U, verði vinsæl
í jólapakkann í ár. Nintendo er fyrsti framleiðandinn af stóru leikjavéla-
framleiðendunum til að setja á markað næstu kynslóð leikjavéla.
Wii U kemur með nýrri fjarstýringu sem er
með sér snertiskjá sem ýmist virkar sem auka-
skjár með leiknum eða til þess að spila leiki á
fjarstýringunni einni saman. Leikjaframleiðendur
eru enn sem komið er að átta sig á mögu-
leikum þessarar viðbótar, en það er strax kominn nýr Super
Mario-leikur fyrir Wii U sem fær mjög góða dóma, og ef að líkum læt-
ur verður hann nóg til að gera þetta að vinsælli leikjavél.
Fyrir myndasmiðinn
Polaroid Z340
Margir hugsa með söknuði til gömlu Polaroid-
filmuvélarinnar sem var ein af mörgum
fórnarlömbum stafrænu byltingarinnar. Nú
er hægt að fá stafræna Polaroid-vél með
gamla laginu sem er með innbyggðum prent-
ara sem prentar út myndir á 3x4 tommu
pappír. Sjálf myndavélin er 14 megapixla með 2,7
tommu skjá. Vissulega er hægt að fá betur útbúnar
myndavélar, en það er fátt skemmtilegra en að
mæta með Polaroid-myndavél á mannfagnaði og
festa minningarnar á blað samstundis.
Fyrir hundaeigandann
Ól með staðsetningartæki
Það hefur lengi loðað við jafnvel bestu hunda að
þeir sleppa lausir og þá getur verið þrautin þyngri
að finna þá. Tagg Tracker er hundaól með inn-
byggðu gps-staðsetningartæki sem sýnir þér á
korti í tölvu eða snjallsíma hvar hundurinn er nið-
urkominn.
Fyrir þau tortryggnu
Myndavél sem fylgist með heimilinu
Dropcam er lítil wifi-vefmyndavél sem hægt er að
stilla upp hvar sem er á heimilinu og tengjast í
gegnum tölvu eða snjallsíma hvaðan sem er. Þannig
er hægt að fylgjast með heimilinu úr fríinu eða
vinnunni og fullvissa sig um að allt sé með felldu.
Þá er hægt að virkja hreyfiskynjara sem lætur þig
vita ef hreyfing á sér stað og sendir þér mynd af
því sem á sér stað. Merkið frá vélinni er dulkóðað,
svo það er lítil hætta á aðrir en þú geti nýtt sér
útsendinguna.
2.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Vísindamenn við Cambridge-háskóla í Englandi hafa
stofnað til rannsóknarverkefnis um þá útrýming-
arhættu sem mannleg tækni kann að búa mannkyn-
inu.
Verkefnið, sem kallað er The Cambridge Project
for Existential Risk, eða Cambridge Rannsókn-
arverkefnið á útrýmingarhættu, mun sérstaklega fást
við hættur líkt og þær sem kunna að stafa af lofts-
lagsbreytingum af mannavöldum, lífefnafræði, erfða-
tækni og gervigreind, en markmiðið er að tryggja að
mannkynið verði enn við lýði þegar Cambridge há-
skóla fagnar þúsund ára afmæli eftir tæplega 200 ár.
Gervigreind gegn mannkyninu
Meðal þess sem verður rannsakað verður hættan á
uppreisn vélmenna, eða gervigreindar gegn mann-
kyninu, en vísindamenn við háskólann taka sér-
staklega fram að það geti verið stórhættulegt að
gera lítið úr þeirri hættu. Í fréttatilkynningu frá
Cambridge-háskóla, segir Huw Price, prófessor í
heimspeki, og einn stofnandi verkefnisins, að það sé
raunhæft að áætla að greind brjóti af sér hlekki líf-
fræðinnar á þessari öld eða næstu.
Hann segir jafnframt að þegar tölvur og vélmenni
verði greindari en mannfólkið og öðlist mögulega
sjálfstæða hugsun, geti svo farið að við verðum
komin upp á náð og miskunn véla sem hafi ekki
endilega okkar hagsmuni að leiðarljósi. Ekki náðist í
Arnold Schwarzenegger við vinnslu þessarar fréttar.
Gera vélmennin uppreisn?
HÆTTUR FYLGJA TÆKNIFRAMFÖRUM
VÍSINDAMENN VIÐ CAMBRIDGE HÁSKÓLA
RANNSAKA NÚ HÆTTUNA Á FJAND-
SAMLEGRI YFIRTÖKU GERVIGREINDAR OG
UPPREISN VÉLMENNA. ÞEIR TELJA VÍST AÐ
GERVIGREIND FARI FRAM ÚR MANNLEGRI
GREIND INNAN SKAMMS.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
Arnold Schwarzenegger sem Terminator.